Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 22
TOLVUMAL
TxJ sdr:g u n narg@getz
New Calendar Rrefs Help Quit
Putalic Sessions
Camegie Melion University Holiday Ooncert
CBC Newsworld On-Line Test
CERN - ATLAS Physics and Plenary meetings
cisco CCIE Forum
FreeBSD Lounge
General Motors Buick Announcement
Interop Sydney
KTIS 96 (Korea Telecom)
MBone RTP Audio
NASA-Space Shuttle STS-80 Cöverage
SGI HPC Australian Users Meeting Keynote Talk
Test of Wín32 SD/SDR
The incneasingly virtual G11 (private)
Tirkistys II
UCB Multimedia Seminar
UMich IRL (private)
USC-CS dgroup VR conference room (private)
UCL Session Directory vZ.3a1
Sdr er n.k. dagskrárgluggi MBONE netsins
Tenging við
MBONE netið
Til þess að setja upp
tengingu við MBONE þarf sá
þjónustuaðili Intemetsins sem
verslað er við að vera tengdur
MBONE netinu
Hægt er að nálgast
„mrouted“ hugbúnaðinn í
gegnum netið og er hann
fáanlegur fyrir flest afbrigði af
UNIX (þar með talið LINUX).
Fjölvarpsviðbætur (e.
multicast patches) fyrir UNIX
kjarna er einnig hægt að
nálgast í gegnum netið.
Niðurstaða
Við höfum séð mjög örar
framfarir í kóðunartækni fyrir
tal, hljóð, kyrrmyndir og
hreyfimyndir á síðustu
misserum. Má þar nefna að
hægt er að fá kóðara (e. en-
coder) sem gera mönnum kleift
að senda tónlist í stereo um
28.8 kbps mótald (sbr.
RealAudio útg. 3.0) með vel
ásættanlegum gæðum.
Alþjóða fjarskiptastofnunin
(ITU) staðlaði á síðasta ári
kóðunaraðferð fyrir tal til
notkunar í margmiðlunarmót-
öldum (H.324) og er flutnings-
þörfin 5.3 kbps.
Þrátt fyrir að þessar framfarir
leiði til þess að fleiri geti notað
Internetið til flutnings á marg-
miðlunarefni tel ég að það komi
fljótt til með að stíflast ef margir
fara að flytja þess konar efni yfir
netið, slíkur er vaxtarhraði í fjölda
notenda þess.
Ég tel að tækni sem fjallað var
um hér að framan sé fyrsta skrefið
í þá átt að láta draum notenda
netsins um gagnvirka margmiðlun
rætast. Næsta skref kemur í kjölfar
tækni sem kallast RRSP (Resource
Reservation Setup Protocol) og
síðar ATM sem tryggir notendum
fyrirfram ákveðin gæði allan þann
tíma sem þeir eru tengdir. Slík
gæði eru langt frá því að standa
notendum Internetsins til boða í
dag.
Frekari upplýsingar
http://www.mbone.com/
http://www.merit.edu/
ftp://ftp.isi.edu/mbone/
ftp://playground.sun.com/pub/
http://www.stones.com/mbone/
V. Kumar, Mbone: Interactive
Multimedia on the Internet, In-
diana, USA, New Riders Pub-
lishing, 1996.
H. Eriksson, „MBONE: the
multicast backbone“,
Commun. ACM Vol 37., No.
8, August 1994, p. 54-60.
Gunnar Guðmundsson er
rafmagnsverkfræðingur og
tölvunarfrœðingur og starfar
í Símstöðvadeild Pósts og
síma hf.
22 - APRÍL 1997