Vísir - 29.11.1962, Blaðsíða 3
VÍSIR . Fimmtudagur 29. nóvember 1962.
l AJ'J'iU
TÍIKAN I KIUBBNUM
Myndsjá Vísis brá sér 1 Klúbb
inn s.l. sunnudagskvöld. Þar var
margt um manninn, jafnvel ein-
um of margt, enda var von á
sýningarstúlkum úr Tízkuskóla
Andreu í fötum frá verzluninni
Eygló f Reykjavík.
*
Haukur Morthens kynnti stúlk
umar, þegar þœr gengu fram,
og gat um f hverju þær væru.
Sýningarstúlkuraar gengu síðan
um meðal áhorfenda, á báðum
hæðum hússins, við mikinn fögn
uð.
*
Fötin, sem þær sýndu, voru
bæði innlend og erlend fram-
leiðsla, kápur, kjólar og dragtir.
Mest bar a kjólum úr jersey-
efnum, og voru margir þeirra
skreyttir skinni eða prjóni, einn
ig voru kápumar margar með
loðkrögum. Það vakti athygli,
að margir kjóiar voru með löng
um ermum, og f senn mjög lát-
lausir og smekklegir.
*
Frú Andrea, tízkuskólastjóri
og frú Svava Þorbjamardóttir
verzlunarstjóri í Eygló stjórn-
uðu tfzkusýningunni, sem mun
verða endurtekin tvisvar, og
verður fyrri sýningin í kvöld í
Klúbbnum.
*
Á myndinni efst til vinstri
er Hrafnhildur Guðmundsdóttir
i kápu úr Ijósu mohairefni, með
mjög falicgum kraga úr blárefa-
skinni.
*
Við hlið Hrafnhildar er Guð-
rún Eriendsdóttir f svartri ullar-
kápu með kraga úr silfurrefa-
skinnl.
*
Efst til hægri er svo Lilja
brokade-efni, með svörtu skinni.
Norðfjörð f dragt úr hvitu
Undir jakkanum er hún í svartri
blússu.
*
Á myndinni neðst til hægri
eru Lilja Norðfjörð (t. v.) f
kjól úr svörtu uilar-jerseyefni
með hvítu skinni í hálsmálið, og
Sigríður Torfadóttir, cinnig í
kjól úr svörtu jerseyefni, en
hann er með gráum, grófum
prjónakraga.
i