Vísir - 17.12.1962, Síða 1
52. árg. — Mánudagur 17. desember 1962. — 284. tbl.
Képavogskirkja vígð
Hin nýja Kópavogskirkja var
vígð í gær af biskupinum yfir ís-
landi, Sigurbirni Einarssyni,
Hófst athöfnin klukkan hálf eliefu
og var kirkjan þéttsettin fólki.
Meðal gesta voru forseti íslands
Ásgeir Ásgeirsson og kirkjumála-
ráðherra. Einnig voru viðstaddir
Ásmundur Guðmundsson, fyrrver-
andi biskup, og séra Bjarni Jóns-
son, vigslubiskup.
Áður en athöfnin hófst, gengu
prestar og safnaðarráð í skrúð-
göngu í kirkju, með gripi kirkj-
unnar. Fremst gengu meðlimir safn
aðarráðs, síðan prestar og loks
biskupar.
í upphafi athafnarinnar flutti
biskup vígsluræðu sína. Séra Gunn
ar Árnason, sóknarprestur, prédik-
aði, og þjónaði fyrir altari ásamt
biskupi. Barn var skírt í athöfn-
inni. Var það sonur hjónanna
(Bjöms Magnússonar og Ingibjarg-1 varð sjálfstæð sókn í Bústaða-
ar Bjömsdóttur og var skírður prestakalli árið 1952. Var þegar
Snorri. byrjað að ræða um kirkjubyggingu
Formaður safnaðarráðs, frú og 1957 gerði húsameistari rlkis-
j Hulda Jakobsdóttir, rakti bygg- ins tillöguuppdrátt að klrkjunni.
j ingarsögu kirkjunnar. Kópavogur | Frh. á bís. 5.
i----------------------------------------
Sjómaður slasast
( Það slys vildi til á laugardag
um borð í vélbátnum Þórkötlu frá
Grindavík, að háseti Jón Ólafsson,
varð fyrir þungri blökk og slas-
j aðist alvarlega.
Báturinn var að veiðum f Jökul-
I djúpinu er þetta gerðist. Vegna
I þess hve augljóst var að þarna
i hafði átt sér stað alvarlegt slys
! var þegar í stað siglt á fullu til
lands, en það er 6 klukkustunda
sigling til Keflavíkur. Var hann
lagður þar inn á sjúkrahús. 1 ljós
kom að Jón var höfuðkúpubrotinn
og hafði fengið aðkenningu af
lömun.
Batahorfur Jóns voru allgóðar i
morgun, en annars var Iíðan hans
eftir atvikum. Jón Ólafsson er frá
Reykjavfk. '
Frá vígslu Kópavogskirkju. Sigurbjöm Einarsson biskup og sr. Gunnar Ámason sóknarprestur fyrir altari.
Ófærð / morgun
Rússneski píanósnillingurinn
Asjkenasi heldur fyrsta pfanókon-
sert sinn í Þjóðleikhúsinu í kvöld.
Kom hann ásamt eiginkonu sinni
Þórunni Jóhannsdóttur til Reykja-
víkur á laugardaginn.
Þau hjónin hafa að undanförnu
verið á hljómleikaferð um Banda-
ríkin en segja má að það hafi
verið ein samfelld sigurför Asjken-
asis og hafa bandarisk blöð sagt,
að hér sé upprennandi nýr Richter.
Héðan munu þau hjónin fara til
Englands, þar sem Jóhann Tryggva
son faðir Þórunnar og fjölskylda
hans em búsett og dveljast hjá
þeim um jólin. Síðan er förinni
heitið til Moskvu, þar sem þeirra
bfður ungbam.
Þórunn og Asjkenasi búa hér á
Hótel Sögu. Hefur Þórunn notað
tækifærið til að sýna manni sín-
um ættborg sína í jólastemmningu.
Asjkenasi hefur lýst því yfir, að
áður en hann kynntist Þómnni í
músikskóla í Moskvu hafi hann
engin kynni haft af Islandi önnur
en þau, að hann eignaðist tvö ís-
lenzk frímerki, þegar hann safnaði
frímerkjum sem ungur drengur.
Annars hlakka þau hjónin mest
til að komast heim til barns síns í
Moskvu. Finnst þeim nú vera æði
langt sfðan þau sáu Iitla son sinn.
Ofviðri mikið fór yfir
Bretlandseyjar um helgina,
Norðursjó allan og löndin
sem að honum liggja að
austan, og á þessu svæði
öllu var hvassast á Bret-
landi, með vindhraða allt
að 170 km á klukkustund,
þar sem verst var. Ofviðr-
ið náði allt austur á sléttur
Ungverjalands.
Skipskaðar urðu og tjón varð
mikið á landi, bilanir á leiðslum
og húsum, vegir tepptust vegna
fannkomu, símalínur slitnuðu,
verksmiðjubyggð hús tók á loft og
þeyttust langar leiðir og kom eitt
I niður á járnbrautarteina, en reyk-
I háfar hrundu og meiddust menn f
, tugatali af fljúgandi múrsteinum.
I í Edinborg brotnaði og fór um
I koll jólatré mikið sem Kaup-
I mannahafnarborg hafði gefið Ed-
inborg að árlegri venju, en jólatré
á almannafæri í London brotnuðu
líka. Víða brotnuðu tré þannig, að
þau lágu þvert yfir vegi eftir
fallið. Mörg skip lentu í sjávar-
háska. Þýzkt skip, Nautilus, fórst
á Norðursjó og með þvf nokkrir
menn, gríska skipið Aristoteles
var yfirgefið og belgiskt veður-
skip sökk.
Víða hefur verið mjög kalt f
veðri. Frost komst upp f 35 stig á
Finnmörku, en vfða allt að 27 stig-
um. í Oslo var rúmlega 7 stiga
frost og kaldast á Austurlandi
(östlandet) 26 stig, en hlýjast í
Bergen 0.6 stig í morgun.
í morgun var ófært austur fyrir
fjall vegna snjóskafla sem komið
höfðu á veginn, einkum í námunda
• við Lögberg og á Sandskeiðinu.
Vegagerðin lét ryðja snjónum
svo að stærri bílar komust leiðar
sinnar, og síðan átti að lagfæra
veginn betur, þannig að búizt var
við að flestir bílar kæmust hann
upp úr hádeginu í dag ef aðstæður
breyttust þá ekki til hins verra.
Hellisheiðarvegur er ófær og
ekkert hugsað um að moka hann
sem stendur, en umferðinni allri
beint um Þrengslaveginn.
í Hvalfirði hafði sums staðar
dregið í smáskafla á veginum, en
ekki svo að stórir bílar brytust
ekki í gegn. Hins vegar er leiðin
öll flughál og sama gegnir um
Reykjanesbrautina.
Norðurleiðin er ennþá fær stór-
um bílum, en Vegagerðin ráðlegg-
Frh. á bls 5
OFSA VCOUR í ÁLFUNNI
VÍSIR
tengdasonum Islands.
Þórunn sýnir eigin-
manninum borgina