Vísir


Vísir - 02.11.1962, Qupperneq 8

Vísir - 02.11.1962, Qupperneq 8
k 8 V í SIR . Föstudagur 2. nóvember 1962. Utgefandí: Blaðaútgatan VISIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn 0. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifstargjald er 55 krónur á mánuði. 1 lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 llnur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Vinnulöggjöfin sökudólgurinn Margt einkennir greinar málgagns kommúnista- flokksins fremur en sanngirni. í forsíðufrétt í gær er veitzt hatrammlega að útgerðarmönnum og þeim borið á brýn að þeir valdi þjóðinni stórtjóni með því að semja ekki í síldveiðideilunni. Með sama rétti mætti segja að verkamenn í Dagsbrún baki þjóðinni stórtjón er þeir gera verkfall. Svo rangur málflutningur er engum til góðs og málstaður þeirra manna, sem þannig rita er sannar- lega slæmur. Hér er raunverulega látið að því liggja að annar aðilinn eigi skilyrðislaust að ganga að kröfum hins. Það á með öðrum orðum að afnema samninga- frelsið. Þessi vandkvæði sýna enn Ijósar en nokkru sinni áður að við högum okkur eins og molbúar í þessu efni. Hvorki ber að ásaka útgerðarmenn eða sjómenn. Þeir vilja báðir halda sem bezt á málum sínum og það er eðlilegt. Það sem úrelt er og óhæft er það fyrirkomulag kaupgjaldsmála sem Ieiðir til slíkra vandræða. Vinnu löggjöfin er úrelt. Hún er sökudólgurinn. Allir flokksbræður! Þegar Eysteinn var f jármálaráðherra skipaði hann 9 skattstjóra í embætti. Þeir voru allir flokksbræður Eysteins. Síðan ætlar Tíminn sér þá dul að ráðast að f jár- málaráðherra fyrir nýlegar veitingar skattstjóra- embætta. Þeir menn sem fjármálaráðherra hefir skip- að í hin nýju skattstjóraembætti fullnægja allir ströng um kröfum laga um menntunar og hæfnisskilyrði. Þegar Eysteinn var ráðherra setti hann hins vegar engin skilyrði utan þess eina, sem fyrr er getið. Mennt- unarskilyrði voru engin sett, enda ómenntaðir menn skipaðir. Því fer það Tímanum illa að kasta steinum úr glerhúsi. Lánin til bænda Hygla bankarnir sjávarútveginum í lánum, en láta landbúnaðinn sitja á hakanum? Framsóknarmenn hafa talið það og Tíminn reynt að læða því inn hjá bændum, til rógs stjórninni. En þetta er rangt eins flest annað sem í því blaði stendur um þjóðmál. Liandbúnaðarmálaráðherra upplýsti að 1956—1959 vorut úfurðalánin nákvæmlega hin sömu til beggja at- vinnugreinanna. 1960 var heldur meira lánað út á land- búnaðarafurðir og 1961 var aftur jafnræði komið á. Þessu jafnvægi þarf að viðhalda og sízt er bænd- um greiði ger með tilraunum til þess að læða inn tor- tryggni hjá þeim með fölskum upplýsingum um lána- málin. Edith og Eggert Guðmundsson úti fyrir islenzkum bóndabæ. Editb Guðmundsson í IRLAND í fortíð og nútíð Fram að þessu hafa lslending- ar verið nrcsta fáfróðir um írland þótt svo skammt sé milli land- anna og náin, söguleg tengsl séu Keltneska milli íslendinga og íra. Það er aðeins fjögurra stunda flug til Dyflinnar með viðkomu f Glas- gow. ar hamingju ekki eða þau vanda- mál, sem af því stafa. Það fyrsta, sem maður rekur augun í, þegar farið er á skipi frá Englandi til írlands, er að maður er á leið til lands, þar sem kaþólsk trú hefir mjög sterk ítök í þjóðinni. Nunnur og prest- ar verða strax á vegi manns. Það er furðulegt, hve ungar nunn- urnar eru. Við urðum þess síðar áskynja, að þegar stúlkurnar eru orðnar 14 ára, heimsækja nunn- ur skólana og spyrja þær, hverj- ar hafi hug á að ganga í klaust- ur. Að jafnaði gefa sig fram tvær eða þrjár úr 30 stúlkna bekk. Baráttan milli trúarbragða. Innsiglingin til Dyflinnar er við kunnanleg og vinaleg. Jafnskjótt og stigið er á land, kemst mað- ur í snertingu við gestrisna, vin- samlega og hjálpfúsa íra, jafnvel tollverðir óska manni þægilegr- ar dvalar í landinu. Hvar sem maður fer, minnir