Vísir - 22.12.1962, Qupperneq 12

Vísir - 22.12.1962, Qupperneq 12
vTsTr . Mánudagur 17. desember 196. Sérstætt rit eftir sérkennilegan mann Út kemur nú í fyrsta sinn frásögn Magnúsar Stephensen, konferens- ráðs af ferð hans til Kaupmannahafnar árið 1825 og dvöl hans við dönsku hirðina. í bók þessari, sem rituð er með hinum sérkennilega stíl og stundum skringilega frásagnarmáta Magnúsar eru alvég bráð skemmtilegar lýsingar á hirðlífinu og aldarhætti þessara tfma. ná- kvæmar myndir dregnar upp af kóngsböllum, veizluhöldum fyrirfólks, klæðabúnaði og heimilisháttum. Auk þess hefur bókin að geyma fróð- leik um Islandsmálin á fyrsta fjórðungi síðustu aldar. úrvals jélabækur FYRSTA FERÐABÓKIN UM VATNAJÖKUL NORÐUR YFIR VATNAJÖKUL 1875 eftir W. L. WATTS JÓN EYÞÓRSSON íslenzkaði og samdi formála. Ut er komin ferðabók „Norður yfir Vatnajökul 1875“ eftir Englendinginn W. L. Watts, sem fyrstur manna fór ásamt íslenzka fjallamanninum PÁLI JÖKLI um Vatnajökul þveran. í þessari afar skemmtilegu og á köflum bráðskemmtilegu bók segir frá einu mesta landkönnunarafreki á íslandi. Fjöldi gamalla mynda prýðir bókina. Norður yfir Vatnajökul er kjörin jólabók handa öllum, sem unun hafa af góðum ferðasögum og fegurð íslenzkrar náttúru. Áður hefur forlag okkar gef- gefið úr verkið Merkir ís- lendingar í 6 bindum, sem var 3000 blaðsíður að stærð og hafði að geyma 100 ævi- sögur íslendinga frá ýmsum löndum. M€RKIR ÍSL€N Dl NGAR Ot er komið ritið MERKIR ÍSLENDINGAR. Er þetta fyrsta bindi í NÝJUM FLOKKI. í þessu fyrsta bindi, sem er 340 blaðsíður að stærð eru eftirtaldir: Skafti Þóroddsson, lögsögumaður Bjöm Einarsson, Jórsalafari Jón Ámason, biskup Snorri Bjömsson, prestur Þorleifur Guðmundsson Repp Hannes Stephensen, prófastur Jörgen Pétur Havstein, amtmaður Jón Borgfirðingur, fræðimaður Jón Stefánsson, — Þorgils gjallandi, skáld Pétur Jónsson, á Gautlöndum Guðmundur Magnússon, prófessor Magnús Guðmundsson, ráðherra Bókin er hafsjór af fróðleik og sérstaklega er vandað til frágangs hennar og útlits. Merkir íslendingar er rit, sem vekur heilbrigðan þjóðarmetnað og er prýði á sérhverju bókelsku heimili. Með Valtý Stefánssyni Út er komin bókin „Með Valtý Stefánssyni“. Bjarni Benediktsson, ráðherra, ritar formálsorð fyrir bók- inni. Matthías Johannessen, ritstjóri, segir í samtals- þáttum frá æsku og uppvaxtarárum Valtýs. Svo er í bókinni fjöldi frásagnaþátta eftir Valtý og viðtöl við þjóðkunna menn. Bókin er í senn mjög fróðleg og skemmtileg aflestrar eins og fyrri bækur Valtýs, sem allar hafa verið metsölubækur. Með Valtý Stefánssyni er jólabók fyrir ealla, jafnt karla, sem konur, unglinga sem eldra fólk.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.