Vísir - 11.12.1962, Side 16
VISIR
Þriðjudagur'' 11. desember 1962
Færð þyngist
Þæfingsófærð kom í nótt á Hell-
isheiðarveginn, einkum í Hveradala
brekkuna og Smiðjulautina, en þó
ekki svo að hún væri til trafala
fyrir mjólkurbílana eða aðra stóra
bíla.
Hásvíkingar voa-
góðir umhitaveitu
Eins og kunnugt er af fréttum
hefir Norðurlandsborinn verið tek-
inn niður í Ólafsfirði ,og að undan
förnu hafa staðið yfir flutningar á
honum til Húsavikur. Borinn er
fluttur í mörgum hlutum, bæði sjó
veg og landveg, og eru síðustu
hlutarnir væntanlegir með Flóa-
bátnum til Húsavíkur í dag. Hús-
víkingar hafa ráð á bornum í
5 mánuði, ef með þarf, og byggja
miklar vonir um hitaveitu fyrir
kaupstaðinn á rannsóknum og um
sögnum sérfróðra manna.
Ákveðið hefir verið að bora á
tveimur stöðum. Fyrst verður bor
að á gömlum borstað, norðaustur
á svonefndum Háhöfða. Þar er 50
metra djúp hola og er rúmlega 20
stiga hiti á botni hennar en ekki
komið niður á vatn. Ennfremur á
að bora upp að svonefndum Lauga
dal. Tíu menn eiga að vinna að
Framh. á bls. 5.
Sala jóiatrjáa
hefst í vikuaai
Vonir standa til að hægt verði
að hefja sölu á jólatrjám næsta
fimmtudag, samkvæmt upplýsing-
um frá Skógræktarfélagi Reykja-
víkur. Síðasta sendingin af jóla-
trjám kom til landsins með Gull-
fossi um helgina, en áður voru
komnir tveir farmar.
Verð á jólatrjánum er það sama
og' i fyrra. Lægsta verðið er 75
krónur, fyrir tré sem eru rétt innan
við einn meter að hæð. Hæstu tré,
sem almennt eru notuð innanhúss,
eru um 2,50 metrar og kosta þau
220 krónur.
Lítið er í ár af íslenzkum jóla-
trjám, en ekki mun vera langt í
land að hægt verði að skaffa öll
jólatré hér, sem þörf er á. Trén
eru að mestu leyti keypt hjá |
danska heiðafélaginu á Jótlandi,
Skógræktarfélagið vill sérlega;
benda fólki á að geyma ekki trén ]
á heitum stað og taka þau ekki'
inn í hús fyrr en nauðsyn krefur,
þar sem þau eru mjög fljót að
þorna upp við stofuhita.
Vesfur-íslendmgur
forsefi læknufélugs
Vestur-íslendingur hefur nýlega
verið kjörinn forseti læknafélagsins
í Manitobaríki í Kanada. Maður
þessi er Kjartan Ingimundur John-
son, ættaður frá Lundar.
Kjartan er í föðurætt Svarfdæl-
ingur. en úr Borgarfirði syðra í
móðurætt. Hann er fæddur árið
1910, stundaði læknanám við Mani-
tobaháskóla og lauk prófi þaðan
1937. Framhaldsnám í læknisfræði
stundaði hann í Winnipeg
■jfcr Sambandsstjórn brezku verka-
lýðsfélaganna ræðir við Maudling
fjármálaráðherra ráðstafanir vegna
þess að hætt er við gífurlegri aukn
ingu atvinnuleysis, nema gripið sé
til sérstakra ráðstafana.
Aðalfundur
fulltrúaróðs
Radíóvirkinn sést hér með þjófahamarinn, sem notaður var til að
brjótast inn með. Allir góðir borgarar sem geta ættu að hjálpa til
við að upplýsa þjófnað þennan.
