Tölvumál - 01.12.1998, Blaðsíða 8
Menntamál
Að viðbættum venju-
legum fyrirlestrar-
sölum og kennslu-
stofum eru minni
vinnuherbergi fyrir
verkefnavinnu
nemendahópa
beinendum sem hafa reynslu úr viðskipta-
og atvinnulffi.
Húsnæði og þjónusta
við nemendur
Þar sem lögð er áhersla á að nýta vel þann
tíma sem nemendur verja í Viðskiptaháskól-
anum er mikilvægt að öll aðstaða til náms
sé til fyrirmyndar. Hús Viðskiptaháskólans
í Reykjavík var tekið í notkun í byrjun
september 1998. Þetta hús, sem er fyrsti
áfangi af þremur, er um 4000 fermetrar á
fimm hæðum og rúmar um 500 nemendur.
Á 1. hæð hússins er m.a. matsalur og 100
manna fyrirlestrasalur og á annarri hæð er
bókasafn. Allur aðbúnaður nemenda og
kennara er mjög góður. Að viðbættum
venjulegum fyrirlestrarsölum og kennslu-
stofum eru nrinni vinnuherbergi fyrir verk-
efnavinnu nemendahópa. Síðari áfangar í
byggingu VHR líta dagsins ljós á nýrri öld
og stefnt er að því að skólinn geti hýst
starfsemi fyrir um 1500 nemendur við lok
fyrsta áratugs nýrrar aldar.
Bókasafn
Bókasafn skólans er í uppbyggingu en
stefnt er að því að tryggja það að nemendur
geti nýtt sér hvers kyns upplýsingatækni
við upplýsingaleit og geti unnið sjálfstætt
úr mismunandi gögnum. Bókasafn VHR
mun veita eftirtalda þjónustu: millisafna-
lán, hvort sem er frá söfnurn innanlands
eða utan, almenna upplýsingaþjónustu úr
ritakosti safnsins, aðstoð við heimilda-
leitir, tölvuleitir, þ.e. gerðar eru leitir í
erlendum gagnagrunnum og safnkennslu
þar sem notendum er kennt að leita að
heimildum og nýta sér gagnagrunna. Safn-
kostur skólans er aðallega bækur og tíma-
rit á rafrænu og prentuðu formi. Einnig er
boðið upp á aðgang að ýmsum gagna-
gmnnum svo sem ABI/Inform, Encyclopædia
Britannica og Reuters Business Briefing.
Lesaðstaða á safninu er fyrir 40 nemendur
og þar munu verða 24 vinnustöðvar fyrir
tölvur.
Tölvubúnaður
Tölvubúnaður er allur nýr og glæsilegur
og miðast við að nemendur eigi jafnan
auðvelt með komast að til að vinna í
tölvum skólans í skólanum eru þrjár
tölvustofur, hver með 25 Dell Pentium II,
266Mhz tölvurn. Vélarnar eru nreð 4GB
diskum, 64MB minni og 17“ skjá. Þá er
ein námskeiðsstofa með 15 tölvurn og eitt
lítið tölvuver með 9 vélum, en í þessum
stofum eru Hyundai 166MMX vélar með
3GB diskum, 64MB minni og 15“ skjám.
I öllum stofum eru öflugir geislaprentarar
og eru stofurnar opnar nemendum þegar
ekki fer fram kennsla í þeim. Að með-
töldunr vélum á bókasafni hafa nemendur
því aðgang að yfir 100 vinnustöðvum við
námið. Allar vélar eru tengdar netkerfi
skólans og hafa aðgang að NT netþjónum,
Unix vél, AS/400 og Internetinu.
Framtíðin
Oflugt nýsköpunar- og þróunarstarf er
mikilvæg forsenda tækniframfara og
aukinnar verðmætasköpunar. Tölvu- og
upplýsingatækni eru að verða æ samofnari
öllum sviðum viðskiptalífsins og þá ekki
síst þeim sem lúta að samkeppnishæfni,
nýsköpun og þróun. Því er kjarngóð
menntun í tölvu- og upplýsingatækni
grundvöllur framfara í atvinnulffinu. Það
var engin tilviljun að áhersluþættir í námi
VHR eru tengdir viðskiptum, tölvu og
upplýsingatækni. Viðskiptaháskólinn er
nýr háskóli sem vill taka þátt í þróunar-
starfi og stuðla að nýsköpun og helst vera
leiðandi í ýmsum nýjungum á sviði við-
skipta og tölvutækni. Á sama tíma er
stefnt að því að námið verði bæði krefjandi
og metnaðarfullt jafnframt því að vera í
stöðugri þróun og endurskoðun.
Viðskiptaháskólinn mun í framtíðin
reyna af fremsta megni að fá duglega og
góða nemendur í skólann. Mikilvægum
áfanga verður náð þegar útskrifast framúr-
skarandi fagfólk úr Viðskiptaháskólanum
sem er mótað af sjálfstæði, ögun og
ábyrgð í vinnubrögðum og er jafnframt
tilbúið að axla ábyrgð í íslensku atvinnu-
lffi. Til þess að fá þessu áorkað mun Við-
skiptaháskólinn verða í stöðugri mótun og
sækjast eftir náinni samvinnu og tengslum
við íslensk fyrirtæki.
Björg Birgisdóttir er kynningafulltrúi og
námsráðgjafi hjá Viðskiptaháskólanum
8
Tölvumál