Vísir - 29.11.1962, Blaðsíða 4

Vísir - 29.11.1962, Blaðsíða 4
/ 4 Viðskipti okkar við Japan hafa aukizt mjög á síðustu árum, og hefur það færzt mjög í vöxt að íslenzkir kaupsýslumenn legðu leið sína þangað í viðskiptaerindum. Nýlega kom Friðrik Theódórsson, sem starfar hjá Rolf Jo- hansen & Co., úr ferð til Japan. Hittum við hann að máli, til að frétta frek- ar af ferðinni. >f væri ekki hægt, en Japanir hafa gert ótrúlega hluti. — Borgin er yfirfull af fólki, mjög þröng og þéttbyggð. Þar búa um tíu milljón manns. Húsnæðisvandræði eru mikil. Að finna húsnæði þar, er eins og að finna blómstrandi bananatré vaxandi á Austurvelli í febrúar. Það setur svip á borgina hve mik ið er þar af neonljósum. Þegar komið er út fyrir Times Square í New York sést ekki nema eitt og eitt neonljós. Þarna eru húsin bókstaflega þakin með þeim. — Hvernig var veðrið? — Það var mjög mismunandi, en almennt sæmilegt. Ég var þarna í sól og hita, dynjandi rign ingu, og hita allt niður f frost- mark, bæði með sólskini og dimmviðri. — Hvaða leið fórst þú ; til Japan? — Ég fór fyrst til Kaupmanna- hafnar og þaðan um Hamborg, Frankfurt, Róm, Teheran, Karac- hi, Bombay, Bangkok, Hong Kong og þaðan til Tokyo. Það er hægt að fara fljótlegri leið, með því að fara yfir pólinn um Alaska til Tokyo. Sú ferð tekur um 19 tíma. Leiðin sem ég fór tók um 40 Kurteist, en ekki laglegt. — Hvernig er fólkið? — Það er sérlega þægilegt og kurteist í umgengni, alveg sama hver var. Mennirnir sem ég var með, umgengust alla eins og jafn- ingja. Maður verður aldrei var við skriðdýrsmennsku, jafnvel hjá V í SIR . Fimmtudagur 29. nóvember 1962. Friðrik fyrir framan Buddha líkneski í japönsku musteri. Alltaf að skónum tíma frá Frankfurt, enda stoppað víða. — Ferðin gekk yfirleitt vel, að öðru leyti en því, að taskan mín fannst ekki í Frankfurt. Þetta var seint á laugardagskvöldi og ég átti að halda áfram klukkan átta morguninn eftir! Mér leizt ekkert á að þurfa að fara hálfa leiðina kringum hnöttinn án þess að geta skipt um skyrtu. Ég heimtaði að. Lufthansa léti mig hafa föt og þau voru rétt ókomin, þegar taskan loks fannst, eftir mið- nætti. — Við fórum alltaf úr vélinni á flugvöllum sem við komum á, nema 1 Karachi. Þar var ekki leyft að fara úr henni, vegna ótta við róstur milli Indverja og Pakist- anbúa. Til Tokyo kom ég svo að kvöldi og fór á hótel, sem nefn- ist Ginza Tokyu. Það er nýlegt og algerlega vestrænt, bæði í húsaskipun, mat og þjónustu. Borgin upprifin. — Hvernig lítur borgin út? — Hún er öll upprifin, svo að varla er hægt að komast leiðar sinnar. Það er verið að setja nýtt kerfi af neðanjarðarlestum og gera allar götur f stand. Þá er einnig verið að endurbæta útlit húsa við allar helztu götur borg- arinnar. Þessu á öllu að vera lokið fyrir Olympíuleikana 1964. Þegar maður sér hvemig þetta er núna, gæti maður haldið að það þeim lægst settu. Yfirleitt talar fólk ekki mikið ensku, nema þeir sem eru tiltölulega hátt settir í þjóðfélaginu. — Fólkið er mjög smávaxið og ekki laglegt á okkar mælikvarða. Fegurð japanskrar konu er mjög mikið miðuð við hálsinn að aftan, enda ná föt þeirra gjarnan upp á hálsinn að framan, en eru yfirleitt eitthvað opin í hálsinn að aftan. — Þarna er enn mikið eftir af þeirri tradition að konan sé mann inum óæðri. Það kom fyrir mig, skömmu eftir að ég kom til Japan, að ég var í lyftu með nokkrum konum. Ég beið eftir að konurnar gengju út á undan, eins og tíðk- ast á Vesturlöndum, en