Vísir - 13.11.1962, Page 15

Vísir - 13.11.1962, Page 15
VlSIR . Þriðjadagur 13. növember 1962. THE APE-AUN HELPE7 HUGH JOHNSON »AC< TO BATEAA5AJHE WHITE SETTLE' WENT THAT HAP BEEN INVA7E7 5V JUNGLE CATS. _______ SAC< AT HIS OUARTEKS, HUSH ATE AN7 AA7E HIMSELF COMFOKTABLE, HOPING TO GET A CHANCE TO KECOVEK FULLY FKOA\ HIS WOUN7S... 2-7-?777 VANfuCftl JOH^ A CaAf.90 SUT SUP'7ENLY THEY VVEKE ALEKTE7 BY FKANTIC SCKEAWS' TERROKHA7STRUC< AGAINt ' ,,M td*»r Rle. lunwih.. 1*€ —Tm. Vf o. R. r»t oa. “ DUtr^ by Unlted Feature Syndlcatc, Inc. —- og Collins kastaði mannin- um út. Það var eins og Sir John hefði orðið fyrir miklu áfalli. Hann fálmaði sig áfram að hæg- indastól, settist og huldi and- litið í höndum sér og mælti svo: — Þér þekkið illa Englend- inga, ef þér haldið, að svo hneykslanleg framkoma sem þessi verði talin afsakanleg eins og um einhverjar kenjar væri i að ræða. Þér hafið ófrægt sjálfa yður svo ekki verður um bætt. Við Englendingar erum siðavand ir menn þrátt fyrir kenjar okk- ar og sérvizku á yfirborðinu. Það, sem þér hafið gert, er allt annars eðlis ... En Karólína greip fram í fyrir honum alls ósmeyk. — Ég tel, að ég hafi unnið mér rétt til þess að lifa lífinú eins og mér þóknast. Það má vera, að mér bæri að taka ávít- um af bróður mínum, en alls ekki af yður. En þar sem ég hef nú fengið á mig slæmt orð og það gæti orðið til álitshnekk is og tjóns yður og heimili yð- ar, munnég þegar láta senda farangurinn minn í gistihúsið „Krákurnar þrjár“, þar sem syst mín býr og fyrrverandi fram, að ég mun ávallt minnast með þakklæti þeirrar gestrisni, sem þér og Sulpicia hafið sýnt mér. ■ Hún hafði búizt við, að lá- varðurinn mundi mótmæla af ákafa, en hann stóð upp, hneigði sig og sagði eins og honúm veitt ist það erfitt: — Þér verðið ávallt yelkom- inn gestur hjá okkur. Þegar hann var farinn út, stappaði Karólína í gólfið af reiði og skömm. Sama síðdegi flutti hún í Krákumar þrjár — glæsilegustu herbergin, sem þar var að fá, og skipaði svo fyrir, að henni skyldi færður matur í íbúðina. Hún vildi sem minnst — og helzt ekkert hafa saman að sælda við systur sína og d Tourville. Næstu daga hélt hún kyrru fyrir í íbúð sinni. Hún saknaði Johns lávarðs og konu hans og þátttökunnar í samkvæmislífinu með þeim: Það hafði alltaf ver- ið líf og fjör i kringum þau. Nú var hún einmana. Henni mundi hafa fundizt að hún væri alveg ein og yfirgefin, ef Collins hefði líka brugðizt henni. En hann gerði það ekki. Og hún tók kennslúkona okkar. Ég vil taka | gleði sína aftur og hugsaði til komandi tíma. Hún gerði sér í hugarlund, að hún ætti eftir að koma aftur til Parisar frjáls og hamingjusöm, og þá gæti hún gifzt Gaston. Hún minntist París arborgar í sólskini, Signubakka, Louvre .... Síðdegi nokkurt hafði hún enga eirð í sér og ákvað að aka um bæinn .Og í ökuferðinni um fegurstu götur borgarinnar var hún niðursokkin í drauma sína um framtíðina og Gaston. Daginn eftir kom þerna henn- ar og sagði henni á slæmri frönsku, að liðsforingi úr flota- málaráðuneytinu óskaði að hafa tal af henni. Hún gekk niður í móttökusal- inn, þar sem horaður, alrakaður, dökkklæddur maður sat og beið hennar. — Henri! hrópaði hún allt í einu. Hefur eitthvað komið fyr- j ir hann? Þetta lagðist í hana af svo miklum þunga, að hún gat ekki stillt sig um að spyrja, en hún hafði varla sleppt orðinu, fyrr en hún sá hve barnalega hún hagaði sér. En liðsforinginn, sem hafði staðið upp, hneigði sig og mælti alvöruþrungnum rómi: — Frú, verið hugrakkar! Mér hefur verið lögð sú þunga skylda á herðar, áð tilkynna yður fyrir hönd F,''+'imálaráðuneytisins, ^ mjög það, sem •P’-zt hctur . .. i Hún stóð sem steini lostin, en gestur hennar hélt áfram. — Bróðir yðar fél. Hann og menn hans réðu til uppgöngu á franska skipið Tempéte og skip- herrann