Tölvumál - 01.05.1996, Síða 5
Maí 1996
Frá formanni
LjósáTölvunefnd
Tölvunefnd hefur verið meira í
fréttum undanfarin misseri en
áður. Skemmst er að minnast af-
skipta nefndarinnar af málum er
vörðuðu ásakanir á hendur bisk-
upi. Málafjöldi hefur farið stöðugt
vaxandi, á liðnu ári voru u.þ.b.
350 mál afgreidd af borði nefnd-
arinnar.
Tölvunefnd er skipuð fimm
mönnum, en það eru 3 lögmenn,
læknir og einn fulltrúi fagfólks í
upplýsingatækni sem skipaður er
af Skýrslutæknifélaginu. Aukinn
sýnileiki nefndarinnar hefur komið
mörgum á óvart og spurt hefur
verið um vald- og verksvið nefnd-
arinnar og hvort einhver breyting
hafi orðið á því sem orsakar þessa
auknu virkni. Því er til að svara
að engin breyting hefur orðið þar
á. Lög um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga eru frá árinu
1989 og hafa því verið óbreytt í 7
ár.
Það er margt sem stuðlar að
aukinni virkni og umfjöllun um
tölvunefnd. Má jafnvel rökstyðja
það að þróun upplýsingaþjóðfél-
agsins mælist með málafjölda hjá
henni. Almenningi er orðið betur
kunnugt um nefndina og tilgang
hennar og hefur í vaxandi mæli
leitað á náðir hennar við úrlausn
mála. Aukin umfjöllun skapar
einnig meiri árvekni gagnvart
misnotkun upplýsinga. Fæstir vilja
gerast brotlegir við lögin og leita
því leyfis nefndarinnar til að fram-
kvæma skráningu, vinnslu eða
dreifingu persónuupplýsinga.
Færð hafa verið rök fyrir því
að verulegur hluti hagvaxtar kom-
andi áratuga muni byggja á meiri
skilningi í þjóðfélaginu og hegðun
einstaklinganna innan þess. Þörf
fyrirtækja, félaga og stofnana fyrir
vandaðar upplýsingar mun vaxa.
Góðar upplýsingar, og um leið
þekking, mun skapa möguleika á
hnitmiðaðari aðgerðum og
stjómun hvers konar verður mark-
vissari.
Upplýsingar liggja víða og
meira er til en þú heldur. Nú þegar
em til á tölvutæku formi gögn um
mig og þig sem væri með sam-
keyrslu hægt að nota til að kort-
leggja hegðun okkar í þaula. Hér
má t.a.m. nefna námsferil, starfs-
feril, sjúkrasögu, lyfjasögu, fjár-
hagssögu, neyslumynstur, ferðalög
o.s.frv. Það er enginn vafi á því
að með slfkri samkeyrslu mætti
búa til firna verðmætar upplýs-
ingar sem allir hefðu áhuga á að
skoða og mætti nýta til góðs og ills.
Víst er að markaður fyrir slíka
þekkingu er góður og eftirspurn
mikil og hægt að fullyrða að ásælni
í slíkar upplýsingar muni aukast
og verðmæti þeirra þar með.
Líklegt má telja að löggjafinn
muni bregðast við með því að
stemma enn frekar við möguleik-
um til að búa til slíkar skrár. Það
má gera bæði með boðum og bönn-
um og með skipulagslegum að-
gerðum s.s. með fleiri kennitölum
t.a.m. með einni almennri og ann-
arri heilbrigðiskennitölu. Það er
alþekkt að skortur gerir vöru verð-
mætari og á sama hátt munu upp-
lýsingar verða verðmætari.
Viðhorf til þessara mála á eftir
að þróast og breytast. Hvað talið
Eftir Hauk Oddsson
er eðlilegt og sjálfsagt að leynt fari
mun verða breytilegt frá einum
tíma til annars. Ekki er auðvelt að
spá um í hvora áttina þróunin
verður - eiga boð og bönn eftir að
einkenna meðferð persónuupplýs-
inga eða mun frjálsræði verða ofa-
ná? Hver munu áhrif t.a.m. Inter-
netsins, og miðlunarmöguleika
þess, verða á hvað þykir eðlilegt
og sjálfsagt í þessum efnum ?
Hver sem þróunin verður er
mikilvægt að fara varlega. Beina
þarf umræðunni á skynsamlegar
brautir og forðast verður allt of-
stæki. Verði takmarkanir of miklar
gæti það m.a. leitt til óhagkvæms
þjóðfélags og lakari samkeppnis-
stöðu. Ofstæki eða alvarleg mistök
þar sem persónuvernd er fótum
troðin getur leitt til tortryggni sem
gæti leitt til óþarflegrar stífni.
Ritstjóri hættir
Magnús Hauksson, verkfræð-
ingur hjá Pósti og síma, sem verið
hefur ritstjóri Tölvumála um nokk-
urt skeið hefur beðist undan áfram-
haldandi störfum í ritstjórn.
Magnús hefur stýrt blaðinu af
einstöku lítillæti og mikilli útsjón-
arsemi með óvenju fámenna rit-
stjórn sér við hlið.
Stjórn Skýrslutæknifélagsins
og ritstjórn kunna honum bestu
þakkir fyrir vel unnin störf.
Haukur Oddsson er
forstöðumaður tölvu-
og upplýsingadeildar
Islandsbanka
Tölvumál - 5