Vísir - 06.12.1962, Side 7
V 1 S IR . Fimmtudagur 6. desember 1962.
•'C-ssn®
BARNABÆKUR
FRÁ LEIFTRI
Sjö bækur handa telpuni og
drengjum eru komnar út á veg-
um prentsmiðjunnar Leifturs.
Eru fimm bókanna við drengja
hæfi, en tvær einkum ætlaðar
telpum, þótt fastlega megi gera
ráð fyrir, að drengir og telpur
hafi jafnmikið gaman af öllum
þeim bókum, sem hér er um að
ræða.
Telpubækurnar eru um Möttu
Maju, sem er nú á ferðinni í tí-
unda og eilefta sinn. Heitir hin
fyrri „Matta-Maja á úr vöndu að
ráða“, en hin síðari „Matta-Maja
gerist dansmær", og segja báðar
frá hressandi ævintýrum, sem
koma hjörtum lesenda til að slá
hraðar.
Meðal drengjabókanna ber
fyrst að nefna tvær Bob Moran-
bækur, og heitir önnur Eldkióin
en hin Ógnir í lofti. Lendir Bob
Moran í miklum mannraunum
eins og venjulega, en allt fer vel,
þótt oft horfi illa og allt virðist
í rauninni vonlaust. Bob Moran-
bækurnar hafa verið vinsælar
fram að þessu, og eins mun verða
um þessar. Þá eru tvær Kim-
bækur, Kim og blái páfagaukur-
inn og Kim er hvergi smeykur.
Segir í hinni fyrri, er Kim og fé-
lagar hans lyfta hulunni af ó-
happaverki, sem unnið var á göml
um einsetumanni, en hin síðari
segir frá því, er þau sanna sak-
leysi manns, sem er grunaðuT
um þjófnað. Fimmta drengjabók-
in heitir „Fjórir á fleka“ og fjall-
ar um ævintýri fjögurra tjaldfé-
laga.
NÝ BÓK EFTIR
ENID BLYTON
Út eru komnar tvær af hinum
vinsæiu „Dodda“bókum, sem hér
hafa verið gefnar út á undan-
förnum árum.
Eru þetta ævintýri handa
yngstu lesendunum, sem einnig
meta mikils góðar og litríkar
myndir, en höfundurinn er Enid
Blyton, sem er meðal vinsælustu
barnabókahöfunda hér og erlend-
is. Þessar tvær Doddabækur, sem
nú koma á markaðinn eru „Af-
índriði G. Þorsteinsson.
79 AF STÖÐINNI
Fyrir skömmu er komin á
markaðinn ný útgáfa af skáld-
sögu Indriða G. Þorsteinssonar.
Sjötíu og níu af stöðinni.
Fyrsta útgáfa þessarar sögu
kom út I marz 1955 og önnur út-
gáfa, í vasabroti, mánuði síðar.
Síðustu eintök þeirrar útgáfu
seldust upp á síðastliðnu sumri. |
f þessa-. nýju útgáfu sögunnar
eru margar myndir úr kvik-
myndinni, svo og á kápu bókar-
innar. Útgáfan er vönduð og
smekkleg. Útgefandi er Iðunn.
ÍS OG MYRKRI
undurinn helgi
Það er ekki nema rúmur ára-
tugur síðan fyrsta bók Björns
Blöndals kom út (1950) og nú er
sú sjötta komin, LLfNDURINN
HELGI.
Birni var frá upphafi vel tekið
og hverri bók, sem frá hans
hendi hefur komið hefur verið
vel tekið. Þær eru þessar:
Hamingjudagar, Að kvöldi dags,
Vinafundir, Vatnaniður, Örlaga-
þræðir og nú Lundurinn helgi.
í nýju bókinni eru þessar sög-
ur: Nótt, Gráni, Bildur, Jökull,
Bergbúar, Arnarstapi, Snotra,
Endurfundir, Surtur. Sama
smekklega stílbragðið er hér á
öllu sem í fyrri bókum höfundar,
setningar stuttar og hnitmiðaðar
og frásögninni hvergi spillt með
málalengingum og alls staðar
kemur fram næmieiki og skiln-
ingur á ferfættum samferðafélög-
um sveitafólksins og raunar
fleirum.
Bókin er líkieg til hollra áhrifa
á æskulýð landsins sérstaklega
og raunar alla, sem lesa hana.
A. Th.
Rit um Stefán
frá Hvítadal
reksverk Dodda“ og „Doddi í
ræningjahöndum". Þær eru báðar
litprentaðar á vandaðan pappír og
með sterkum spjöldum. Útgef-
andi er Myndabókaútgáfan.
Jón Helgason ritstjóri.
Bókaútgáfa Menningarsjoðs hef
ur nýlega sett á bókamarkaðinn
fyrra bindi rits Ivars Orglands
rektors um manninn og skáldið
Stefán frá Hvítadal. Rit þetta er
samið á norsku og er það þýtt
af Baldri Jónssyni og Jóhönnu
Jónsdóttur.
