Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1997, Qupperneq 10

Tölvumál - 01.04.1997, Qupperneq 10
TOLVUMAL Ráðstefna um Internetið - taktu þátt í þróuninni! Effir Staurð Jónsson Næsta NORDUnetráðstefna um Internetið, sú 16. í röðinni, verður haldin á íslandi 29. júní til 1. júlí. En hefur ekki einmitt Inter- netið gengið af ráðstefnum af þessu tagi dauðum? Ekki aldeilis. Það kemur aldrei neitt í staðinn fyrir að lfta upp úr daglegum önn- um og taka púlsinn á þróuninni með alvöru persónu yfir raunveru- legum kaffibolla. Margvísleg tæki- færi verða til að endurnýja kynni og stofna til nýrra: Móttaka í Ráð- húsi Reykjavíkur, kvöldverður í Perlunni og kynnisför að Nesja- völlum og Þingvöllum. Setningarathöfn Lagasjónarmið á Internetinu hafa verið áleitin viðfangsefni um allan heim og sums staðar valdið hatrömmum deilum. Löggjafinn er nú sem óðast að vakna til vitundar um sérstöðu Intemetsins og einn þeirra sem hefur kynnt sér þessi mál sérstaklega er Mads Bryde Andersen prófessor í Hafnarhá- skóla. Starfsemi símafélaga er í mik- illi endurskoðun og uppnámi víða um heim og sitt sýnist hverjum um hlutverk þeirra á Internetinu. Þessi eldfimu mál verða kmfin til mergj- ar á ráðstefnunni. Frændur okkar á Norðurlönd- um hafa með samstarfi í NORDU- net og stuðningi opinberra aðila náð ágætum árangri í netvæðingu og megum við enn margt af þeim læra. Oft á tíðum hefur verið þyngra undir fæti þegar reynt hefur verið að koma á samstarfi sem nær til Evrópu allrar enda mun fleiri og ólíkari sjónarmið og hagsmunir í húfi. Um þessa þróun fjalla Pe- ter Villemoes, framkvæmdastjóri NORDUnet og David Hartley yfir- maður UKERNA, breska mennta- og rannsóknanetsins. Vonast er til að Martin Bangemann, yfirmaður fjarskiptamála hjá Evrópusam- bandinu ávarpi ráðstefnuna við þetta tækifæri. Skipulag Internetsins Oft er látið í veðri vaka að Internetið sé óskipulegur óskapn- aður sem breiðist út eins og hvert annað illgresi sem enginn hafi minnstu stjórn á. Þetta er auðvitað fjarri öllum sanni. Margvísleg samræming og skipulagning fer stöðugt fram til að tækniþróunin og hagnýting hennar haldist í hendur. Sem dæmi má nefna starf CERT að öryggismálum og úthlut- un svæðisnafna eða netléna (do- main). Reglur um úthlutun léna hafa verið nokkuð á reiki og nú er útlit fyrir að farið verði að úthluta undir nýjum yfirlénum. Miklar hræringar, sem ganga undir nafninu Internet 2, eru fram- undan í uppbyggingu Internetsins meðal háskóla og rannsóknastofn- ana í Bandaríkjunum með stuðn- ingi ríkisins og gætu haft mikil áhrif langt út fyrir Bandaríkin. Um þessa þróun fjalla Raman Khanna frá Stanfordháskóla, formaður stefnumótunarnefndar Internet 2, og fulltrúi National Science Foun- dation. Upplýsingaveitur á Internetinu Enginn sem koma þarf frá sér upplýsingum, hvort heldur er á mæltu máli, í myndum eða tali og tónum getur lengur leyft sér að hunsa Internetið. Bókasöfn, dag- blöð, verslanir, útvarps- og sjón- varpsstöðvar og aðrir útgefendur sjá í netinu kost sem getur gert allan heiminn að þeirra markaðs- svæði. En hvernig? Hvað þarf til? Við heyrum af margvíslegri reynslu við að koma gagnasöfnum á netið og sjá til þess aðgangur að þeim sé góður gegnum veraldar- vefinn. Inernetið og samfélagið Því er spáð að netvæðingin verði ein af mestu byltingum sög- unnar. Algjörlega ný viðhorf eru að skapast í öllum samskiptum manna. Hver áhrif þessa verða á menntun og menningu, höfundar- rétt og dreifingu upplýsinga er að mörgu leyti óráðin og spennandi gáta. Stendur netið af sér tilraunir til ritskoðunar eða verður þróun netsamfélagsins heft og þar með eyðilögð? Tæknileg þróun Internetsins Þeir eiga ekki alltaf sjö dagana sæla sem bera hitann og þungann af að finna sífellt nýjar og betri Frh. á bls. 12 10 - APRÍL 1997

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.