Vísir - 13.12.1962, Blaðsíða 16

Vísir - 13.12.1962, Blaðsíða 16
VISIR rimmtudagur 4*5. aes. íyoz. VERÐLAUNAGETRAUN VÍSISi Á 5. SÍÐU í DAG Framlag til Þingvalla og stjórnarráÍshúss Meirihluti fjárveitingarnefndar | hefur Iagt fram breytingatillögur sínar á fjárlögum og kennir þar ýmissa grasa. Stærstu breytingarn ar sem meirihl. nefndarinnar gerir eru hækkuð framlög til samgöngu bóta (4 millj.) og hafnarbóta (3,3 millj.), einnig til landnáms (700 bús.) og ræktunarframkvæmda (1, 6 millj.)Þá leggur nefndin tii að rfkinu verði heimilað að ábyrgjast i lán allt að 35 millj. til bygginga og endurbóta á síldarverksmiðjum ' og síldarumhleðslustöðvum. Athyglisverð atriði sem fram koma í tillögunum og væntanlega verða samþykkt eru m.a.: ic Umbætur á Þingvöllum (1,5 millj. kr.) byggingar á stjórnar ráðshúsi (2 millj.), til embætt- isbústaða héraðsdómara og presta (3,7 millj.). Framlag til ríkisfangelsa og vinnuhæla (2 millj.) til utanfar- ar og námskeiða iþróttamanna (300 þús. kr.). Til aflatrygginga vegna aflabrests togara (15 millj.). Áfengis- og tóbaksverzlun rikis ins verður heimilað að greiða Krabbameinsfélagi íslands 25 aura af hverjum seldum 6- merktum vindlingapakka. Að ríkið greiði Sigurði Ólafs- syni 200 þús. vegna flugvéla- kaupa, að kaupa plöntusafn Ey- þórs Einarssonar, að kaupa grasasafn Helga Jónssonar. Ríkið taki allt að 1 milljón kr. Frh. á bls. 5. Mariner II nálgast reikistjörnuna Venus Kóuavogskirkja vígð á sunnudag Hin nýja og glæsiiega kirkja Kópa-1 vogskaupstaðar verður vígð kl. j 10,30 n. k. sunnucjag og messað í henni á jólunum. Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjöm Einars- son, framkvæmir vígsluna, sóknar- presturinn, séra Gunnar Árnasorv prédikar, en vígsluvottar verða séra Jón Auðuns dómprófastur í Reykjavík, séra Jón Thorarensen, Huida Jakobsdóttir formaður safn- aðarnefndar i Kópavogi og Jósa- fat J. Líndal safnaðarfulitrúi. Kópavogskirkja rúmar 275 manns í sæti og má heita fullbú- in að innan. Henni hafa borizt stór' gjafir, meðal þeirra er altarisbún- aður allur. Pípuorgel er í pöntun. Organisti kirkjunnar, Guðmundur Matthíasson, leikur á orgel við vígsluna og stjórnar söng kirkju- kórsins. Kirkjan er ekki fullgerð að ut- an ennþá en gengið hefir verið frá flóðiýsingarútbúnaði og verður kirkjan fliðlýst um hátíðarnar. — Gamlar kirkjuklukkur úr Þjóð- minjasafninu hafa verið fengnar að láni til bráðabirgða og verður þeim hringt látlaust allt að klukkustund frá kl. 6 á laugardagskvöld, kvöld- Framh. á bls. 5. Á morgun mun bandaríska geimfarið Mariner It' verða komið f mestu nánd sem það verður við reikistjömuna Ven- us. Er þess nú beðið með mik- illi eftirvæntingu, hvort öll tæki f geimfarinu verði í lagi og hvort það getur sent mæl- ingar og sjónvarpsmyndir til jarðarinnar. Myndin sýnir hvernig þetta geimskip lítur út á fluginu í geimnum. Síðast þegar til var vitað virt ust senditækin í Mariner II í lagi, en þau eru sett af stað með radiómerki frá jörðinni. Mariner II var