Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 18

Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 18
TOLVUMÁL Kynning: Ný tækni á íslands - stafræn prentun í lit Effir Pélur Pélursson Offsetþjónustan hefur fest kaup á fyrstu stafrænu prentvélinni á íslandi. Tölvuprentvélar hafa und- anfarin ár verið að ryðja sér til rúms á erlendum mörkuðum og þjóna þær mjög vel þeim hópum viðskiptavina sem þurfa smærri upplög. Vélin sem Offsetþjónustan á og rekur er af gerðinni Xeikon DCP/32D og er af fullkomnustu gerð slíkra véla. Kostir stafrænnar prentunar umfram offsetprentun eru m.a. hagsætt verð á smáum upplögum og styttri afgreiðslutími. Til að mynda getur vélin prentað, brotið og heftað 24 síðna litríkan bækling í A-4 broti á innan við tveimur klukkustundum. Engin þörf er á filmu- og plötuvinnslu, því hægt er að senda prentgögnin beint frá tölvu til prentvélarinnar. Helstu viðfangsefni tölvu- prentunar fram til þessa hafa verið margs konar kynningarefni, vöru- Frh. affyrri síðu metnaðarfullu breytingar á vinnu- ferlum var nauðsynlegt að gera gagngerar breytingar á tölvukerfi fyrirtækisins. I raun var allt tölvu- kerfi fyrirtækisins, að undanskild- um vinnustöðvum, endurnýjað. Endurgerð vinnuferla og þeirri endurtölvuvæðingu sem hér hefur verið lýst er nú að ljúka. Verkefnið listar, bæklingar, fréttabréf, kort og margt fleira - það má því með sanni segja að hugmyndaflugið ráði svolítið ferðinni þegar stafræn prentun er annars vegar. Kostnaðurinn er mun lægri en í hefðbundinni prentun þegar um lítið upplag er að ræða. Frá upp- hafi er kostnaðurinn jafn mikill á hvert eintak og fer ekki að bera í milli stafrænnar prentunar og off- setprentunar fyrr en í rúmum þús- und eintökum. Tæknin býður upp á marga möguleika - t.d. þarf ekki að eyða tíma í pappír og innstillingu. Vélin er forrituð fyrir fjölmargar papp- írsgerðir og veit nákvæmlega hvernig bregðast á við varðandi prentgæði þegar valin er ákveðin tegund af pappír. Utkoman er því alveg sæmbærileg í stafrænni prentun- og jafnvel betri en í hefð- bundinni offsetpentun. Tölvu- prentvélin prentar á pappír af rúllu hefur náð yfir 2 ár og er búið að vera fyrir starfsfólk mikil en um leið gefandi vinna, sérstaklega fyrir þá sök að þeir sem hafa komið að þessu eru sannfærðir um að hafa lagt stórt lóð á þá vogar- skál að gera fyrirtækið í stakk búið til að standa sig enn betur á erfiðum markaði um ókomin ár. og beggja vegna á pappírinn í sömu umferð í fullum litum. Með hjálp sýndarplatna þekur prent- liturinn pappírinn, sem hefur verið rafmagnaður með háspennugjafa áður en prentliturinn er settur á hann. Afgreiðslutíminn er bylting. I hefðbundinni prentun, t.d.bæklings í fullum lit, er meðalvinnslutími um tíu dagar og er þá miðað við að honum sé skilað tilbúnum til vinnslu á tölvutæku formi. Með tölvuprentun er hægt að afhenda sambærilegan bækling á tveimur til þremur dögum. Fjölmargir viðskiptavinir hafa nú nýtt sér þjónustuna og eru að vonum ánægðir með góða útkomu, stuttan afgreiðslutíma og hagstætt verð. Offsetþjónustan er til húsa í Faxafeni 10,108 ReykjavíT. Sími 568-0808 og fax 553-5400. Steingrímur Hólmsteinsson er rekstrarstjóri tölvukerfa Olíufélagsins hf Viðar Viðarsson er fyrrv. forstöðumaður Upplýsinga- tœknideildar Olíufélagsins hf. og núverandi framkvœmda- stjóri Rekstrarsviðs Pósts og síma hf. 18 - APRÍL 1997

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.