Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 30
TOLVUMÁL
Raunveruleg
flutningsgeta K56
mótalda
Spurningin er þá hversu hratt
er hægt að flytja gögn með þessari
nýju aðferð. Hér á undan kom fram
að 64 kb/s er ekki raunhæfur
möguleiki. Ástæðan fyrir því er að
stafræni sendibúnaður símstöðv-
anna er hannaður með flutning á
tali í huga. Til að hægt væri að nýta
hann fullkomlega til flutnings
gögnum þyrfti hreinleiki merkisins
á sfmalínunni að vera mjög mikill.
Styrkur merkisins þyrfti að vera
c.a. 80 dB yfir suðstyrknum, en
slíkum hreinleika er ómögulegt að
ná á venjulegum símalínum. Sem
betur fer minnka kröfur til merkis-
suðshlutfalls mjög hratt eftir því
sem við sláum af flutningshrað-
anum. Við 56 kb/s er krafan komin
niður í c.a. 52 dB.
En hvaða hraði næst í raun og
veru? Svarið við þeirri spurningu
fer eftir gæðum línanna sem unnið
er á. Fyrsta kynslóð þessara mót-
alda mun geta sent allt að 56 kb/s
niðureftir (frá IÞ til notanda) og
allt að 33,6 kb/s uppeftir (frá
notanda til IÞ). Það má þó búast
við að 44 - 48 kb/s verði algeng-
asti hraðinn, að 52 kb/s náist oft
en 56 kb/s náist einungis á allra
bestu línum. 28,8 kb/s mun vænt-
anlega verða algengasti hraðinn
sem menn sjá uppeftir. I síðari kyn-
slóðum þessara mótalda mun
væntanlega mesti hraði uppeftir
aukast úr 33,6 kb/s upp í 40 kb/s
og hærri mörkin niðureftir munu
líklega verða algengari.
Til að K56 mótald nái einhverri
hraðaaukningu umfram V.34 þarf
annar aðilinn (Internet þjónustu-
aðilinn) að vera með stafræna
tengingu frá sínu K56 mótaldi og
upp í símstöð. Stafræn tenging
getur t.d. verið ISDN tenging eða
háhraðanet. Hinn aðilinn (notand-
inn) tengir hinsvegar sitt K56 mót-
ald við símalínu eins og um venju-
legt V.34 mótald væri að ræða. Ef
stafræn tenging er ekki fyrir hendi
skiptir mótaldið yfir í V.34 ham og
vinnur sem slíkt.
Eins og önnur mótöld finnur
K56 út í byrjun mesta hraða sem
bæði geta sent á og notar síðan
þann hraða. Notandinn þarf þvf
ekki að vita hvort hinn endinn sé
Mynd 4. Internet Þjónustuaðili með stafrœna tengingu upp í símstöð.
30 - APRÍL 1997