Þjófahamariaa
Það getur verið að hægt sé
aðlíeita uppi þjófa með einum
hamri. Mynd af hamrinum birt-
ist hér hjá, hann var notaður
til ifð brjótast inn í radíóverk-
stæðið að Laufásvegi 41 í fyrri
nótt. Þar hefur Halldór Malm-
berg radíóvirki rekið verkstæði
og verzlun f fremur Iitlu hús-
næði. lEn þegar hann kom á
verkstæðið í gærmorgun brá
honum við, þvi að 9 útvarps-
tækl og eitt segulbandstæki
höfðu horfið um nóttina. Hall-
dór varð þar fyrir miklu tjóni
milii 25 — 30 þús. krónur. En í
staðinn fyrir tækin höfðu þjóf
arnir skilið eftir þennan hamar
sem þeir höfðu notað til að
brjóta rúðu. Hamarinn ar all-
sérkennilegur. Skaftið á hon-
um er hálft með gúmmíhlíft en
hálft krómað. Á gúmmíhlífina
eru á einum stað skornar með
hníf fjórar skorur og á endann
Frh. á bis. 5
Aðalfundur Sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík fer fram í
Sjálfstæðishúsinu í kvöld og
hefst kl. 8.30. Á fundinum fara
fram venjuleg aðalfundarstörf,
en að þeim loknum mun Jó-
hann Hafstein alþingismaður
flytja ræðu um stjórnmálasam-
starf Atlantshafsríkjanna.
Vanskil
Afgreiðsla Vísis gerir allt
sem unnt er til þess að kaup-
endur fái blaðið með skilum.
Alltaf getur þó komið fyrir að
einhver misbrestur verði á út-
burði blaðsins til áskrifenda.
Eru því kaupendur í Reykjavík
beðnir að tilkynna vanskil
þegar í stað í síma 11660.
Allar kvartanir sem berast
fyrir kl. 8 að kvöldi verða af-
greiddar samstundis og biaðið
sent til kaupendanna.
- i.i.. iii *
16 ÁREKSTRAR í GÆR
Sextán árekstrar urðu á götum
Reykjavíkur s. 1. sólarhring, eða
frá þvi klukkan 6 I gærmorgun og
þar til klukkan 6 í morgun.
Auk þess varð eitt umferðarslys,
sem varð klukkan langt gengin tvö
á Suðurlandsbraut móts við Háloga
land. Fjögurra ára drengur, Ás-
björn Ólafsson, Gnoðavogi 50,
hafði hlaupið á bíl og meiðzt lítils-
háttar. Sjúkrabifreið flutti dreng-
inn í Slysavarðstofuna, en iæknar
töldu meiðsli hans ekki mikil.
Um síðustu helgi tók lögregian
í Reykjavík 5 ölvaða ökumenn við
akstur.
Að því er kjötkaupmenn borgar-
innar telja, verður nóg til af hvers
kyns fuglakjöti til jólanna, en það
er nú vinsælasti hátíðamaturinn.
Eina undantekningin frá þessu eru
rjúpur, sem nú skortir.
Rjúpur hafa selzt mikið í haust
og meira en undanfarin ár. Nú er
þó mjög erfitt að fá þær. í haust
voru þær seldar út á 45 krónur
kílóið, en eftirspurn hefur reynzt
svo mikil, að verðið er nú komið
allt upp í 75 krónur kílóið. Jafnvel
á þv£ verði er ekki hægt að fá
nema takmarkað magn.
Nóg er til af öndum, bæði ali-
öndum og pekingöndum, sömuleið-
is villigæsum, aligæsum og kjúkl-
ingum. Þá eru nú á markaðnum
kalkúnar, allt upp í 10 kíló að
þyngd. Það er þó æði dýr matur,
þar sem kílóið kostar upp undir
150 krónur.
NY GETRAUNA-
KEPPNI VÍSIS
Á morgun hefst getrauna-
keppni hér í blaðinu með nýju
sniði. Öllum kaupendum Visis
er heimii þátttaka. Vegleg verð-
iaun verða veitt fyrir réttar
ráðningar og verður dregið úr
svörunum eftir 10 daga.
Á morgun verður ítarlega
skýrt frá getraunakeppninni og
er öllum kaupendum blaðsins,
áskrifendum sem öðrum, bent á
að fyigjast vel með þessari ný-
breytni.
Nóg aföðru fugla-
kjöti ea rjúpu
«--•------- vi ■.*