Tölvumál - 01.12.1998, Síða 9
Menntamál
M.S.-nám við tölvunarfræðiskor
Háskóla Islands
Ebba Þóra Hvannberg
• Gagnasöfn og dreifð upplýsingakerfi -
Tæknilegt
Skilgreind hafa verið 10 ný námskeið
fyrir M.S.-námið innan tölvunarfræði-
skorar, en nemendur geta einnig valið
námskeið úr öðrum deildum með sam-
þykki umsjónarmanns.
Möguleg valfög í MS tölvunarfræði (21 e):
• Gœðastjórmm í hugbúnaðargerð.
• Háhraðanet.
• Hópvinnukerfi.
• Rauntímakerfi.
• Samskipti manns og tölvu.
• Tölvuarkitektúr og samhliða vinnsla.
• Líkön og mœlingar (eðlisfrœðiskor)
Haustið 1998 voru tvö ný námskeið í
boði: Gagnagrunnar og dreifð upplýsinga-
kerfi, og Gæðastjórnun í hugbúnaðargerð.
Að auki var í boði námskeiðið Tölvu-
arkitektúr og samhliða vinnsla. A vor-
misseri 1999 verða tvö ný námskeið í boði:
Rauntímakerfi og Formlegar aðferðir í
hugbúnaðargerð. Að auki geta nemendur
tekið námskeiðin Tölvugrafík svo og
Líkön og mælingar sem er kennt í eðlis-
fræðiskor núna á vormisseri.
I sumum deildum er gerð krafa um að
nemendur dvelji við erlendan háskóli í eitt
misseri. Þetta er ekki krafa í Raunvísinda-
deild, en stúdentum við Háskóla Islands
gefst kostur á að taka hluta af námi sínu
við erlendan háskóla og fá það metið til
eininga heima fyrir. Alþjóðaskrifstofa
Háskóla íslands gefur nánari upplýsingar.
Meistaraprófsritgerð
Hluti af M.S.-náminu er 15 eininga rneist-
araprófsritgerð. Þetta samsvarar 15 vikna
vinnu og vinnur þá nemandi að eigin rann-
sóknaverkefni undir leiðsögn kennara. Það
getur geftð nemanda mikla ánægju að
helga sig einu efni í afmarkaðan tíma og
skoðað það til hlítar.
Allt frá árinu 1996
hefur tölvunar-
fræðiskor unnið að
því að koma á M.S.-
námi í tölvunarfræði
Aðalumsóknarfrestur
er í febrúar til að
hefja nám á haust-
misseri, en einnig er
hægt að sækja um í
ágúst til að hefja nám
um áramót
Brýn þörf er á að
mennta kennara,
bæði fyrir háskólastig
og framhaldsskólastig
Inngangur
í Háskóla Islands er boðið upp á M.S.-
nám í 7 deildum, en þó ekki í öllum náms-
greinum hverrar deildar. Allt frá árinu
1996 hefur tölvunarfræðiskor unnið að því
að korna á M.S.-námi í tölvunarfræði.
Skorin hefur útskrifað tæplega 400 tölvu-
narfræðinga og B.S.-námið stendur vel
undir nafni og eru tölvunarfræðingar frá
Háskóla íslands eftirsóttir á íslenskum og
erlendum vinnumarkaði. Jafnframt hefur
tölvunarfræðingum gengið mjög vel í
framhaldsnámi erlendis. Það er okkar mat
að markaðurinn þurfi nú að auki fólk með
framhaldsmenntun enda höfum við séð
svipaða þróun í öðrum skyldum greinum
eins og verkfræði. Einnig er brýn þörf á að
mennta kennara, bæði fyrir háskólastig og
framhaldsskólastig. Þetta á ekki síst við
núna þegar fleiri skólar á háskólastigi,
eins og Viðskiptaháskólinn í Reykjavík
bjóða upp á nám í kerfisfræði og upplýs-
ingatækni og rneiri áhersla verður lögð á
kennslu í upplýsingatækni á framhalds-
skólastigi. M.S.-nám í tölvunarfræði frá
Háskóla íslands er beggja hagur, þ.e. skor-
arinnar og nemenda því að búast má við
að það verði auðveldara að laða að kenn-
ara og aðgengilegra fyrir nemendur sem
ekki sjá sér fært að fara til útlanda til
náms, t.d. vegna fjölskylduaðstæðna.
Lýsing á M.S. námi
Meistaraprófsnámið í tölvunarfræði er 45
einingar, 30 einingar í námskeiðum og 15
einingar í verkefni. Þeir sem óska eftir að
vinna stærri þátt í rannsóknum, geta í
staðinn tekið 30 einingar í rannsóknum,
og 15 einingar í námskeiðum.
Öllum er skylt að taka 3 kjarnafög, en
þau eru:
• Reiknirit, rökfœði og reiknanleiki -
Fræðilegt
• Formlegar aðferðir í hugbúnaðargerð -
Hugbúnaður
Tölvumál
9