landsfólkið mann á íslendinga — manni finnst, að gamalkunn andlit séu hvarvetna. Dyflin er ciðkunnanleg 550 þijsund manna borg og er þar fjöldi fagurra og rögulegra bygg inga, meðal annars söfn með gömlum og nýjum listaverkum. Trinity College er háskóli mót mælenda, og á bókasafn hans ágætt safn góðra, fornra bóka og handrita, sem eru allt frá sjöttu öld. Dýrmætasta eign safnsins er „The book of Kelt“, biblían frá 8. öld. Kaþólskir eiga einnig sinn háskóla og dýrmætt bókasafn. En maður hefir ekki verið lengi í landinu, þegar maður tek- ur eftir óviðkunnanlegri baráttu milli kaþól. ' .a manna og mót- mælenda, en slíka baráttu þekkj- um við Norðurlandabúar til allr- skyldunámsgrein. Ibúar austurstrandarinnar tala ensku, en keltneska (gaeliska) er skyldunámsgrein í skólum. Þessi forna tunga hefir ekki öðlazt vin sældir, og unga fólkið nennir naumast að læra hana, og talar hana illa. Einstöku menn hafa mikinn áhuga á varðveizlu hinnar fornu tungu eyjaskeggja, en þeir eru í algerum minnihluta, Götunöfn og staðarnöfn öll eru á tveim tungum, ensku og kelt- nesku. Liffey-fljót rennur gegnum borgina og á sinn þátt í að gera Dyflin að mikilvægri hafnar- borg með stórri skipasmíðastöð. Fyrri grein Borgin er umlukt skógivöxnum fellum, og í ströndinni eru vík- ur og vogar með þægilegum bað- ströndum. Austur- og miðhluti landsins er frjósamur og blóm- legur, og þegar farið er þar um, er það eins og að aka um skrúð- garð. Það er því ekki að undra, þótt frland sé kallað „eyjan græna“ Loftslagið er svipað og á íslandi, en þó mildara. Snjór sést sjaldan, og ef snjóföl gerir. tekur það strax upp. Varðturnar gegn víkingum. Einkennilegast er að sjá, hvar vetna þar sem maður fer um, steinveggi, sem hlaðnir eru með vegum og annars staðar. Þeir hlykkjast um landið þvert og endilangt, en meðfram vegunum er líka blómskrúð mikið, og ber mest á hinu rauða blómi, sem „fuchsia" heitir. Hingað og þangað má sjá sí- vala turna, en þó eru þeir tíðast- ir í austurhluta landsins. Turnar þessir eru um 30 metrar á hæð, en 15 metrar í þvermál, og dym- ar á þeim eru meira en mannhæð frá jörðu eða hálfan fjórða metra. Turnar þessir eru á víð og dreif um landið, og eru þeir frá 9., lo. og 11. öld. Þetta voru varðturnar endur fyrir löngu, til þess að menn gætu fylgzt þar með ferðum danskra víkinga, sem oft gerðu strandhögg á þess- um slóðum, og leitað hælis í þeim, ef víkingar herjuðu land- ið. Turnar þessir eru byggðir 1 rómverskum stíl, hinum sama stíl og varð síðar áberandi á írskum kirkjubyggingum. Glendaloch. Einhver skemmtilegasti stað- urinn, sem hægt er áð heimsækja er Glendalochi, sem er tæpa 60 km. frá Dyflin. Þar er að finna rústir þorps nokkurs, sem stofn- að var á 5. eða 6. öld — en þar voru um eitt skeið hvorki meira né minna en sjö kirkjur. Maður ekur inn í yndisfagran dal, og eru í honum miðjum tvö stöðuvötn, en á milli þeirra ás eða háls. Granítfjöll eru beggja vegna dalsins, en í hlíðum hans vaxa fornar eikur og furutré. Heilagur Kelvin var fyrsti dýr- lingurinn, sem settist þarna að til að njóta friðar og einveru Hann reisti kirkju og klaustur, og síðan voru reistar fleiri kirkj- ur á staðnum, unz þær voru orðn ar sjö og jafnframt óx upp þorp umhverfis þær og hina helgu menn, sem leituðu til þessa stað- ar. Síðar dró heilagur Kelvin sig í hlé og settist að í skúta einum, til að geta notið þar algers frið- ar, og hafðist hann þar við í sjö ár samfleytt. Hann andaðist ár- ið 618. Annað er og mjög einkennandi fyrir írland, og það eru hinar fjölmörgu rústir klaustra, kirkna og halla, sem gefa manni góða hugmynd um, hversu blóðug saga landsins hefir verið. Rústir þær, sem fyrst eru taldar, mega skrifast á reikning Thomasai Framhald á bls. 13. ■» (■ i t T» ti:. \ ,V'

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.