Vísir - 11.12.1962, Blaðsíða 3
Um klukkan 15 í gær lagðist
Gullfoss að bryggju f Reykja-
víkurhöfn eftir siðustu ferð sína
frá útlöndum fyrir jólin. Skipið
var fullt af farþegum, fólki, sem
hafði farið hringferðina, öðr-
um, sem voru að koma í jóla-
leyfi, og enn öðrum, sem nú
koma hingað alkomnir cftir
kannske margra ára veru erlend
is við nám eða önnur störf. Á
Heim með Gullfossi
hafnarbakkanum beið mikill v
mannfjöldi til að fagna ættingj-
uni og vinum. Veður var kalt,
hvasst og eilítil snjómugga.
Myndsjáin birtir nokkrar
myndir af farþegunum og ein
sú, efsta, er af farþegum, sem
þyrpzt höfðu út á þilfar til að
veifa f land. Á næstu, efstu
myndinni, er Sigurður Karlsson,
húsgagnaarkitekt og kona hans,
Solveig, sem er dönsk, og Rune
sonur þeirra. Sigurður hefur
starfað í Randers, og flyzt nú
heim eftir 2 >4 ár, til starfa í
íslenzkum húsgagnaiðnaði. Til
vinstri í þriðju röð er Þórður
Albertsson, fulltrúi Sölusam-
bands íslenzkra fiskframleið-
enda á Spáni. Hann sagðist ekki
hafa verið á Islandi um jól, síð-
an fyrir átta árum. Nú er hann
kominn til að borða rjúpur,
sagði hann, „þótt þær hafi hækk
að í verði“. Sumir menn fylgj-
ast með. Sigurður Líndal, cand.
jur. er við hlið Þórðar kominn
frá Bonn, þar sem hann hefur
dvalizt í hálft annað ár á styrk
frá Humboldt-stofnuninni við
nám og rannsóknir í réttarsögu.
Lengst til hægri, við hlið Sig-
urðar, er ungfrú Þóra Möller,
ljóshærð, komin úr hringferð.
Hún vill ekki láta þess getið,
hvort þetta hafi verið verzlun-
arferð, a. m. k. ekki ef það á að
birtast í blaði. Neðst í vinstra
horni er svo Sigfús H. Andrés-
son, sem lengi hefur dvalizt í
Kaupmannahöfn við rannsóknir
á íslenzkri verzlunarsögu á tíma
bilinu 1774—1885. Hann hefur
viðað að sér gríðarmiklu af efni
í doktorsritgerð, sagði hann,
fulla tösku er hann með, og
meira til. Hann er alkominn og
heldur áfram störfum sinum
heima. Loks er mynd af þeim,
sem komu til að taka á móti
fólkinu. Það finnur dálítið fyr-
ir kuldanum og snjónum, en það
kemur ekki að sök í þetta sinn.