Vísir - 29.11.1962, Blaðsíða 16

Vísir - 29.11.1962, Blaðsíða 16
■sa Fimmtudagur 29. ivóv. 1962. Skemmtikvöld Anglíu I kvöld efnir félagið Anglia til fyrsta skemmtikvöldsins í vetur og er það haldið í Sjálfstæðishúsinu. Gömlum og nýjum félögum er heim i'.l aðgangur og einnig öðrum þeim, sem áhuga hafa á starfsemi félags- ins. Á skemmtikvöldinu er fjölbreytt Uagskrá. Ævar Kvaran leikari "tjórnar skemmtiþætti. Pá er spurn ingaþáttur með algjörlega nýju 'niði, sem Gestur Þorgrimsson og 3aldur Georgs sjá um. Þá efna eir einnig til músíkalsks skemmti 'áttar félagarnir Jan Moravek og Gestur Þorgrímsson. Happdrætti, ’.anskeppni og fleira er einnig til kemmtunar. Skemmtikvöldið hefst kl. 8.30 og er ekki að efa að það verður fjöl- sótt, en Anglia hefir lengi starfað með miklum blóma hér í borg. Slökkvilið á ferð Slökkviliðið í Reykjavík var tvf- vegis kvatt út í gær. í fyrra skiptið var það kvatt að verkstæði við Kringlumýrarveg klukkan 8 f morgun. Þar hafði eld- ur komizt í föt, sem lögð höfðu verið í stól. Fötin brunnu og stóll- inn sviðnaði, en annað tjón varð ekki. Nokkru seinna var slökkviliðið kvatt að Langholtsvegi 7 vegna elds, sem kviknað hafði út frá olíu- kyndingu. Þar var einnig fljótlega slökkt og skemmdir litlar taldar. Sí/tfí/i sö/tuB á 40-50 stöðvum nú í vetur Það mundu hafa þótt tíðindi fyr ir nokkrum árum, ef því hefði ver- ið spáð, að í Reykjavík mundi rfsa verulegur sfldariðnaður. \ ‘ Nýr bandariskur blaðafulltrúi hér í gær kom til landsins hinn nýi blaðafulltrúi Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna, Reuben Monson. Starf þetta hefur verið laust um skeið, siðan Raymond Stover var skipaður yfirmaður Upplýsinga- þjónustunnar, en áður var hann blaðafulltrúi. Mr. Monson er fæddur f Iowa, árið 1919. Er hann kominn af norsk um ættum, en afar hans og ömmur eru frá Vestur-Noregi. Hann gekk í St. Olafs College í Northfield £ Minnesota og lagði stund á hag- fræði og fleira. Þegar hann lauk háskólaprófi 1942, gekk hann f Marine Corps og ' gegndi herþjónustu f Suður-Kyrra- ! hafinu til strfðsloka. 1946 tók hann ; til starfa við St. Olafs College og i starfaði þar f eitt ár. Eftir það var j hann blaðamaður í tíu ár, sem voru slitin í sundur af Koreustrið- inu, en þá var hann kallaður í herinn aftur. Gegndi hann þá her- Frh. 'á bls. 5. Eins og nú horfir er ekkert lík- legra, en að Reykjavík verði stór- veldi að þessu leyti, að því er varðar vinnu Suðurlandssíldarinn- ar, og menn gera ráðstafanir til a5 taka á móti henni og vinna hana í stærri stíl en áður. Kom þet.ta raunar strax í ljós f fyrravetur, þegar vetrarsíldveiðar urðu í fyrsta skipti verulegur atvinnuveg ur, því að þá barst meira magn síldar á land hér í höfuðborginni en á nokkrum öðrum stað á suð- vesturhluta landsins. Sfldin , fór þá ekki aðeins í bræðslu, heldur var hún einnig fryst og söltuð o.s.frv. og þá voru söltunarstöðvarnar fjórar. Nú er ^iægt að auka afköstin að þessu Ieyti verulega, því að auk þess sem síldarbræðslan að Kletti hefir t.d. verið stækkuð verulega — af köstin tvöfölduð — hefir