Vísir - 13.11.1962, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 13. nóvember 19f>2.
Nýtt olíu-
skip SÍS
Elns og Vísir skýröi frá í gær,
kom þá til landsáns nýtt skip, sem
er sameign skipadeildar SÍS og
Olfufélagsins, Stapafeli, sem á
heimahöfn f Kefiavík.
Stapafell, sem smíðað er í Elms-
hom í V.-Þýzkalandi, er 1126 burð-
arlestir, lengd rúml. 63 m„ breidd
9,65 m. og dýpt 4,4 m. Aðalvél er
Deutz-diesel, 1050 hestöfl, tanka-
rými 1490 rúmmetrar og ganghraði
á siglingu til landsins var 12 míl-
ur. Teikningar gerði skipasmfðastöð
in f samráði við Óttar Karlsson,
sem er verkfræðingur í þjónustu
SÍS, og hafði hann umsjá og eftirlit
með áníðinni.
Skipstjóri á Stapafelli er Arnór
Gfslason, sem hefur lengi verið í
þjónustu SlS, 1. vélstjóri Gunnar
Þorsteinsson, en alls eru 16 menn
á skipinu. Stapafell mun verða not-
að til olíuflutninga með ströndum
fram, eins og Vfsir gat um í gær,
enda vaxandi þörf fyrir þá, en auk
þess er ætlazt til að það geti
við og við farið með lýsi til út-
landa.
Snjókomu á
Akureyri
Akureyri f morgun.
Seinni hluta nætur og f morg-
un hefur verið snjókoma á Akur-
eyri, en þó ekki komið nema föl
-enn sem komið er.
Mikil hálka hefur myndazt á Ak
ureyrargötum f morgun og mjög
varasamt orðið að fara um þær
bæði fyrir fótgangandi og farar-
tæki.
Næsta ólíklegt má telja að flug-
fært verði norður f dag eins og
veðurútlitið hefur verið í morgun.
TVEIR ÚTGERÐARMENN
RÆÐA SÍLD VEIÐIDEILUNA
— Svona fyrirkomulag eins og
tíðkast í vinnulöggjöf okkar ís-
lendinga gengur ekki. Það verður
einhver breyting þar á að koma.
Þannig fórust einum stærsta út
gerðarmanni okkar Sunnlendinga,
Sturlaugi Böðvarssyni á Akranesi,
orð við Vísi fyrir sfðustu helgi, er
síldarsamningana bar á góma.
— Hjá okkur eru endalaus
verkföll og vinnudeilur, sem eng-
inn virðist ráða neitt við. Og það
er ekkert aðgert fyrr en tjónið —
sem orðið hefur af vinnudeilum
— nemur orðið tugum ef ekki
hundruðum milljóna króna fyrir
þjóðarbúið. Þá fyrst er eitthvað
aðhafzt.
Nei, þetta gengur ekki til lengd
ar, bætti Sturlaugur við. Það verð
ur á einhvern hátt að breyta
þessu fyrirkomulagi — hvernig
svo sem það verður gert. Verk-
föllin og vinnudeilurnar eru ógæfa
fyrir þjóðfélagið og þær verða að
hverfa.
— En hvað um yfirstandandi
síldveiðideilu?
— Hún verður að Ieysast með
einhverju móti og það þegar í
stað. Ef samninganefndirnar geta
ekki komið sér saman, vonumst
við til að stjómarvöldin grípi með
einhverjum ráðum inn f deiluna
og leysi hana.
Þetta er samt að verða full-
seint. Haustvertíðin er hálfnuð,
og ef verkfallið heldur áfram,
geta bátarnir ekki gert út á'línu
vegna þess að þá vantar beitu.
Það er að vísu til í dæminu að
flytja beitu inn frá öðrum lönd-
um. Við höfum svo sem flutt beitu
inn frá Noregi, en hún hefur
reynzt illa, veiðzt helmingi minna
á hana én heimabeitu. Það er ekki
efnilegt.
Undanfarið hafa línubátar frá
Akranesi aflað ágætlega, 4 — 10
lestir í róðri. Það er ágætt. En
Framhald á bls. 5.
Nú líður að því að menn fari að
setja hesta sína f hús hér f
Reykjavík. Þeir skipta nú orðið
hundruðum, sem eiga hesta sér
til skemmtunar. Eru þeir f ná-
grenni bæjarins, á ýmsum bæj-
um. Margir hafa þá svo í hest-
húsum Fáks á Skeiðvellinum
yfir veturinn.
I I hesthúsunum er nú rúm fyr-
ir 220 hesta og veitir ekki af
því rúmi. Þrátt fyrir þetta hafa
ýmsir hesta sína á fóðrum út
um sveitir.
Hestamannaféiagið Fákur er
nú að byggja nýtt félagsheimili
á Skeiðvellinum. Er það hin
myndarlegasta bygging, að
mestu úr tré. Var mynd þessi
tekin af húsinu f morgun. —
(Ljósm. Vísis, I. M.).
• •
S0LUHÆSTU
BÆKURNAR
Þegar hausta tekur og líf færist f bókaútgáfuna, vaknar jafn-
framt forvitni almcnnings. Hvaða bækur skyldu nú seljast mest?
