Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 14

Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 14
TÖLVUMÁL sjálfseignarstofnanir og ýmis félög einkaréttarlegs eðils s.s. hluta- félög, samvinnufélög og sameign- arfélög jafnvel þótt þau séu í opin- berri eigu eða rekin á kostnað ríkis eða sveitarfélaga. Hafi rekstrar- formi opinberrar stofnunar eða fyrirtækis verið breytt í einkarétt- arlegt rekstrarform, eins og t.d. hlutafélag, fellur hlutafélagið sem slíkt utan við gildissvið laganna eftir þá breytingu. í þessu tilliti er þó rétt að benda á að sé hlutafélag í eigu rfkis eða sveitarfélags taka upplýsingalögin til gagna er liggja í ráðuneyti eða hjá sveitarstjórn og hafa að geyma upplýsingar um eignarhald þessara opinberu aðila á félaginu. Meginregla upplýsingalaganna er í 1. mgr. 3. gr. og býður að allir geti krafist aðgangs að gögnum hjá stjórnvöldum með þeim takmörk- unum sem greinir í 4. - 6. gr. uppl. Aðalatriði þessarar meginreglu, og það sem greinir hana frá flestum öðrum reglum um aðgang að gögn- um hjá stjórnvöldum, er það að einstaklingar og lögaðilar, þ.m.t. fjölmiðlar, eiga lögum samkvæmt rétt til aðgangs að gögnum mála innan stjórnsýslunnar án þess að þurfa að sýna fram á tengsl við málið eða aðila þess og án þess að þurfa að sýna fram á hagsmuni af því að fá eða nota umbeðnar upp- lýsingar. í því felst jafnframt að sá er upplýsinganna beiðist þarf ekki að tiltaka ástæður fyrir beiðni sinni en af því leiðir t.d. að óheimilt væri að synja um aðgang á þeim grundvelli að ætla megi að upplýs- ingarnar verði birtar. Á hinn bóginn getur birting eða notkun upplýsinga sem aflað er á grund- velli upplýsignalaga varðað við lög, svo sem höfundarlög og al- menn hegningarlög, og sætt ábyrgð eftir almennum reglum. Framangreind meginregla gildir óskorað innan gildissviðs laganna og víkur innan þess aðeins fyrir þeim takmörkunum og und- anþágum sem tæmandi eru taldar í 4. - 6. gr. laganna. Undanþág- urnar eru afmarkaðar með tvenn- um hætti. Annars vegar formlega þannig að tiltekin gögn sérstaks eðlis eru undanþegin upplýsinga- rétti í 4. gr., en hins vegar efnislega í 5. og 6. gr. þannig að ákveðnir hagsmunir standi því í vegi að upplýsingar verði veittar. Áður er þess getið að sá mótbyr sem fyrri frumvörp um sama efni mættu, hafi einkum beinst að þess- um undanþáguákvæðum; mönnum hafi þótt þau of fyrirferðarmikil og vaxið þær í augum í samanburði við meginregluna. í frumvarpi þvf er varð að upplýsingalögum var því farin sú leið að hafa þær færri og orða þær með almennari hætti en áður hafði sést bæði hér og annars staðar á Norðurlöndum. í staðinn er inntak ákvæðanna hins vegar undirorpið túlkun í meira mæli en annars hefði verið. Þessi aðferð þótti m.a. tæk með því að um leið var komið á fót einu kærustigi fyrir allar ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli undan- þáguákvæðanna þar sem túlkun þeirra sætir endurskoðun á hlut- lægum og óháðum grundvelli. Hins vegar var með ýmsum hætti leitast við að draga úr áhrifum undan- þáguákvæðanna eftir því sem aðstæður leyfa. Þannig er í 7. gr. laganna mælt fyrir um að veita skuli aðgang að öðrum hluta skjals en þeim sem undanþáguákvæði kann að taka til. I 3. mgr. 3. gr. er lagt til að fest verði í lög sú óskráða regla sem stjórnvöld hafa hingað til stuðst við og nefnd hefur verið reglan um aukinn aðgang að gögnum, en af henni leiðir að stjórnvöldum verð- ur eftir sem áður heimilt að veita rýmri aðgang að gögnum en leiðir af meginreglu laganna og þeim undantekningum sem hún sætir svo fremi að þagnarskylduákvæði í öðrum lögum standi því ekki í vegi. I 8. gr. eru ákvæði sem fella brott þær takmarkanir sem undanþág- urnar veita að tilteknum tíma liðn- um, en þá er litið svo á að hags- munirnir sem þeim er ætlað að verja hafi ekki ævarandi gildi heldur dvíni með tímanum. Þá er í lögunum gerður greinar- munur á aðgangi almennings og aðgangi þess er upplýsingar varðar án þess að mál hans sé til meðferð- ar í skilningi stjórnsýslulaga. Olafur Davíðsson er ráðu- neytisstjóri í forsœtisráðu- neytinu Leysum upplýsingaþörf morgundagsins í dag Höfðabakka 9-112 Reykjavík - Sími 587 5888 - Fax 587 5887 Netfang - sagis@centrum.is - http://www.softwareag.com 14 - APRÍL 1997

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.