skotið á loft frá Canaverai-höfða þann 27. ág. og hefur því verið 108 daga á leiðinni. Geimskipið mun nú fara minna en 15 þús. km. frá Venus. Venus er sú reikistjarna, er næst er jörðunni, en samt er einna minnst um hana vitað, þar sem hún er hulin þykkum og ógagnsæjum Iofthjúp. Hins vegar má vera, að sjáist í gegn um hjúpinn þegar komið er eins nálægt plánetunni eins og Mariner fer og telja má víst að hægt verði að framkvæma ýmsar nákvæmar mælingar svo sem á efnasamsetningu loft- hjúps Venusar o.fl. ef öll tæki verka. Jóhannes biskup heim frá RÓM Herra Jóhannes Gunnarsson, biskup kaþólsku kirkjunnar á íslandi, kom til landsins í nótt af kirkjuþinginu í Róm. Blaðið Rangfærslur um kaupmátt Tvöfalt ranghermi er í Þjóðviljanum í morgun um 10% aukning kaup- máttar launa verka- manna, sjómanna og iðn aðarmanna síðustu fjög- ur árin. Ár Þjóðviljinn segir, að við út- reikning þessara talna sé reikn- að með launum allrar fjölskyld- unnar, einnig þvf sem konan og börnin vinna sér inn. Þetta er alrangt. 1 töium Efnahagsstofn- unarinnar er aðcins reiknað með launurn fjölskylduföðurins sjálfs. Á þessu ári eru meðal- laun hans tæp 100 þúsund og er kaupmáttur þeirra launa vaxandi. ★ Hin rangfærsla Þjóðviljans er sú, að viðskiptamáiaráðherra hafi beitt vísitölu framfærslu- kostnaðar til þess að finna kaup mátt árskaupsins. Þetta er rangt. Viðskiptamálaráðherra notaði nákvæmlega sömu vfsi- tölu til grundvallar útreikning- unum og Einar Olgeirsson í sín- um útreikningum eða verðlags- vfsitöluna. . Er því grundvöllur- inn sá sami. ir Það mun þannig reynast erfitt fyrir Þjóðviljann að rengja með rökum þá staðreynd. að kaupmáttur meðallauna hafi aukizt um 10% á sfðustu fjór- um árum. hafði tal af honum í morgun og spurðist fyrir um helztu mál þingsins. Sagði biskupinn svo frá: — Þegar boðað var til þings- ins var aðaltilgangur þess að samræma starfsaðferðir kirkj- unnar nútíma ástandi. Var í því sambandi fyrst og fremst rætt um líturgiu, sem gengur miklu lengra en almennir kirkjusiðir. Var rætt mikið um hvort leyfa ætti að nota móðurmálið í stað latínunnar, við flutning mess- Þeir sem helzt eru fylgjandi því að nota móðurmálið eru trúboðarnir og norrænu kirkj- urnar. Rómanskar kirkj-deild- ir voru því yfirleitt mótfallnar. Virðist mér að meginstefnan sé sú, að þetta verði leyft f æ rík- ara mæli, þegar sérstaklega stendur á, þó að ekki hafi nein endanleg ákvörðun verið tekin. Þegar hefur verið leyfð notk- un móðurmáls við útdeilingu kominn sakramentanna utan messunn- ar og mér virðist Ijóst, að þetta sé vaxandi. Frh. á bls. 5. Gunncsr Sisiurðsscm# frú SelaSæk, Súfinn Gunnar Sigurðsson frá Sclalæk, fyrrum alþingismaður og ritstjóri Vísis á árunum 1914—15, andað- j ist í sjúkrahúsi Hvítabandsins hér í Reykjavílc í morgun, cftir ör- skamma legu. Hann var á 75. ald- ursári, fæddur 14. júlí 1888 f Helli í Ásahreppi í Rangárvallasýslu. Gunnars mun verða nánar getið síðar hér í blaðinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.