söltunar stöðvum fjölgað um 3. Þær eru því alls 7 og eru 6 þegar teknar til starfa, en hafizt mun verða handa um söltun í þeirri sjöundu mjög fljótlega. Söltunarstöðvum hefir einnig fjölgað annars staðar og verða þær í vetur milli 40 — 50. SÍLDIN STÓR OG FALLEG. Um síldina, sem nú veiðist, er annars það að segja, að hún er Framh. á bls. 5. Hátíðahöld stúd- enta 1. desember Nú eiga bömin óvenjulega erf itt með að halda sér kyrrum i sætum sínum i kennslustofunni. Það er komlnn snjór úti, mjúk- ur snjór, góður til að hnoða og fara i snjókast. Strax og skóla- bjallan glymur til að tilkynna frimínútur, rýkur hersingín af stað út ganga og út í portið til leikja í snjónum. Það er mikið um að vera í heimi barnsins, þegar snjórinn kemur og gefur því verkefni til að hnoða, kasta, renna sér og kaffæra kuningj- ann. Mynd þessa tók I. M. ljós- myndari Visis í morgun af Mið- bæjarskólaportinu. Prestskosning Prestskosning fór fram í Vatns- endaprestakalli í S-Þingeyjarpróf- astsdæmi, 18. þ.m. Umsækjandi um embættið var einn, sr. Þórar- inn Þórarinsson, settur prestur þar. Atkvæði voru talin £ skrif- stofu biskups í gær. Á kjörskrá voru 270. Þar af greiddu atkvæði 183. Umæekjandi hlaut 176 atkvæði. Auðir seðlar og ógildir voru 7. Kosningin ér því lögmæt. Reuben Monson Hátíðarhöld háskólastúdenta 1 desember verða með lfku sniði og ■ áður. Þó er það nýmæli að lagður verður blómsveigur frá íslenzkum stúdentum á fótstall styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Kl. 2 hefst hátfðarsamkoma I hátíðasal Háskóla Islands, en um kvöldið verður dansleikur, sem stúdenta- ráð háskólans gengst fyrir. Að venju kemur út vandað hátíðablað Stúdentablaðsins. Um morguninn kl. 10,30 hefst guðsþjónusta í kapellu Háskóla ís- lands. Stud. theol. Björn Björns- son predikar, en sr. Hjalti Guð- mundsson þjónar fyrir altari. Org anleikari verður Páll Kr. Pálsson. KI. 13,30 verður lagður blóm- Frh. á bls. 5. Landsbankinn í Vesturbænum Á laugardaginn opnar Lands- banki íslands nýtt bankaútibú í Vesturbænum. Verður útbú þetta til húsa í hinu nýja Há- skólabiói og fær það þar hin glæsilegustu húsakynni. — Er þetta fyrsta bankaútibúið í Vest urbænum, sem bankinn opnar. Nánar verður skýrt frá þvi síð- ar hér í blaðinu. RAFVÍITAN FÆR LANISVISS Rafmagnsveita Reykjavíkur hef ur nú fengið heimild borgarstjórn- ar til að taka 28 milljón króna lán i Sviss, til kaupa á vélum i við- bót þá sem gera á við varastöðina við Elliðaár. Er þetta fimm ára lán á 5>/2% vöxtum, sem.er tek- ið hjá Union Bank of Switzerland. Stsekkunin á stöðinni mun nema 11.500 kílóv tum. Smíðatími á rafalnum, sem keyptur er í Sviss, er 23 mánuðir, þannig að viðbót þessi verður komin upp 1965. Er áætlað að allur kostnaður við stækkunina muni nema um 65 milljónum króna. Ætlunin er að hafa bygginguna yfir rafalinn tilbúna áður en hann kemur. Verður hús stöðvarinnar stækkað nokkuð til norðurs. Ekki er um að ræða mikla stækkun, þar sem ketillinn er þegar kominn og hann er sá hluti sem mest rúm tekur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.