Vísir - 15.10.1962, Qupperneq 7
V IS I R . Mánudagur ií>. oktoner íutas.
/
Bók um YOGA
TVTú nýverið kom út bók er fjall
ar um Yoga eftir Gunnar
Dal skáld. Bókin er sú fimmta í
bókaflokki, sem fjallar um heim
*ieki almennt og hliðstæðar
greinar, er stuðla að mannlegri
þróun til fullkomnunar. Ætlun-
in mun vera að bækur þessar
verði. rúmlega þrjátíu alls og
má mikils af þeim vænta ef þær
verða í samræmi við það, sem
þegar hefur komið á bókamark-
aðinn af bókaflokki þessum.
T>ók númer fimm í röðinni
fjallar aðallega um YOGA,
og er grundvölluð á Yoga Sútr-
um eftir Patanjali, sem var ind-
verskur heimspekingur og oft-
ast talinn uppi á 2. öld f. Kr.
Þó er ekki talið að Patanjali sé
höfundur þessara kenninga held
ur aðeins að hann hafi fært þær
í letur og sé hér um að ræða
hinar upprunalegustu yogakenn
ingar, sem heimurinn þekkir í
dag. Patanjali skiptir götu
mannsins til fullkomnunar og
upprisu úr hinum mannlega
veraldarskóla í átta þætti. Hið
fyrsta stig nefnir hann Yama og
er það aðallega ætlað til þess
að treysta hinn siðræna grund-
völl, sem sérhver verður að til-
einka sér, sem leggur út á þessa
braut. Meðal þessara boðorða
fyrsta stigsins má sjá hin kristi-
legu boðorð: „Þú skalt ekki
mann deyða, vertu einlægur,
sannorður og trúr. Vertu heið-
arlegur, hófsamur og dýrkaðu
ekki gullkálfinn". Annað stig
hins áttfalda vegar er svipað að
eðli og hið fyrsta og miðar að-
allega að því að styrkja hinn
siðræna grundvöll mannsins.
Síðari stigin fjalla um að ná
valdi á hinum líkamlegu skynj-
unum og huganum, en þetta eru
frumskilyrði fyrir því að and-
leg uppljómun og eilíf sælu-
kennd náist.
Höfuð inntak yogaheimspek-
innar er að leiðbeina mönnum
út úr heimi hinna jarðnesku
blekkinga, þar sem tilfinninga-
líf og hugur eða skynsemi kepp-
ast um yfirráðin. Kennisetning-
in segir að við fæðumst hér á
jörð aftur og aftur þangað til
við höfum öðlazt þekkingu og
reynslu í gegnum þjáningar jarð
lífsins. í bók, sem ég las um
þetta efni, var tölunnar 850
getið sem fjölda þeirra jarðvista
eða fæðinga og dauða, sem sér-
hver sál þyrfti að undirgangast
áður en hún kæmist út úr jarð-
skólanum.
Um þetta atriði er hins vegar
PáiE S. Pálsson
hæstaréttarlögmaður
Bergstaðastræti 14
Simi 24200.
Lösfræðistörf Innheimtur
Fasteignasala
Hermann G. Jónsson iidl.
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Skjólbraut 1, Kópavogi.
Sími 10031 kl. 2—7 (Heima 51245).
ekkert hægt að fullyrða, en hins
vegar má geta þess, að frum-
kristnin gekk út frá endurholdg-
unarkenningunni sem staðreynd
og það sama gera öll meiri hátt-
ar trúarbrögð í dag. Út úr þess-
ari hringiðu er ókleift að kom-
ast nema menn tileinki sér ein-
hverjar af hinum andlegu leið-
um. Margir hljóta frelsun með
tilstuðlan trúarbragðanna og
hljóta eilíft Iíf, aðrir tileinka
sér herimspeki, yoga, visindi og
listir eða bara allt sem er skap-
andi, jákvætt og eflir manninn
til góðra dyggða og dáða. Marg-
ar eru leiðimar og sérhver verð-
ur að finna þá þeirra, sem hent-
ugust er hans lyndiseinkunn og
aðstæðum.
Cegja má samt að aðferðirnar
^ beri oss misfljótt inn í hina
fullkomnu sælu upprisunnar og
verður að segja, að því andlegri
sem þær eru, þeim mun kraft-
meiri eru þær í þessum tilgangi.
Yoga Sútra Patanjalis í þýð-
ingu Gunnars Dal mun vera ein
af hinum kraftmeiri aðferðum
og leyfi ég mér því að mæla
með henni. Auðvitað mun mörg
um þykja þessi fræði full torfær
og tyrfin fyrir skilning sinn, en
samt er þarria úr einhverju að
moða fyrir alla.
Skúli Skúlason.
lííreinsym vel - - Slrei^suBii fljóft
Hreinsum allan tatnað Sækjum Sendum
ffnsslougin- LSNS$IH H.F.
Hatnai siræit
Sinn 18820
18
Skúlagötu 51.
Sími 18825.
Verzlun BJARGAR
AUGLÝSIR:
Hin niargeftirspurðu ullarefni í kápur og
dragtir nýkomið, einnig mikið úrval af kjól-
efnum og blúndum o. m. fl.
VERZLUN BJARGAR
Heiðargerði 48.
I þessum mánuði afhentum við 500. Volkswagen
bílinn, sem við höfum afgreitt á þessu ári. —
Við ætluðum að sýna yður mynd af honum, . . . en því
miður viðskiptavinurinn gat ekki beðið eftir ljósmyndar-
anum, en það gerir sjálfsagt ekkert til því að allir þekkja
Voíkswagen. — Jafnvel amma þekkir útiitið.
' -• 1 1! •Jl/}!Ííl|j . A*.; , .
. S
VOLKSWAGEN flýgur út
© © ©
Alltaf
fjölgar
VOLKSWAGEiS
Síðan I ágúst sl. eru 160 ánægðir eigendur, akandi i
Volkswagen _ árgerð 1963. _ Þið sem eruð að hugsa
um að eignast Volkswagen ættuð að hafa samband við
qkkur sem allra fyrst.
Heildverzlunin HEKLA h.f.
Hverfisgötu 103 Sími 112 75