Vísir - 29.11.1962, Page 5
VÍSIR . Fimmtudagur 29. nóvember 1962.
5
Kvikmyndasýning
Anglíu á morgun
Hin fræga brezka kvikmynd
„Glæstar vonir“ (Great Expectat-
ions), sem gerð er eftir samnefndri
sögu Charles Dickens, verður sýnd
í Tjamarbæ, föstudaginn 30. nóv-
ember, á vegum Angliu.
Blaðafulltrúi —
Framh. af bls. 16.
þjónustu í Koreu og var í hemum
frá 1950—1953.
Blaðamennsku stundaði hann við
Pioneer Press í St. Paul, Minne-
sota.
Mr. Monson réðst til starfa hjá
Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna
árið 1957 og starfaði fyrst,í Was-
hington. 1958 var hann sendur til
Noregs og hefur verið blaðafulltrúi
þar þangað til £ september s. 1.
Mr. Monson gifti sig I júní síð-
astliðnum, norskri stúlku, sem var
einkaritari hans í fjögur og hálft
ár. Er kona hans með honum hér.
Er blaðið hafði tal af Mr. Mon-
son í morgun, sagði hann meðal
annars: „Við erum mjög hrifin af
þessum dásamlega vetri, sem þið
takið á móti okkur með. Við höf-
um hlakkað til að koma hér. Það
er alltaf gott að fara að vinna eftir
frí. Ég vona að ég eigi eftir að
eignast hér eins marga vini og í
Noregi“.
Samstarf —
Framhald af Ws 1
um að hægt verði að fá heitt
vatn inni við Blesugróf. Þar
hafði tilraunaborun farið fram
fyrir nokkrum árum og gefið
nokkra von. í sumar lét Reykja
víkurborg framkvæma tilrauna-
borun við Árbæ. Var það um
200 metra djúp hola og var hit-
inn í botni hennar um 60 stig.
Það sem Kópavogsbúar óska eft
ir er að hefja samstarf við
Reykjavík um fleiri tilrauna-
boranir.
Stóri jarðborinn er nú stöð-
ugt að verki í bæjarlandi Reykja
víkur og er búizt við að hann
vinni fyrir Reykjavík allt næsta
ár. Verður aðallega borað í
bæjarlandinu, en tvær holur
verða gerðar uppi £ Mosfellsveit
næsta sumar.
í mynd þessari leika meðal ann-
ars, hinn vinsæli John Mills og
Alec Guinness. Þess má geta, að
samið hefur verið útvarpsleikrit
eftir áðumefndri sögu og var það
flutt £ Rfkisútvarpinu sfðastliðinn
vetur, og vakti mikla athygli. Sýn-
ingamar verða kl. 5 og 7 og er að-
gangur ókeypis fyrir meðlimi Ang-
lia. Fyrri sýningin er aðallega ætl-
uð fyrir börn félagsmanna. Að-
göngumiðar verða afhentir á
skemmtikvöldi Angliu f kvi^ld f
Sjálfstæðishúsinu.
Eftirspurn
FranJiald ai bls. 1
irspurn á heimsmarkaðnum er þvi
meiri en venjulega.
Verð á skreið er mjög viðunandi
og nokkru hærra en f fyrra. Virð-
ist áhugi mikill f Afríku á að kaupa
héðan skreið, en ekki verður enn
fyllilega sagt um árangur af vöra-
sýningunni.
Síldin
Framhald af bls. 16
stór og falleg, miðað við þá sfld,
sem veiddist á síðustu vetrarvertíð,
og jafmol stærri en sú sfld, sem
algengast er, að berist á markað í
Þýzkalandi um þessar mundir, en
mikið af henni er flutt út ferskt,
eins og. menn vita af fregnum um
aflasölur togaranna. Hún er af
þeirri stærð, sem er sérstaklega
góð f reyk og niðursuðu, enda er
vaxandi áherzla lögð á slíka verk-
un hennar.
