Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1998, Blaðsíða 31

Tölvumál - 01.12.1998, Blaðsíða 31
Verkefnastjórnun Frumskilyrði til þátt- töku í vottunarferlinu eru þau að umsækj- andi sé orðinn þrí- tugur að aldri, hafi lokið stúdentsprófi eða samsvarandi iðn- prófi, hafi unnið að skilgreindum verk- efnum undanfarin fimm ár og að um- sækjandi hafi þar af stýrt verkefnum, að hluta eða í heild, í þr/ú undanfarin ár Mynd 1. IPMA vottun verkefna- stjóra (VSFÍ). hluti af starfsþróun hans, auk þess að slík staðfesting styrkir ímynd fyrirtækisins á sviði verkefnastjórnunar og veitir fyrir- tækinu samkeppnisforskot. Loks má einnig líta á staðfestingu af þessu tagi sem lið í gæðatryggingu fyrirtækisins. í hverju felst vottunin? Vottun verkefnisstjóra er fyrst og fremst staðfesting á hæfni og fenginni reynslu umsækjandans. Ekki er því um að ræða röð námskeiða eða formlegt próf í aðferða- fræði verkefnastjórnunar. Tekið er mið af þeirri reynslu sem umsækjandi um vottun hefur þegar aflað sér og stuðst við mat á verkefni sem hann hefur unnið við og borið ábyrgð á sem verkefnisstjóri. Vottunarferlið er skilgreint á Mynd 1. Ferlið tekur um níu mánuði í framkvæmd og er skipt upp í fjóra meginþætti: umsókn, vinnufund, verkefnaskýrslu og viðtal. Frumskilyrði til þátttöku í vottunarferl- inu eru þau að umsækjandi sé orðinn þrí-. tugur að aldri, hafi lokið stúdentsprófi eða samsvarandi iðnprófi, hafi unnið að skil- greindum verkefnum undanfarin fimm ár og að umsækjandi hafi þar af stýrt verkefnum, að hluta eða í heild, í þijú undanfarin ár. IPMA vottun verkefnisstjóra hjá Verkefna- stjórnunarfélagi íslands felur í sér að ávallt er um samstarf erlendra og innlendra matsmanna að ræða og því fer hluti vott- unarferlisins fram á ensku, auk þess sem að umsóknargögn og verkefnaskýrsla verða að vera á ensku. í því ferli sem nú er að hefjast koma matsmennirnir frá verk- efnastjórnunarfélagi Bretlands (APM), en matsmenn á þeirra vegum búa yfir mikilli reynslu á þessu sviði. Hvernig fer vottunin fram? Kynniitgaifundur: Vöttunarferlið hefst fonnlega með kynningarfundi þar sem farið er yfir einstök atriði vottunarferlisins og fyrirspurnum svarað. Jafnframt fá um- sækjendur í hendur, gegn greiðslu, hand- bók þar sem er að finna öll gögn og leið- beiningar um umsókn og skýrslugerð. Umsækjendum er eindregið ráðlagt að sitja kynningarfundinn, en hann er þó ekki skilyrði fyrir þátttöku. Umsókn: Umsækjandi fyllir út þar til gert Tölvumál 31

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.