engin hreyfði sig. Þær voru að bíða eftir því að ég færi út. Það endaði með því að maðurinn sem var með mér ýtti mér út úr lyftunni og þá komu þær allar á eftir. — Öll þjónusta er sérlega góð í Japan. Ég kom til dæmis á Mikado, einn þekktasta nætur- klúbb í Tokyo. Þar var þjónn við hvert borð, með stúlku sér til að- stoðar. Á skemmtistöðum eru yfir leitt „hostesses". Þegar maður kemur inn, koma nokkrar og mað ur velur úr þá sem maður vill að sitji við borðið. Hún situr svo og talar við gestina, kveikir í sígarettum og hellir f glös og reyn ir almennt að láta mönnum líða vel. Það er ekkert ósiðlegt við þetta. Þarna kemur það enn einu sinn fram að konan er í þjónshlutverki, samkvæmt þeirra erfðavenjum. Konan alltaf á eftir. — Eru gömlu siðirnir enn ráð- andi? — Japan hefur opnazt mjög á síðari árum, en þó eru gömlu venj urnar enn mjög sterkar. Það er mjög að leggjast niður núna, sér- lega í stórborgum, en til skamms tíma gekk konan alltaf á eftir, ef hjónin fóru út að ganga. Til dæm is um erlendu áhrifin, hefur mikið af enskum orðum verið tekið inn i málið óbreytt. — Ég fór til smábæjar, sem heit ir Kurume, til að skoða fyrstu verksmiðju Bridgestone, en það fyrirtæki var ég að heimsækja. Þar sér maður allt aðra menningu en í Tokyo, sem er eins og hver önnur stórborg með skarkala og ljósahaf. Þarna eru hins vegar flestar þeirra gömlu venjur við lýði enn. — Annars hafði ég varla tíma til að átta mig. Ég var leiddur úr einu musterinu f annað og alltaf varð ég að fara úr skónum. Ég var eins og fínn maður í támjóum ítölskum skóm, reimuðum eins og venja er til. — Ég fór þvf af stað einn daginn til að kaupa skó, sem hæg ara væri að fara úr. Við fórum í heljar mikla verzlun, sem hefur 2500 manns í vinnu. Þeir litu einu sinni á fæturna á mér og svo fór- allt á annan endann að finna skó sem væru nógu stðrir, þó að ég notaði ekki nema meðalskó á okk ar mælikvarða. Loksins fundust einir uppi á lofti, sem voru nógu stórir. Þá varð ég að kaupa, þó að mér litist ekki sérlega vel á þá. Heit handklæði. — Á matstöðum f Japan fara allir úr skónum og fá inniskó. Þeir gerðu ekki miklu meira en að passa á stóru tána á mér, svo að ég varð alltaf að vera á sokkaleistunum. Ég kunni yfirleitt mjög vel við matstaðina. Maður fær ekki bara borð, heldur her- bergi, þar sem maður getur haft alla hentisemi. Ég kunni einnig mjög vel við þann sið þeirra að maður fær alltaf heitt handklæði þegar maður kemur inn, til að þurrka sér um hendur og f fram- an. — Borðin eru svo lág að allir sitja á gólfinu. Þetta er mjög þreytandi fyrir vesturlandabúa, svo að mér var venjulega fenginn stóll, sem ekki voru á neinir fæt- ur. Ég var einnig alltaf að reka mig upp undir. 1 fyrsta Iagi eru Japanir mjög lágvaxnir og auk þess standa þeir sjaldan beinir, því að þeir eru alltaf að hnelgja sig f allar áttir. — Hvernig er verðlagið? — Það er ekki sérlega Iágt, að minnsta kosti ekki fyrir ferða- menn. Það er ekki hægt að segja að fæði og húsnæði sé ódýrt á þeim stöðum sem sinna aðallega vestrænum mönnum Hægt er að finna ódýra staði, en til þess þar kunnugleika Viðskipti tímafrek. — Hvemig er að skipta við Japani? — Mjög gott. Þó tekur allt mjög langan tíma hjá þeim Þeir virðast vilja velta hlutunum mikið Framhald á bls. 10. • Rætt við Friðrik Theódórs- • son um ferð til JAPAN •Mp ií'M t »i. V t t .1 : Í •. . f Í 4 » ♦ 1 t i } i ■% 1 i •* ; • i *•

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.