Til fróðleiks má geta þess, að
á tfmabilinu frá október til des-
ember á s.l. ári bárast á land hér f
borg 206,949 tunnur síldar, og nam
söltun af þvf magni 12.826 tunn-
um, en að auki nam súrsun 3932
tunnum. Lætur nærri, að það hafi
verið um áttungur alls aflans.
Skoðaði—
Framh af 1. síðu.
Á Nýja Sjálandi skoðaði dr.
Gunnar Böðvarsson 110 þús. kíló-
vatta jarðgufuaflstöð til raforku-
framleiðslu og kynnti sér rekstur
hennar með hliðsjón af þvi að reist
verði sams konar eða svipuð stöð
á jarðhita|væðinu í Hveragerði.
Smyglhiutavelta Slysavarnafélagsins
Sigurður Hjálmarsson, verk-
stjórl f birgðageymslu Áfengis-
og tóbaksverzlunar rfkisins
stendur hjá hinum stóra stafla
smyglaðra vindlingapakka, sem
fyrirtækið hefur gefið Slysa-
varnaf élaginu til að haf a á hluta
veltunni, sem verður á Iaugar-
dag og sunnudag í Listamanna-
skálanum. Það var Jón Kjart-
ansson forstjóri sem átti frum-
kvæðið og Ieitaði samþykkis
fjármálaráðherra fyrir gjöfinni.
Einkasalan getur ekki selt þessa
smygluðu pakka með öðrum
vörum sínum, því á þær vantar
merki ÁTVR. Hins vegar eru
pakkamir stimplaðir sérstak-
Iega, til að koma £ veg fyrir
ólöglega sölu þeirra. Ágóðinn af
hlutaveltunni rennur allur til
styrktar Slysavamafélaginu, og
eru Reykvíkingar hvattir til að
sækja hlutaveltuna og styrkja
þar með gott málefni.
Fyrirsögnin f Helsingin Sanomat.
Stöð þessi í Nýja Sjálandi verður
stækkuð innan skamms upp í 250
þús. kílóvött. Dr. Gunnar sagði, að
Nýsjálendingar myndu þó fremur
kjósa vatnsvirkjanir til raforku-
framleiðslu, en þannig hagar til að
á norðureynni, þar sem gufuafl-
stöðin er, er skortur á fálfyöftium
til virkjunar, en á suðureynni ér
nægilegt vatnsafl, og er ætlunin að
leiða rafmagn þaðan f framtíðinni
eftir háspennustreng í sjó til norð
ureyjarinnar.
EKKI TIL UPPHITUNAR.
Vegna gerólfkra aðstæðna er
hagnýting jarðhitans á Nýja Sjá-
landi allt önnur en hér. Þar er
hann hvorki nýttur til upphitunar
íbúðarhúsa eða gróðurhúsa, vegna
þess að þar er miklu hlýrra lofts-
Iag og svo stuttur upphitunatími
húsa að vetrinum að ekki er talið
svara kostnaði að reisa jarðhita-
mannvirki með það fyrir augum.
Þarna suður frá er og verður jarð
hitinn þvf fyrst og fremst nýttur
til raforkuframleiðslu, ýmist til al-
mennrar notkunar eða með stór-
iðju fyrir augum, í sambandi við
jarðhitamannvirkin.
Dr. Gunnar sagði að hann hefði
kynnzt ýmsu fróðlegu í þessari
ferð og ekki færi hjá því að við
gætum margt lært af jarðhitatækni
og reynslu Nýsjálendinga, þótt við
byggjum við ólíkar aðstæður.
Dr. Gunnar kom heim um Ame-
ríku þar sem hann hitti ýmsa vís-
indamenn að máli og rak ýmis er-
indi.