í formála rekur höfundur rits-
ins tildrög þess, að hann lagði
út í þetta verk. Þar segir m. a.:
„En á þessum tíma hafði ég
hafið starf, sem gerði það æski-
legt, að ég dveldist á íslandi leng
ur ... Hugmynd mín var að
skrifa meistaraprófsritgerð um
Björnstjerne Björnson og hljóm-
listina og hafði ég viðað að mér
nokkru efni í þessu skyni. En nú
var áhuginn á islandi orðinn svo
ríkur, að ég leitaði ráða hjá þá-
verandi dósent í síðari tíma bók-
menntum íslenzkum, dr. Stein-
grími J. Þorsteinssyni, um val á
hæfilegu efni. Dr. Steingrímur
benti mér á að fyrir mig sem
Norðmann væri mjög vel til fallið
að skrifa annað hvort um sagna-
skáldið og Brandessinnann Gest
Pálsson, sem hafði m. a. lært af
Alexander L. Killan eða ljóð-
Nýbók eft-
irMac Lean
Út er komin ný bók í íslenzkri
þýðingu eftir metsöluhöfundinn
Alistair MacLean. Nefnist hún
Skip hans hátignar, Ódysseifur.
Þýðandi er Andrés Kristjánsson,
ritstjóri.
Efni bókarinnar er sótt í sjó-
hernaðinn í síðustu heimsstyrj-
öld, en þar var höfundur sjálfur
þátttakandi. Meginhluti bókar-
innar gerist á hafinu norðan og
Út er komin á forlagi ísafold-
arprentsmiðju bókin I ís og
myrkri eftir Friðþjóf Nansen, en
þýðinguna hefur Hersteinn Páls-
son ritstjóri gert. Er þetta þýð-
ing á hinni frægu bók Nansens
„Fram over Polhavet", sem náði
afburðavinsældum á sínum tíma.
Rekur bókin hrakningaferð Nan-
sens og félagá hans Fredriks
Hjalmars Johansens um heim-
skautaísinn 1 15 mánuði.
Fáir leiðangrar vörpuðu eins
miklum ljóma á nafn Norges og.
Framleiðangurinn 1893-96, og í
þessari bók segir frá frækileg-
asta þætti þessa leiðangurs —
gönguför Nansens og Johansens
urn auðnir Norður — íshafs * og
baráttu þeirra í 15 mánuði við
ís og myrkur, kulda og klæð-
leysi. Oft voru þeir í yfirvof-
andi lífshættu, er jakar sprungu
undir þeim, bjarndýr og rost-
unga réðust á þá eða þeir misstu
húðkeipa sína, svo að Nansen
varð að leggjast til sunds eftir
þeim í helköldum sjónum. En
þeir stæltust í hverri raun og
urðu að verðleikum þjóðhetjur,
er heim kom.
Bókinni er skipt í 14 kafla,
hún er prýdd fjölda mynda, 307
bls. að stærð.
ísienzkt mannlíf
Út er komið nýtt bindi, hið
fjórða í röðinni, af ISLENZKU
MANNLÍFI eftir Jón Helgason,
sem flytur frásagnir af íslenzk-
um örlögum og eftirminnilegum
atburðum.
I þessu nýja bindi eru tólf frá-
sagnir, sem bera eftirtaJin heiti:
Postulinn á Fellsströnd, Útilegu-
menn í Árnessýslu, Bóndinn í
Arnardrangi, Ættstærsti íslend-
ingur á Brimarhólmi, Helför
Jóns Bergþórssonar Jólabarn í
biskupsgarði, Reimleikarnir á
Bárðarstöðum, Róstur í Skái-
holtsskóla, Næturævintýri á
Möðruvöllum, Manndauðinn í
Svínavallakoti, Festarkona Þórð-
ar Sveinbjörnssonar og Systur í
syndinni.
Myndir og einn uppdráttur
eftir Halldór Pétursson listmál-
skáldið Stefán frá Hvítadal, sem
hafði dvalizt nokkur ár í Noregi
og numið mikið af norskri ljóð-
list, þannig að hann varð nýskap-
andi í íslenzkri Ijóðagerð, þegar
hann gaf út fyrstu kvæðabók
sína, Söngva förumannsins, 1918.
Sökum ástar minnar á Ijóðiist,
varð Stefán fyrir valinu“.
Bókin er með mörgum myndum
og í alla staði vel vandað til ytra
frágangs. Hún er 272 bls. Síðara
bindi ritsins er væntanlegt að
ári.
.... v- í .. V. , ...
Alistair MacLean.
norðaustan við ísland, og ekki
þarf að efa, að frásögnin er
spennandi, þegar þessi höfundur
á hlut að máli.
Ódysseifur er fyrsta bók
höfundarins, sem til þess tíma
var óþekktur skozkur framhalds
skólakennari, en var orðinn
heimsfrægur metsöluhöfundur fá
um mánuðum eftir útkomu þess-
arar bókar. Áður hafa komið út
tvær bækur eftir hann á ís-
lenzku: Byssurnar í Navarone og
Nóttin langa. — Iðunn gefur út
bækur Alistair MacLean hér á
landi.
bindi
ara prýða bókina, og á kápu er
mynd hans af „postulanum á
Felisströnd", Matthíasi Ólafs-
syni á Orrahóli.
Þetta nýja bindi af íslenzku
mannlífi er vel og smekklega út
gefið, eins og fyrri bindin, m. a.
eru . ...ðarkápur bókanna bundn-
ar með, og kunna a. m. k. bóka-
menn vel við það. Útgefandi er
Iðunn.