Vísir - 13.12.1962, Blaðsíða 3

Vísir - 13.12.1962, Blaðsíða 3
SUNDKNATTLEIKUR er Iítt þekkt íþróttagrein hér á landi, eink urn síðari árin. Fyrir nokkrum ár- um var þó talsvert fjör í þessari grein og þá fór iandslið í keppnis- ferð til Norðurlandanna og landslið keppti á Olympíuleikunum. í Beriín 1936. — Á mánudagskvöldið fór fram keppni f sundknattleik í Sund höll Reykjavíkur og fóru Myndsjár menn á staðinn og kynntu sér hvemig leiknum er háttað. Leikið er í 4 lotum, sem hver stcndur í 5 mínútur. Verða leik- menn að halda sér á floti þann tíma sem leikurinn stendur og þarf mikla hörku og úthald til að öðlast getu í leik þessum og engum aukvis um er ráðiagt að leggja leik þenn- i an fyrir sig. Oft er hönd lögð á koll andstæðingsins og honum dif-j ið á bólakaf, en þetta er leyfilegt samkv. IeikreglUm, en ólöglegt er hins vegar að kaffæra á annan hátt. Harka verður oft mikil í leikj um, einkum ef þeir em jafnir og| oft verða dómararnir á laugarbökk- unum að reka menn upp úr fyrirj grófan Ieik, enda reyna menn sitt af hverju í skjóli gáraðs vatnsins, sem dómaramir eiga oft erfitt með að sjá í gegnum. Myndirnar á síðunni sýna vel þennan sérkennilega en skemmti- lega leik. Efst eru tvær myndir sem sýna tvo leikmenn glíma um boltann, en á myndinni til hægri hefur sundmaðurinn verið hindrað- ur, og hönd andstæðingsins hvílir á handlegg hans. pnnur mynd sýn- ir hvar verið er að skjóta að marki, ömgglega mark, ef skytt- unni hefði ekki verið difið í bóla- kaf. Uppréttu hendurnar tilheyra markverði KR, en Ragnar Vignir bíður átekta. Markvörðurinn, sem ver svo frækilega, mun vera ÍR- ingur. (Ljósm. Vísis: B. G.).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.