Tölvumál - 01.12.1998, Page 22
Menntamál
Barn sem hefur búið
til samlagningarvél úr
NAND hliðum er
kannski betur búið
undir upplýsingasam-
félag framtíðarinnar
heldur en barn sem
hefur lært að fara inn
á spjallrás á Inter-
netinu
unarbúnað í hverja kennslustofu. Hins
vegar þarf:
1. Kennara sem eru vel að sér í tækni og
raungreinum.
2. Trausta undirstöðumenntun í stærð-
fræði, eðlisfræði, handmenntum og
tæknigreinum.
3. Kennslu í forritun og eiginlegum upp-
lýsingafræðum.
Nú er ekkert vit í að kenna börnum
þessi fræði á einhverju hálfgerðu háskóla-
stigi. En alveg eins og kennsla í grunn-
skóla býr þau undir að skilja helstu atriði
heilsufræði eð a sagnfræði ætti líka að búa
þau undir að skilja tölvu- og upplýsinga-
tæknina. Það er til kennsluefni sem hentar
börnum, hér má til dæmis nefna tæknilegó-
kubba (Lego Technic) og Lego-Logo for-
ritunarmálið sem hægt er að nota til að
láta tölvu stjórna vélum sem settar eru
saman úr Lego-kubbum. Það er líka hægt
að kenna börnum undirstöðuatriði raf-
magnsfræða t.d. með því að láta þau
smíða einföld raftæki eins og dyrabjöllur,
ritsíma eða jafnvel rökrásir.
Barn sem hefur búið til samlagningar-
vél úr NAND hliðum er kannski betur
búið undir upplýsingasamfélag fram-
tíðarinnar heldur en barn sem hefur lært
að fara inn á spjallrás á Internetinu. Barn
sem hefur sjálft lagt ritsíma milli tveggja
húsa er ef til vill nær kjarna upplýsinga-
tækninnar heldur en barn sem kann að búa
til glærur í Power Point og barn sem hefur
byggt gatnamót úr Lego-kubbum og for-
ritað götuvitana til að kveikja á rauðu,
gulu og grænu ljósunuin í réttri röð það er
komið vel á veg að skilja tæknina.
Við megum ekki vera svo upptekin af
einmenningstölvum, amstrinu í kringum
þær og dýrðarljómanum af nýjustu græjum
að við gleymum því að kennsla í skólurn á
að miða að því að nemendur nái tökum á
tilverunni og skilji þann heim sem þeir
taka í arf, þar á meðal heim tækninnar.
Með óbreyttri stefnu í upplýsinga- og
tæknimennt í skólum er hætt við að alltof
fáir öðlist þann skilning á tækninni sem
nauðsynlegur er til að við getum tekið þátt
í uppbyggingu hennar sem veitendur og
framleiðendur en ekki bara sem neytendur.
Kennarar sem hafa áhuga og vit á tækni
hafa eytt mikilli orku í aukavinnu við um-
sjón með tölvum. A meðan hefur of litlum
tíma og peningum verið varið til að byggja
upp kennslu sem stuðlar aðskilningi og
gerir nemendur færa um að fylgjast með
og taka þátt í sköpun upplýsingasam-
félagsins.
Atli Harðarson er kennari við
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi
LANDS SÍMINN Ei RARIK
22
Tölvumál