á því varð banamaður bróður yðar með sverðsstungu í brjóstið. Konungurinn hefur á- kveðið að heiðra minningu hins vaska bróður yðar með gull- heiðurspeningi flotans. — Þökk, herra... ég vildi gjarnan fá að vera ein ... ©PIB CCFF NUAGEN Hafið þér ekki borð sem er dálítið lengra frá 3. farrými? Liðsforinginn hneigði sig og fór. Karólínu langaði mest af öllu til þess að fara að hátta — reyna að sofna, gleyma. Það var næstum eins og öll lífslöngun hyrfi henni í svip, en hún hark- aði af sér og hringdi á þernu og sendi hana eftir Loiuse og de Tourville. Þegar þær komu sagði hún þeim tíðindin af ró og still- ingu. Louise varpaði sér þegar í faðm de Tourville og brast í grát. Og Karólína gekk til þeirra og gleymdi nú öllum ágreiningi, sem verið hafði þeirra milli, og grét einnig og syrgði með þeim ... og er hún svo fór f háttinn vissi hún, að nóttin yrði erfið andvökunótt. Og henni kom ekki dúr á auga ... Fréttin um fall Henri hlaut að hafa breiðzt hratt út um Lund- únaborg, því að margir komu til þess að votta henni samúð, en hún tók ekki á móti neinum. Og svo fóru einnig aðrir að koma með svip samúðarinnar á ásjónum sínum — en það voru þeir, sem Karólína skuldaði fé, og vildi nú vera vissir um, að Fíat árgangur 1959 keyrður 22000 km. Plymouth station árgangur ’56 4 dyra. Verð kr. 90.000 . Greiðist með vel tryggðum víxlum eða vel tryggðu fasteignabréfi. Austin station árgangur ’55 í góðu standi kr. 50.000. Útborgun sem mest. Ford árgangur ’55 bólksbíll í toppstandi 6 cil. beinskiptur kr. 70.000 útborgað. Ford sendiferðabíll árgerð ’55 í góðu standi. Samkomulag um greiðslu. Ford station árg. ’55 í góðu standi. Samkomulag um verð og greiðslur. Chevrolets station árg. ’55 í mjög góðu standi. Verð samkomulag. Rambler árg. 1957. 6 cil. sjálfskipt- ur. Verð samkomulag, Ford station árg. 1959 aðeins keyrður 30.000 km skipti koma til greina á 4—5 manna bíl árgerðum ’54, ’55, ’56. Verð samkomulag. Chevrolet station árg. 1954. Verð kr. 25.000 útborgað. Dodge árg. ’48 minni gerðin kr. 25.000. Verð sam- komulag. Volvo station ’55 £ fyrsta flokks standi. Verð kr. 70.000 útborgað. Gjörið svo vel komið og skoðið bflana. Bifreiðasalan Borgartúni 1 Símar 18085 og 19615. — Heima- sími 20048. Tarzan stökk út til að sjá hvað um væri að vera ... en vitskertir íbúar þorpsins höfðu nærri troð- Barnasagan ið hann undir fótum sínum. Hann sá að uppsprettu óttans var að finna í upplýstu húsi þar rétt hjá. Hann gekk inn og við hon- um blasti ægileg sjón, pardurs- dýr urrandi af grimmd yfir manni IC AS.LS super filmu- „Mér þykir mjög leitt, að ég gat ekki, tekið á móti ykkur á brautarstöðinni", sagði Bizniz afsakandi, ,,en keppinautar okkar kipptu brú af djúpu gili beint fyr ir framan ríefið á mér. En þið vit- ið ekki, ha, ha, ha, að ég á hrað- skreiðasta bíl í Follywood". „Keppinautar?" spurði Kalli, „hvað kemur þeim við, að þér látið draga hval frá þessari borg? Og hann er í öllu falli ekki inni í verksmiðjunni" Bizniz hló og fór með þá inn í stóran sal. „Hvalurinn minn er ekki neltt venjulegt dýr, hann er risafiskur" útskýrði hann, „ósæranleg ó- freskja. Svo benti hann þeim á stóra rá, sem risastór fiskur hékk í. „Þarna er hann“ sagði Bizniz virðulega, „finnst ykkur hann ekki hræðilegur? Þetta er Feiti Moby“. „Feiti Moby, stamaði Kalli, eru þá hvalurinn og Feiti Moby það sama“? Innra með hon um hvarf vonin um 50.000 dollar- ana eins og dögg fyrir sólu. & SELUR: Chevrolet ’55, station. Mercedes Benz ’57-’60. Opel Gapitan ’61. Opel Caravan ’61 Consul ’62 VÖRUBILaR: Volvo ’63 5 tonna. Mercedes ’60-’61. Cnevrolet ’55-’61. Volvo ’55. Lóð í Kópavogi undir einbýlis- hús: Skipti á bfl. Bíla & búvélasalan við Miklatorg. Sími 23136 Danskar ullarpeýsur kr. 95.00 m

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.