Vísir - 22.12.1962, Blaðsíða 12
vTsTr . Mánudagur 17. desember 196.
Sérstætt rit
eftir sérkennilegan mann
Út kemur nú í fyrsta sinn frásögn Magnúsar Stephensen, konferens-
ráðs af ferð hans til Kaupmannahafnar árið 1825 og dvöl hans við
dönsku hirðina. í bók þessari, sem rituð er með hinum sérkennilega
stíl og stundum skringilega frásagnarmáta Magnúsar eru alvég bráð
skemmtilegar lýsingar á hirðlífinu og aldarhætti þessara tfma. ná-
kvæmar myndir dregnar upp af kóngsböllum, veizluhöldum fyrirfólks,
klæðabúnaði og heimilisháttum. Auk þess hefur bókin að geyma fróð-
leik um Islandsmálin á fyrsta fjórðungi síðustu aldar.
úrvals jélabækur
FYRSTA FERÐABÓKIN
UM VATNAJÖKUL
NORÐUR YFIR VATNAJÖKUL 1875
eftir W. L. WATTS
JÓN EYÞÓRSSON íslenzkaði og samdi formála.
Ut er komin ferðabók „Norður yfir Vatnajökul 1875“
eftir Englendinginn W. L. Watts, sem fyrstur manna
fór ásamt íslenzka fjallamanninum PÁLI JÖKLI um
Vatnajökul þveran. í þessari afar skemmtilegu og á
köflum bráðskemmtilegu bók segir frá einu mesta
landkönnunarafreki á íslandi.
Fjöldi gamalla mynda prýðir bókina.
Norður yfir Vatnajökul er kjörin jólabók handa
öllum, sem unun hafa af góðum ferðasögum og
fegurð íslenzkrar náttúru.
Áður hefur forlag okkar gef-
gefið úr verkið Merkir ís-
lendingar í 6 bindum, sem
var 3000 blaðsíður að stærð
og hafði að geyma 100 ævi-
sögur íslendinga frá ýmsum
löndum.
M€RKIR
ÍSL€N Dl NGAR
Ot er komið ritið MERKIR ÍSLENDINGAR.
Er þetta fyrsta bindi í NÝJUM FLOKKI.
í þessu fyrsta bindi, sem er 340 blaðsíður að stærð
eru eftirtaldir:
Skafti Þóroddsson, lögsögumaður
Bjöm Einarsson, Jórsalafari
Jón Ámason, biskup
Snorri Bjömsson, prestur
Þorleifur Guðmundsson Repp
Hannes Stephensen, prófastur
Jörgen Pétur Havstein, amtmaður
Jón Borgfirðingur, fræðimaður
Jón Stefánsson, — Þorgils gjallandi, skáld
Pétur Jónsson, á Gautlöndum
Guðmundur Magnússon, prófessor
Magnús Guðmundsson, ráðherra
Bókin er hafsjór af fróðleik og sérstaklega er
vandað til frágangs hennar og útlits.
Merkir íslendingar er rit, sem vekur heilbrigðan
þjóðarmetnað og er prýði á sérhverju bókelsku
heimili.
Með Valtý Stefánssyni
Út er komin bókin „Með Valtý Stefánssyni“. Bjarni
Benediktsson, ráðherra, ritar formálsorð fyrir bók-
inni. Matthías Johannessen, ritstjóri, segir í samtals-
þáttum frá æsku og uppvaxtarárum Valtýs.
Svo er í bókinni fjöldi frásagnaþátta eftir Valtý og
viðtöl við þjóðkunna menn. Bókin er í senn mjög
fróðleg og skemmtileg aflestrar eins og fyrri bækur
Valtýs, sem allar hafa verið metsölubækur.
Með Valtý Stefánssyni er jólabók fyrir
ealla, jafnt karla, sem konur, unglinga
sem eldra fólk.