Hátíðahöldin —
Framhald af bls. 16
sveigur með áletruninni „frá ís-
lenzkum stúdentum með virðingu
og þakklæti", á fótstall styttu Jóns
Sigurðssonar á Austurvelli. Þar
flytur form. hátíðanefndar Jón E.
Ragnarsson, ávarp. Kl. 14 hefst
hátíðasamkoman. Aðalræðumaður
verður Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, og fjallar ræðan um það efni
sem dagurinn er helgaður: Sjálf-
stæði íslands og hættan af ólýð-
ræðislegum stjórnmálastefnum.
Jón Ragnarsson, stud. jur. form.
stúdentaráðs flytur ræðu um stöðu
stúdentsins í þjóðfélaginu. Stein-
ar Berg Björnsson, stud. oecon set
ur samkomuna. Gísli Magnússon
mun Ieika á pfanó og Kristinn
Hallsson syngur með undirleik
Fritz Weisshappel.
Hófið að Hótel Borg hefst með
borðhaldi kl. 19. Þar flytur dr.
Björn Sigfússon, háskólabókavörð-
ur ræðu. Síðan verða mörg
skemmtiatriði. Guðmundur Guð-
jónsson og Sigurveig Hjaltested
munu syngja. Þá syngur tvöfaldur
kvartett stúdenta, og einnig verð-
ur almennur söngur. Nú mun
verða endurreistur hinn gamli
þjóðlegi siður, að flutt verða minni
kvenna og karla, háskólans, þjóð-
höfðingjans og ættjarðarinnar.
Gísli Sigurkarlsson, stud. jur. mun
flytja skemmtiþátt, og að lokum
verður stiginn dans til kl. 3 að
morgni. Veizlustjóri verður Jakob
Þ. Möller, stud. jur.
Hátíðárnefnd skipa: Jón E. Ragn-
arsson, stud. jur., form., Eiður
Guðnason, stud. jur. Steinar B.
Björnsson, stud. oecon, Sverrir
Bergmann, stud. med. og Úlfar
Guðmundsson, stud. med.
Vörubifreið: Seljum f dag Mer-
cedes Benz ‘60 til sýnis á staðnum
Fólksbifreiðir: Ný station bifreið
óskast f skiptum fyrir Fiat 1800
station 60 milligjöf staðgreidd. —
Höfum ávallt kaupendur að nýjum
c" nýlegum bifreiðum.
Bifreiðasalan RÖST
LAUGAVEG 146, simi 11025
Orðsending
til úfgerðarmanna
ÁSTRALSKA MEHMlié
Onko Australiassa ollenkaan
kultuuria? Þannig hljóðar fyrir-
sögnin á grein sem nýlega birt-
ist I finnska blaðii? Helsingin
Sanomat. En setning þessi þýð
ir: Er engin mennl. I Ástral-
íu? Og hún fjallar um þau tfð-
indi heima á íslandi að þar hafi
menningarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, Gunnar Dal, nýlega
lýst því yfir að áströlsk mcnn-
ing risi ekki hátt.
En þá hafi þau tíðindi gerzt,
segir Helsingin Sano iat, að unp
áströlsk stúllca, Jane Vaughan
sem stundar nám við Háskól:
íslands, uafi risið upp sármóðg-
uð og skorað menningarfuiltrú-
ann á hólm og vilji berjast við
hann í einhverju samkomuhúsi
borgarinnar.
Segir Helsingin Sanomat. að
Sessa einstæða einvíg' milli
karlmanr. >g k- jmann ;c beð
ið með mikilli eftirvæntingu i
Reykjavík.
Þar sem fulltrúi frá Bergens Mekaniske Verk-
steder A/S, Bergen, verður staddur hér föstu-
dag og laugardag næstkomandi, geta þeir út-
gerðarmenn, sem þess óska, fengið allar upp-
lýsingar um þilfarsvindur og Bergen Diesel í
skip sín.
Vélaverkstæði
Siw* ^vðSnbJörnsson
Reykjavík.