Tölvumál - 01.12.1998, Page 7
Menntamál
Viðskipta-
háskólinn
í Reykjavík.
þessum leiðum er fjarkennsla. Viðskipta-
háskólinn hyggst nýta sér kosti fjar-
kennslu til þess að bæta menntun og að
jafna aðstöðu til náms. í vetur eru 15
nemendur í fjamámi á vegum Tölvufræði-
deildar. Þetta er tilraunaverkefni en gert er
ráð fyrir að fjarnám verði snar þáttur í
starfsemi skólans á komandi árum.
Viðskiptadeild
I Viðskiptadeild er áhersla á þriggja ára
B.S. nám í viðskiptafræði og er það 90
eininga nám. Auk þess gefst nemendum
kostur á að útskrifast með prófskírteini úr
deildinni að loknum fyrstu tveimur
árunum, eða eftir 60 eininga nám. A öðru
og þriðja námsári geta nemendur valið urn
eitt af þremur sviðum í náminu. Þau eru:
• Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti
• Rekstur og reikningshald
• Stjórnun og starfsmannahald
í náminu í Viðskiptadeild er kappkostað
að tengja fræðin við veruleika viðskipta-
lífsins með raunhæfum verkefnum og með
vinnu í fyrirtækjum. í lok 1. árs þurfa nem-
endur m.a. að nýta sér þá þekkingu sem
þeir hafa þegar öðlast og vinna veigamikið
verkefni sem felst í því að stofna og reka
sitt eigið fyrirtæki. I verkefninu samþætta
nemendur öll námskeið fyrsta ársins. Fyrir-
tæki þeirra verða síðan metin af kennurum
og utanaðkomandi aðilum úr fjármála- og
viðskiptalífinu. A öðru ári verður aðal-
áhersla lögð á að byggja upp þá fæmi sem
þarf til að reka fyrirtæki á árangursríkan
hátt, sérhæfmg í náminu byrjar á öðru
árinu og heldur áfram á því þriðja.
Nárnið í viðskiptadeild er í mótun og
lögð er áhersla á að uppbygging námsins
verði bæði samfelld og heildræn. Þar sem
Viðskiptaháskólinn stefnir að því að vera
í nánum tengslum við fulltrúa úr atvinnu-
lífrnu er nú unnið að því að fá álit þeirra
á uppbyggingu námsins. Stefnt er að
stöðugri þróun í náminu og að það flétti
saman fræði, hagnýtingu og tækni-
þekkingu.
Símennt VHR
Stuðla þarf að fólk út í atvinnulífinu sé
virkt í námssamfélaginu og geti endur-
nýjað og aðlagað þekkingu sína nýjum
aðstæðum. Símennt VHR er framlag Við-
skiptaháskólans í Reykjavík til símennt-
unar starfsmanna og stjórnenda í við-
skiptalífinu. í boði eru almenn námskeið í
þeim málaflokkum Viðskipta- og Tölvu-
fræðideildar sem efst eru á baugi hverju
sinni. Einnig er stefnan að Símennt VHR
þjóni fyrirtækjum með sérsniðnum nám-
skeiðum sem byggja á þarfagreiningu og
sérþörfum viðkomandi fyrirtækis á sviði
menntamála. Áhersla er lögð á markviss
og vönduð námskeið með hæfum leið-
Tölvumál
7