Vísir - 17.12.1962, Síða 3

Vísir - 17.12.1962, Síða 3
V1S IR desember 196, 3 b‘- Guðmundur Bjömsson forstjóri með risakerti. Hérna sést nýja tæknin f notkun. Vélar sem steypa kerti skjótlega f löngum röðum. Hér sést hvernig stærstu kertin eru enn gerð upp á gamla móðinn, bómullarkveiknum er difið ofan í vaxið og kertið myndast smám sam- an utan um hann. Stúlkumar skreyta snjókertin. Jólakertin steypt Þau em fá islenzku heimilin, er láta ekki kertaljós loga á jólaborðinu eða nota kertaljós til þess að varpa birtu og yl inn á heimilið yfir jólahátíðina. Fyrir nokkm skmppum við i stutta heimsókn í kertagerðina Hrein, og birtir Myndsjáin i dag nokkrar myndir frá þeirri heim- sókn. Lítið er um innflutning er- lendra kerta, þar sem íslenzkar verksmiðjur em fullkomlega samkeppnishæfar. Það var mikið að gera, og tjáði framkvæmdastjórinn, Hall- grímur Bjömsson, okkur, að þeir hefðu ekki undan að fram- leiða fyrir jólin, þó unnið væri yfir helgar. Ársframleiðslan væri nú yfir tuttugu og fimm tonn og framleiddar væm nú tólf tegundir af kertum og sum- ar tegundir í fleiri en einni stærð, en langmestu eftirspum- ina kvað hann vera í hinum svokölluðu „Antik-kertum“. Sagði Hallgrfmur að kertafram- leiðsla hjá Hreini ykist ár frá ári, en salan væri næstum ein- göngu bundin við jólamánuð- inn. Hefur Hreinn framleitt kerti yfir 40 ár og unnið væri allt árið um kring. Það vakti athygli okkar að þó vélar hafi nú verið teknar í notkun em kert framleidd á svipaðan hátt og tíðkaðist áður fyrr. Notaður er stór vaxpott- ur, kveiknum dýft niður í hann og vaxið smám saman látið storkna. Vélmenningin hefur og ekki náð algjörlega yfirtök- unum, því mjög mikið er hand unnið og skreytt í höndunum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.