Tölvumál - 01.05.1996, Qupperneq 22

Tölvumál - 01.05.1996, Qupperneq 22
Maí 1996 og Purveyor. Öryggi SSL felst í að nota 40 bita lykil fyrir RC4 algorithmann. Vegna takmarkana á útflutningi frá Bandaríkjunum eru vefþjónar háðir 40 bita hámarki. Þrátt fyrir að gríðalega erfitt sé að brjóta upp 40 bita lykil er litið á þessa stærð sem sem öryggisáhættu. Lykill af þessari stærð hentar ágætlega til að senda almennan tölvupóst. Net- scape, eins og flestir hugbúnaðar- framleiðendur, berjast hart fyrir því að fá að stækka lykilinn og er talið að 128 bita lykill sé „verslun- aröryggi“. Öryggi SSL er þríþætt: Auðkenni miðlara felst í því að staðfesta að vefþjónninn sé sá sem hann segist vera. Slíkt kemur í veg fyrir að skúrkar geti sett upp Tróju-hest og þóst vera aðrir en þeir eru. Brenglun upplýsinga felst einfaldalega í því að brengla öll gögn og afbrengla. Þannig er komið í veg fyrir að utanað- komandi aðilar geti „hlerað“ samskiptin. Gagnaöryggi felst í því að tryggja að gögn komist heil og óskemmd milli aðila. Þegar skúrkarnir geta ekki hlerað er reynt að tryggja að þeir geti ekki heldur valdið skaða. SSL virkar þannig að það kemur á milli HTTP og Windows Socket. Líta má á SSL sem út- færslu á Windows Sockets, nema að öryggi er bætt við. SSL er því nokkurs konar gegnsær staðall, að því leyti að forrit þurfa í raun ekki að vita af SSL, heldur nota Win- dows Sockets eins og vanalega. Til þess að nota öruggan vef- þjón þurfa vefskoðarar að nota forskeytið https í stað http. Net- scape vefskoðarinn sýnir bláa rönd og heilan lykil en Exporer sýnir hengilás þegar samskipti eru örugg. SET staðallinn Þó svo að SSL hafi þegar náð útbreiðslu fyrir almenna brengjun á veraldarvefnum, er annar staðall sem búast má við að verði notaður til að tryggja öryggi viðskipta. Kortafyrirtækin (Visa og Euro- Card) og hugbúnaðarfyrirtæki (Microsoft, Netscape og IBM) hafa tekið höndum saman um að þróa staðal sem á að tryggja örugg netviðskipti. Staðallinn sem gengur undir heitinu SET (Secure Electronic Transaction) gengur út á tvennt. Annars vegar tryggir staðallinn að birgi (Internet- verslun) fær aldrei að vita korta- númer neytanda, heldur aðeins banki. Hins vegar er bankastofnun notuð til að staðfesta að viðskipta- aðilar séu þeir sem þeir segjast vera og látin samþykkja viðskiptin. Á bak við slíka staðfestingu liggur háþróuð brenglunartækni. Allir viðskiptaaðilar fá afhentan brenglunarlykil, sem viðskiptaaðili verður að geyma sem leyndarmál. Leyndarmálið felst í varðveislu „lykilsetningar“ sem þarf að muna og brenglunarlykis sem geymdir eru í skrá sem þarf að vera tiltæk á tölvu þeirri sem viðskipti eru framkvæmd á. Til að geta villt á sér heimildir þarf því bæði aðgang að lykilskránni og vita „lykil- setninguna". Hér er því verið að tala um raunverulegt innbrot og óhemju reikniafl til að eiga mögu- leika á að villa á sér heimildir. Framtíðarþróun Þó svo að þróun Internetsins virðist vera á gífurlegum hraða, þróast öryggismál netsins hægt og örugglega. Skilgreiningin á SET staðlinum er rétt að ljúka og út- færslu að vænta síðla árs 1996. Upp úr því má búast við að al- heimsviðskipti á Internetinu taki kipp. Og þegar viðskipti á Inter- netinu eru orðin örugg er spurn- ingin: verða einu hættulausu við- skiptin í framtíðinni viðskipti yfir tölvunet? Ólafur Andri Ragnars- son er þróunarstjóri Margmiðlunar hf 22 - Tölvumá!

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.