Tölvumál - 01.12.1998, Blaðsíða 14
Myndrænar upplýsingar
frekar til dæmis áferð í vatn, tré, mat, osfrv.
A neðsta þrepinu er tilvísun í þau margmiðl-
unargagnasöfn sem innihalda myndrænar
upplýsingar er flokkast undir viðkomandi
grein í stigveldinu. Mynd 3 sýnir dæmigert
stigveldi í safni lýsigagna.I2]t4II6]
Gagnasafnarinn og sniðmátssmiðurinn
(sjá Mynd4) sjá um að búa til og viðhalda
lýsigögnum í gagnasafninu. Þetta er gert
með því að bera saman innihald margmiðl-
unargagnasafna við sniðmátin í stigveldi
gagnasafnsins. Mynd er talin tilheyra ákveðnu
sniðmáti ef samanburðarmæling, byggð á
myndrænum eiginleikum sbr. stigveldið, er
innan ákveðinna marka. Samanburðurinn
gefur til kynna hvers konar myndefni hvert
mai-gmiðlunargagnasafn inniheldur og þar
af leiðandi hvar tilvísun í þau eiga heima á
neðsta þrepi stigveldisins.
Samanburðurinn er framkvæmdur út frá
innihaldi myndefnisins og getur því verið
mjög tímafrek aðgerð. Því er oftast aðeins
lítið en dæmigert hlutmengi af innihaldi
margmiðlunargagnasafnsins borið saman
við sniðmát gagnaþjónsins. Hvert marg-
miðlunargagnasafn getur að sjálfsögðu
flokkast undir fleiri en eitt sniðmát, en
næganlegt er að safnið innihaldi a.m.k.
eina mynd sem fellur innan skilgreiningar
viðkomandi sniðmáts.]6] Þar að auki eru
reiknaðar tölfræðilegar upplýsingar sem
gefa enn frekar til kynna vægi margmiðl-
unargagnasafnanna út frá myndrænum
eiginleikum þeirra gagna sem þau geyma.
Þessai' tölfræðilegu upplýsingar eru byggðar
á líkindadreifíngu og innihalda til dærnis
upplýsingar um meðaltal, frávik og fjölda
sýnishorna sem notuð eru við samanburð-
arútreikningana fyrir hvert gagnasafn.
Innihald margmiðlunargagnasafni tekur
stöðugum breytingum þannig að mikil-
vægt er að uppfæra einnig samsvarandi
lýsigögn skráð hjá gagnaþjóninum. Til að
tryggja samhæfni gagnanna er innihald
margmiðlunargagnasafnana borið saman
við sniðmátin og gögnin uppfærð eftir því
sem við á. Þetta getur einnig leitt til þess
að sniðmátin í stigveldinu sjálfu taki
breytingum til að endurspegla betur þær
myndrænu upplýsingar sem gagnaþjóninn
gefur aðgang að.[2]
Leit samkvæmt innihaldi
Gagnaþjóninn vinnur á eftirfarandi hátt úr
fyrirspurn, sem getur verið ýmist kyrr-
mynd eða kvikmyndarammi. Fyrst er
fyrirspurnin greind út frá myndrænum
eiginleikum hennar s.s. áferð, munstri, lit
og lögun. Fyrirspurninni er skipt niður í
smærri einingar eða fyrirspurnir þar sem
Mynd 3. Dæmi um
stigveldi lýsigagna I
gognasafni gagna-
þjóns. [2] [6]
Eiginleikar
Sniðmát
Neðri sniðmát
Dreifð gagnasöfn
14
Tölvumál