Tölvumál - 01.05.1996, Page 28
Maí 1996
inu, hugbúnað fyrir fjarþjónustu
(heimabanki sparisjóðanna),
hleðslustjórnun flugvéla og frétta-
stofukerfi.
Internetið Delphi
Vinsælustu forritunarmálin
hafa jafnan verið Pascal, C og
C++ í ýmsum útgáfum. En í verk-
efnunum gefst nemendum og sam-
starfsaðilum kjörið tækifæri til
þess að gera tilraunir með nýjan
þróunarhugbúnað. Nú í vor voru
kynnt tvö verkefni sem eru forrituð
í Java, en það er geysivinsælt
forritunarmál fyrir internetforrit-
un. Annað verkefnið er rafrænt
verslunarkerfi fyrir almenning sem
er unnið í samvinnu við fyrirtækið
Netkaup. Hitt verkefnið snýst um
myndræna framsetningu jarð-
skjálftagagna á internetinu og er
unnið í samvinnu við Veðurstofu
íslands. Forritunarmálið Java
svipar til C++ hvað rithátt og for-
ritunarstíl varðar. Með því eru
búnar til skrár á tvíundarformi sem
hægt er að keyra á mörgum teg-
undum tölva. Nemendurnir voru
mjög hrifnir af Java forritunar-
málinu og fannst þægilegt að vinna
með það. Þeim fannst það bæði
öflugt en þó einfaldara en C++.
Vinnsluhraði Java forrita er við-
unandi, en sá þáttur mun fara batn-
andi með nýrri útgáfum af forrit-
unarmálinu.
Þróunarumhverfið Delphi frá
Borland hefur náð feikna vinsæld-
um síðan fyrsta útgáfa þess kom
út fyrir rúmu ári síðan. Fjögur
lokaverkefni voru skrifuð með
Delphi 2.0, en það er splunkuný
32-bita útgáfa af þessu þróunar-
umhverfi. Delphi er er hlutbundið
forritunarumhverfi sem er byggt á
forritunarmálinu Object Pascal.
Með því eru skrifuð forrit sem
keyra undir Windows og mynd-
rænt notendaviðmót þróunarum-
hverfisins hefur svipaða eiginleika
og Visual Basic. Delphi forrit eru
þýdd og verða því töluvert hrað-
virkari en forrit skrifuð í Visual
Basic. Þróunarumhverfið kemur í
þremur mismunandi umfangs-
miklum útgáfum: Borland Delphi,
Borland Delphi Developer og
Borland Delphi Client/Server
Suite. Tvær hinar síðastnefndu
komu við sögu í þessum verkefn-
um og reyndust ágætlega. Öll þessi
verkefni voru gerð í samvinnu við
hugbúnaðarfyrirtæki sem einmitt
vildu grípa tækifærið og kynnast
þessu umhverfi í tilraunaverk-
efnum. Þessi verkefni tókust vel og
eru allar líkur á að þau verði tekin
í notkun.
A vegum TVÍ verða á næstu
vikum haldin endurmenntunar-
námskeið fyrir forritara. Þá verða
meðal annars í boði forritunamám-
skeið í Java og Delphi.
A þessum vetri voru gerð
sautján lokaverkefni og yrði of
langt mál að gera grein fyrir þeim
öllum. Þegar þessi grein birtist
verður nýlega afstaðin árleg kynn-
ing á verkefnunum sem fer fram í
skólanum um miðjan maí. Þá sýna
nemendur verkefni sitt í 45 mínútur
og svara spumingum á eftir. Kynn-
ingin er auglýst og öllum er heimill
aðgangur.
Vinnulag verkefna
Skólinn gerir ákveðnar kröfur
til vinnulags, skilaþátta og tíma-
marka ásamt því að veita verkhóp
faglega leiðsögn og meta verkefnið
á ýmsum stigum þess. Hver verk-
hópur hefur verkefniskennara og
tvo til þrjá prófdómara úr hópi
kennara. Samstarfsaðili er í hlut-
verki verkkaupa gagnvart nem-
endum í verkhóp. Ætlast er til að
nemendur hafi greiðan aðgang að
tengilið, sem getur veitt upplýsing-
ar um kröfur verkkaupa til verks-
ins, og hafi tækifæri til að kynnast
væntanlegum notendum. í flestum
tilvikum sér samstarfsaðili verk-
hópnum fyrir vinnuaðstöðu og fag-
legri aðstoð eftir því sem þörf er
á.
Á Mynd 3: Vinnuferli loka-
verkefna er lýst rammakröfum
skólans til vinnuferlis. Vinnutíma-
bilið skiptist í tvo meginkafla:
annars vegar greiningu og hönnun,
sem er tíu vikna tímabil þar sem
nemendur sækja einnig kennslu í
bóklegum greinum, og hins vegar
6 vikna forritun. Ætlast er til að
verkefnið sé tilbúið fyrir kerfis-
bundnar prófanir þriðja aðila
þegar því er skilað.
Gerð er krafa um að samin sé
greiningar- og hönnunarskýrsla
með viðurkenndum aðferðum en
nemendur hafa frjálsar hendur með
val á aðferðafræði. í greiningar-
skýrslunni skal vera kröfulýsing
sem er læsileg verkkaupa og not-
endum. Þessi kröfulýsing er rýnd
af samnemendum verkhóps með
hliðsjón af gátlista. Gátlistinn er
byggður á útfærslu MSQH á
gæðakröfum ISO-9001 varðandi
innihald og eiginleika kröfulýsing-
Mynd 2: Viðfangsefni í lokaverkefnum
28 - Tölvumál