Vfslr hefur af þessu tiiefni snúið sér til allmargra bóksala f
Reykjavfk og beðið þá að gefa lesendum blaðsins upplýsingar
um söluhæstu bækurnar. Er ætlunin að birta þennan lista viku-
lega með þeim breytingum, sem verða hverju sinni. Útkoman er
þá þessi:
1. Kristmann Guðmundsson: ísold hin gullna.
2. Jónas Þorbergsson: Líf er að loknu þessu.
3. Halldór Kiljan Laxness: Prjónastofan Sólin.
4. Sveinn Víkingur: Lára miðill.
5. Guðrún frá Lundi: Stýfðar fjaðrir II.
F.
SAMIÐÁ SANDIlKVÖLD?
Vísir hefur aflað sér upplýsinga
um það að útgerðarmenn og sjó-
menn á Hellissandi hafa boðað við-
ræðufund í kvöld til að ræða um
samningamöguleika í síldveiðideil-
unni.
Eftir því sem blaðið hefur hlerað,
mun viðræðugrundvöllurinn byggj-
ast á Akranessamningunum og
hvorki sjómönnum né útgerðar-
mönnum þykja ástæða til annars
— úr þvi sem komið er — en að
leita samkomulags á einhverjum
grundvelli, sem báðir aðijar telja
sig geta sætt sig við.
Fundurinn í kvöld sker að sjálf-
sögðu úr um það, hvort samningar
takast eða ekki, en hins vegar voru
horfur taldar talsverðar á þvf að
unnt væri að samræma sjónarmið
samningsaðila.
Frá Hellissandi verða sennilega
gerðir út þrír bátar á komandi síld
arvertíð.
Óstaðfestar fregnir herma, að í
Grundarfirði sé einnig viðræðu-
grundvöllur milli samningsaðila
fyrir hendi, en blaðið hefur ekki get
að aflað sér neinnar staðfestingar á
því.
Aldrei meira aflaverðmœti
— Verðmæti sjávaraflans
hefur aldrei verið meira en
á þessu ári, og má gera ráð
fyrir að það nemi vart
minna en 3100 milljónum,
sagði Davíð Ólafsson fiski
málastjóri í ræðu á Varð-
arfundi í gærkvöldi.
Kvað fiskimálastjóri það nauð-
synlegt að sjávarútvegurinn fengi
alla þá möguleika, sem hugsanlegir
v.-.-u til að geta þróað framleiðslu-
hætti sína. Ef sjávarútvegurinn er
ekki heftur af verðbólguþróuninni,
eru möguleikar á mikilli verðmætis-
aukningu, sagði fiskimálastjóri. Iðn
aður í sjávarútvegi leiðir til betri
Sjávarútveguriim þolir ekki
meiri kostnað
— Sjávarútvegurinn stend-
ur nú höllum fæti vegna
hækkandi kaupgjalds og
verðlags,i sagði fiskimála-
stjóri Davíð Ólafsson á
fundi Varðar í gærkvöldi.
Sagði fiskimálastjórinn að út-
gjöld togaranna af þessum sökum
hefðu aukizt hraðar en verðlagið
á mörkuðunum. Ef enn yrðu miklar
launahækkanir og verðhækkanir
innanlands, mundi sjávarútveginum
mikil hætta búin, ekki sízt togara-
flotanum, sem hefur átt við mikinn
aflabrest að stríða. Sjávarútvegur-
inn getur ekki staðið undir aukn-
um útgerðarkostnaði, sagði fiskl-
málastjóri.
nýtingar aflans hérlendis, og það
er sjálfsagt að stuðla að því.
Hingað til hefur verið lögð meg-
ináherzlu á mikinn afla, en það er
hægt að komast af með minni afla
og fá samt meira fyrir hann. Við
megum ekki verða aftur úr í þeirri
þróun, sem er að gerast hjá fisk-
veiðiþjóðum í Evrópu og markaði
meginlandsins, heldur verðum við
að vera aðnjótandi hennar. Það er
skilyrði þess að sjávarútvegurinn
geti eflt sig í framtíðinni.
Vökufundur
á kvöld
Vaka ,félag lýðræðissinnaðra stú-
denta, heldur félagsfund í Hábæ
við Skólavörðustíg í kvöld kl. 20,30.
Á fundinum mun Guðmundur Garð
arsson viðskiptafræðingur flytja er-
indi um utanríkisverzlun og utan-
ríkisþjónustu íslands. Vökumenn
eru hvattir til að fjölmenna á fund-
Davið Ólafsson.
BRIDGE:
Sveitnkeppni T.B.K.
Staðan í 1. flokki eftir þrjár um
ferðir.
Hjálmar Hjálmarsson 17 st., Sig
urleifur Guðjónsson 14, Tryggvi
Gíslason 12, Dagbjartur Grímsson
12, Pétur Einarsson 10, Eiður
Gunnarsson 9, Baldur Guðmunds-
son 6, Jónas Jónasson 4, Gfsli Sig-
urkarlsson 4, Guðmundur Jónsson
2.
,i j
I i