Vísir - 21.12.1962, Side 9
VÍSIR . Föstudagur 21. desember 1962,
9
JÓLAÖLIÐ
Kristinn Lýðsson við skilvindu, sem skiiur öl.
er lokið er það svo sett í
geymslutanka og er þá tilbúið
til afgreiðslu.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson
framleiðir margt fleira en öl.
Eru helztu tegundir þessar:
sinalco, spur, appelsin, Hi-
spot, sódavatn, engiferöl, grape
fruit, Canada Dry appelsín, og
jarðarberjadrykkur. Ölið er svo
maltöl, hvítöl og pilsner.
Jólagosdrykkir.
Fleiri framleiða sérstaka jóla-
drykki en Ölgerðin, þó að þar
sé ekki um öl að ræða. Sanitas
framleiðir sérstakan jóladrykk,
sem er gerður úr aprikósu og
appelsínusafa. Hann er gos-
drykkur og aðeins settur á
markaðinn fyrir jólin.
Hjá Sanitas er talið að fram-
leiðslan í desember sé um það
bil helmingi meiri en í meðal-
mánuði á öðrum tíma ársins.
Sanitas framleiðir marga drykki,
svo sem pepsi cola, seven-up,
geisla, polo, appelsín, grape
fruit, sódavatn, engiferöl og an
anas. Þá framleiða þeir einnig
ávaxtasafa, sem ætlaður er til
að blanda hann vatni og er ekki
með gosi. Má segja að aukning-
in komi jafnt niður á alla drykk
ina.
Það virðist því allt benda til
að Reykvíkingar verði ekki þurr
brjósta yfir hátíðina. Ekki mun
heldur hætta á að drykki skorti
úti á landi þar sem mikið er
flutt héðan út á land.
Þá eru einnig á Akureyri tvær
verksmiðjur sem framleiða gos-
drykki, undir nöfnunum Flóra
og Sana. Alls eru framleiðendur
fimm á landinu og hafa allir
mikið að gera fyrir jólin.
Einn hestvagn.
Þegar hann byrjaði hjá fyrir-
tækinu, var framleiðslunni ekið
út á einum hestvagni, en núna
eru notaðir til þess 10—12 bíl-
ar. Hjá fyrirtækinu vinna nú
að staðaldri um 70 manns, að
frátöldu skrifstofufólki. Fólki
er þó fjölgað verulega fyrir
jólin og er núna um eða yfir
hundrað, meðan á jólaönnum
stendur. Ekki er nema takmark-
aður tími, sem heppilegt er að
< geyma ölið og því ekki hægt að
byrja að safna birgðum fyrr en
seinast í október.
Fyrsta stigið í framleiðslunni
er að mala kornið sem fer í það.
Það er gert í sérstakri kvörn og
eru notuð 4—800 kíló í hverja
lögun. Úr myllunni fer kornið
í suðupottinn. Þar er það soðið
með vatni, þannig að það renn-
ur saman við vatnið.
Næst fer það í stóra kæli-
bakka. Þeir eru stórir um sig
en grunnir. Þar er það látið
standa f nokkra klukkutíma til
að kólna. Eru hafðir opnir
gluggar allt í kring, til að gefa
loftstraum. Þaðan gengur ölið
svo í gegnum kæla, sem eru
vélknúnir, til frekari kælingar.
Þaðan fer ölið í tanka, þar
sem það er látið standa um
tíma til að gerjast. Þegar því
Þarna er jólaölið sett í ílátin sem viðskiptavinir koma með.
A' nkell Ingimundarson, með kom f höndunum, sem fer í ölið.
í ölgerð Egils Skalla-
grímssonar er nú mikið
að gera við að selja jóla-
ölið. Er þar stöðug ös að
kaupa öl, sem selt er í
lausu máli, og verða
menn að koma með ílát
og er þá mælt í þau með
sérstökum tækjum. Er
þetta til sölu hjá Ölgerð-
inni, sem er eini aðilinn,
sem framleiðir öl í
Reykjavík.
Margir nota sér þetta fyrir
jólin, þvf að þetta er miklu ó-
dýrara en að kaupa ölið í flösk-
um. Líterinn kostar svona 6,95
krónur. Koma menn með öll
möguleg ílát, allt frá brenni-
vínsflöskum upp f 30 potta
mjólkurbrúsa.
Ö1 það sem er kallað í dag-
legu tali jólaöl fæst allt árið
og nefnist þá hvítöl, þó að það
sé dökkt að lit. Er ekki veruleg
sala f því að öllu jöfnu, nema
tyrir hátíðar og þá sér í lagi
fyrir jólin. Helztu efni sem í
ölið fara, eru malt og humlar,
og svo vatn. Hvernig farið er að
því að fá öl úr þessum efnum,
er hernaðarleyndarmál.
Brugg.
Ekki er ölið áfengt, en hug-
vitssamir menn hafa komizt
upp á lag með að brugga úr
þessu ágætt öl, sem getur orðið
talsvert áfengt, hjá færum og
vandvirkum mönnum. Ekki er
okkur kunnugt um hvernig far-
ið er að því, en reynslan hef-
ur sýnt að þetta brugg getur
orðið hinn ágætasti drykkur.
Við fórum í Ölgerðina við
Frakkastíg, til að kynna okkur
frekar hvernig öl þetta er búið
til. Á Frakkastfgnum er brugg-
að allt öl Ölgerðarinnar en gos-
drykkjaframleiðsla er í verk-
smiðju í Þverholti. Þar eru
einnig eigin vélaverkstæði, bíla-
verkstæði og trésmíðaverkstæði
Ölgerðarinnar.
Okkur til leiðsagnar fergum
við Arnkel Ingimundarson,
verkstjóra yfir verksmiðjunni á
Frakkastíg. Hann hefur unnið
hjá fyrirtækinu í nærri 37 ár
og kveðst ekki hafa neinar ráða
gerðir um að skipta um vinnu.