Vísir - 15.10.1962, Page 3
V í SIR . Mánud&gur 15. október 1962,
3
■í.
. : :
■■ :■
LAMB
Myndsjáin fór { skyndiheim-
sókn f sláturhús Sláturfélags
Suðurlands, við Skúlagötu, einn
daginn. Þar var slátrað lömbum
af fullum krafti. Við hittum
Halldór Benediktsson verk-
stjóra, sem skýrði fyrir okkur
gang slátrunarinnar.
Lömbin koma úr stóru húsi
áföstu sláturhúsinu, eftir stfu
að svokölluðum banaklefa, þar
sem lambið er skotið. Siðan er
því fleygt á borð við hliðina á
klefanum og þar Iátið blæða úr
því, síðan afhausað. Eftir það
Á MÍNÚTU
fer lambið á fláningarbekkinn.
Fer það mann frá manni, sem
hver gerir sitt handtak, sam-
tals fjórir menn, en sá sfð-
asti hengir skrokkinn á gálga.
Þá er farlð innan í Iambið, og
innyflin tekin úr skrokknum og
fleygt á borðið þar sem mörinn
er tekinn af og Iifur, hjarta og
Iungu slitið frá vömb og ristli.
Þegar búlð er að taka Innan úr
kjötinu tekur þvottamaður við
og þvær innan úr skrokknum,
en sendir síðan skrokkinn til
stúlku, sem jærrar kjötið og
snyrtir. Næsti maður klýfur
bringuna á skrokknum, bindur
bönd í hækla og raðar kjötinu
upp á slámar.
Þegar kjötið er orðið kalt er
það vigtað en gengur því nœst
niður í írysti. Það sem tekið
var innan úr gengur hvert fyrir
sig eftir eigin rennu niður á
neðri hæðina. Hausarnir eru
kældlr á grind en síðan rennt
niður á neðri hæðina. Blóðið
rennur eftir rennu á borðinu
við hlið banaklefans niður (
bala á neðri hæðinni. Þar er
hrært í því og síðan er það
notað. Gærumar fara í gæru-
húsið og eru saltaðar þar.
Vinnuhraðinn og æfingln á
fólkinu í sláturhúsinu er mikill.
Lætur nærri að það fari eitt
lamb á mfnútu fram f krclisal-
inn, fláð og þrifið.
Efsta myndin: Fláningarmcnn
vinna með hröðum og öruggum
handtökum, enda flá þeir eitt
lamb á mfnútu. — Miðmynd:
Tíðustu handtökin f fláningunnf.
Neðst t. v.: Hver skrokkur er
þveginn og snyrtur. — Neðst,
miðmynd: Tekið innan úr lamb-
inu. Síðan fer skrokkurinn f
þvott og snyrtingu. — Neðst
t. h.: Verkstjórinn f sláturhús-
inu, Halldór Benediktsson.