Tölvumál - 01.04.1997, Page 9
TOLVUMAL
hafsvæðunum kringum ísland
munu brátt geta fengið svör við
margvíslegum fyrirspurnum. Lið-
ur í því verkefni er að hanna svo-
kallað vöruhús gagna sem byggir
á þeim umfangsmiklu gögnum sem
til eru í gagnasöfnum Hafrann-
sóknastofnunar.
Veraldarvefurinn og Intemetið
kemur við sögu í fleiri verkefnum.
Má þar nefna kerfi sem aðstoðar
bflasala og kaupendur við að sækja
um bílalán og reikna út greiðslu-
byrði lána í samvinnu við trygg-
ingafélag sem veitir lán. Trygg-
ingafélag og bflasali eru á sitt hvor-
um enda netsins og hafa samskipti
tengd lánveitingunni yfir netið.
Loks má nefna tilraunaverkefni
sem unnið er í samvinnu við
Tölvumiðstöð sparisjóðanna. Það
er fólgið í því að hanna klasakerfi
í Java fyrir Internetþjónustur.
Hröð
hugbúnaðarþróun
Á seinni árum hafa komið á
markað ýmis þróunarumhverfi
sem eiga að stuðla að aukinni
framleiðni í hugbúnaðargerð. Þar
sem þróunarverkfæri eru oft valin
í nánu samráði við samstarfsaðila
nentendanna er eðlilegt að þessi
þróun endurspeglist í verkefn-
unurn.
Verið er að vinna verkefni í
samstarfi við símstöðvadeild Pósts
og síma sem er forritað í Power-
builder 5.0. Þetta kerfi vinnur úr
gögnum sem safnast upp í gagna-
safnskerfi um umferð, álag og
fleira sem tengist vinnslu sím-
stöðvanna. Upplýsingarnar eru
birtar á myndrænan hátt og eiga
að auðvelda starfsmönnum eftirlit
og umsjón með stöðvunum.
Einnig má nefna þjónustukerfi
fyrir þjóna og kokka á veitinga-
húsum sem er forritað í Delphi 2.0.
Það er skrifað í samvinnu við
Hugbúnað hf. og vinnur á móti
afgreiðslukerfi sem fyrirtækið
hefur þróað og flytur lit. Forritið
mun hafa mjög myndrænt viðmót
og samskipti flestra notenda verða
um snertiskjá frernur en lyklaborð.
Nemendur notuðu hönnunaifomt-
ið Select sem er mjög öflugt verk-
færi fyrir hlutbundna hugbúnaðar-
gerð. Þetta verkefni er skrifað á
ensku með alþjóðlegan markhóp í
huga.
Ólík viðfangsefni
Loks má nefna verkefni í sam-
vinnu við Fakta hf. sem varðar
flutning gagna af AS/400 yfir á
CD-ROM. Markmiðið er að gera
notendum kleift að geyma eldri
gögn á handhægu formi ásamt
rýniforriti til þess að hægt sé að
nálgast upplýsingar hratt og ör-
ugglega. Ýmsar ástæður og sumar
lögbundnar eru fyrir því að fyrir-
tæki þurfa að varðveita gögn árum
saman, en jafnframt hefur orðið til
þörf fyrir að geta nálgast afmark-
aðar upplýsingar hratt og örugg-
lega. Þetta er oft tímafrekt og erfitt
t.d. vegna þess að gögn eru geymd
á segulböndum og jafnvel eru ekki
til forrit lengur sem geta lesið og
birt gögnin!
Opin kynning
Að þessu sinni eru tólf verk-
efni í smíðum og hér er ekki tæki-
færi til að lýsa þeim öllum og ein-
ungis verið stiklað á stóm varðandi
þau viðfangsefni sem talin voru
upp.
Sjón er sögu ríkari! Dagana 15.
og 16. maí næstkomandi munu
nemendurnir kynna og sýna verk-
efnin sín íTölvuháskólanum. Hver
hópur hefur um klukkustund til
þess að sýna verkefnið og svara
spurningum. Kynningin verður
nánar auglýst í blöðurn og eru allir
velkomnir.
Helga Sigurjónsdóttir er
tölvunarfræðingur og að-
stoðarkennslustjóri við TVI
Punktar...
Nýr biðill fyrir hljóð
og mynd
Nýverið setti fyrirtækið
Progressive Networks á Netið
nýjan biðil fyrir hljóð og
mynd. Með honum má tengja
við hljóðmiðlara, til dæmis hjá
RUV og við myndmiðlara og
skoða myndir sem era vistaðar
sem skrár eða í beinni útsend-
ingu. Gæðin eru afar mismun-
andi en við bestu aðstæður urn
ISDN línur má fá sörnu hljóð-
gæði og á geislaplötum en þá
er hraðinn 80.000 bitar/sek. og
alveg ágæt myndgæði eru
þegar hraðinn er 45.000 bitar/
sek.
Slóðinn er www.real.com
og þangað má sækja að auki
miðlara til reynslu í 30 daga
en höfundur þessara lfna setti
einn slíkan upp og það tók ekki
nema eina klukkustund að
koma honum í gang (þrátt fyrir
nánast engar leiðbeiningar!).
Intel hefur kynnt til sög-
unnar tækni sem fyrirtækið
nefnir Application Launch
Accelerator og er ætlað að
hraða ræsingu forrita og er
dæmi tekið um að það taki 3,7
sek. að ræsa helstu forrit
Microsoft með ALA, í stað
tæpra 12 sekúndna áður. Intel
er í sanrstarfi við nokkra tölvu-
framleiðendur um að korna
þessari tækni til neytenda.
APRÍL 1997 - 9