Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1998, Side 12

Tölvumál - 01.12.1998, Side 12
Myndrænar upplýsingar Nauðsynlegt er að vinsa út þau marg- miðlunargagnasöfn sem eru líklegust til að innihalda mynd- efnið sem leitað er að Gagnasafn gagna- þjónsins er byggt upp sem stigveldi snið- máta sem tákna mynd- ræna eiginleika gagn- anna. i SKRÁARENDING TEG. GAGNA LÝSING gif Mynd Compuserve mynd snið jpg, jpeg, jpe, jfif, pjpeg, pjp Mynd JPEG mynd snið qt, mov, moov Kvikmynd Quicktime kvikmynda snið mpeg, mpg, mpr, mpv, vbs, mpegv Kvikmynd MPEG kvikmynda snið avi Kvikmynd Microsoft kvikmynda snið Tafla 1. Yfirlit yfir helstu skráarendingar myndrænna upplýsinga á vefnum. [5] að finna á Intemetinu. Leitarvélamar skanna vefinn með reglulegu millibili, greina skjölin út frá textainnihaldi þeirra og búa til saman- tekt þar sem vísað er í vefsíðurnar. Þannig geta vefnotendur nálgast upplýsingar á vefnum á einfaldan hátt með því að leita eftir ákveðnum textalykilorðum eða nálg- ast upplýsingar eftir efnisflokkum, s.s. íþróttir, skemmtanir osfrv.151 Hægt er að nota svipaða aðferð til að taka saman allt myndrænt efni á vefnum í því skyni að gera það aðgengilegra fyrir vefnotendur. Leitarvél skannar vefmn á sama hátt og hefðbundnar leitarvélar, en skráir aðeins þær skrár sem eru líklegar til að innihalda myndrænar upplýsingar í stað þess að skrásetja allar vefsíður og greina þær eftir textainnihaldi. Einfaldast er að ákvarða innihald skráa með því að líta á endingar skráarnafna. Skrár með myndrænum upplýsingum hafa í dag ein- hverja af þeim endingum sem gefnar eru upp í Töflu 1. Eftir að búið er að finna skrárnar þarf að greina og skrásetja þær eftir innihaldi. Hægt er að flokka myndrænar upplýsingar á grófan hátt út frá skráarheitum ef þau eru nægjanlega lýsandi. Einnig er hægt að flokka skrárnar eftir ALT HTML taginu, sem oft er notað til að lýsa myndefni ef vefrýnir getur ekki birt viðkomandi mynd. Þessi flokkunaraðferð er þó ekki áreiðan- leg þar sem ekki er hægt að ganga út frá því vísu að skráarheiti myndefnis séu lýsandi og að ALT tagið sé almennt notað til frekari upplýsinga. Dæmi um slíka leitarvél er WebSeek [5], sjá mynd 7. Leit að myndrænum upplýsingum með aðstoð gagnaþjóna Fyrrgreind leitaraðferð að myndrænum upplýsingum á vefnum er einföld í útfærslu en er hún næganlega öflug? Viljum við ekki geta komið með fyrir- spurn sem segir til dærnis „Finndu tilvís- anir í allar myndir sem líkjast þessari“? Þetta flækir málið því til að svara slíkri fyrirspurn þarf að bera myndina (sýnis- hornið) saman við allar myndrænar upp- lýsingar á vefnum á myndrænan hátt. Slíkur samanburður er mjög reiknifrekur þannig að ekki er hægt að senda slíka fyrirspurn út á vefinn til allra hugsanlegra gagnasafna sem gætu innihaldið umbeðna mynd. Slík aðgerð væri alltof tímafrek jafnvel fyrir textaleit. Því er nauðsynlegt að geta á einhvern hátt vinsað út þau margmiðlunargagna- söfn sem eru líklegust til að innihalda myndefnið sem leitað er að, þ.e. fundið vægi þein'a út frá ákveðinni fyrirspurn. Þetta er hægt með því að nota svokölluð lýsigögn (e. metadata) til að búa til yfirlit yfir þau myndrænu gögn sem eru aðgengi- leg á vefnum. Mynd 2 sýnir dæmi um högun slíks kerfis. Gagnaþjóninn, sem samanstendur af fyrir- spurnarþjóni, leitarvél og gagnasafni, tekur við fyrirspurn frá vefnotanda og ber hana saman við lýsigögn í gagnasafni sínu. Sam- anburðurinn skilar lista yfir þau margmiðl- unargagnasöfn sem til greina koma fyrir við- komandi fyrirspurn, það er vægi safnanna er metið út frá lýsigögnum gagnaþjónsins. Notandinn velur eitt eða fleiri söfn úr list- anum og gagnaþjóninn sér um að beina fyrirspurn hans áfram til þeirra. Valin marg- miðlunargagnasöfn taka við fyrirspurninni, leita að myndefninu hvert í sínu gagna- safni og senda niðurstöðuna til notandans. En hvernig eru lýsigögnin búin til? Lýsigögn Lýsigögn eru notuð til að lýsa innihaldi 12 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.