Vísir - 09.01.1963, Page 1
53. árg. — Miðvikudagur 9. janúar 1963. — 7. tbl.
A forsíðum tíikubkðmna
1 viðtali við Visi á 4. siðu
segir María Guðmundsdóttir
frá ýmsu i starfi sínu. Hún er
ein af eftirsóttari tizkumynda-
fyrirsætum Parísarborgar, en
er nú á leið til New York til
að starf þar. Myndir af henni
hafa birzt í öllum helztu tizku-
blöðum heims, og þær eru ekki
margar sem fá hærri laun fyrir.
Drukkinn ökumaður veldur
stórtjóni á 4 bifreiðum í nótt
Seinni hluta síðastiiðinnar næt-
ir vöknuðu íbúar við gatnamót
’taplaskjólsvegar og Hringbrautar
við geysilega skelli og hávaða eins
^g allt ætlaði að göflunum að
langa.
Orsökin til þessa hávaða var sú,
ið 4rukkinn ökumaður hafði kom-
ið á fleygiferð norður . Kapla-
skjólsveg, en beygt síðan austur
á Hringbrautina án þess að dragá
verulega úr ferðinni. Afleiðingin
varð sú að hann rakst á þrjár
kyrrstæðar bifreiðar þar á göt-
unni, olli meiri eða minni skemmd
um á þeim öllum, en þó
mestum á eigin bifreið, sem var
gersamlega óökuhæf og stór-
skemmd eftir áreksturinn.
Árekstur þessi var tilkynntur
lögreglunni kl. 5.40 eftir miðnætti
og að því e rlögreglan skýrði Vísi
frá í morgun, mun pilturinn hafa
misst stjórn á farartæki sínu, sem
var stór Buick-bifreið um leið og
hann beygði inn á Hringbrautina.
Lenti bíllinn þar fyrst utan í
gangstéttarbrúnina norðan göt-
unnar, en snýst við það til hægri
út á götuna, skellur þar á Mosko-
witzbifreið, sleppur við næstu bif-
reið sem stóð fyrir aftan hana, en
lendir á þeirri þriðju, sem var
Skoda-bifreið og slæst um leið
með afturendann í fjórðu bifreið-
ina sem var af Willys-Stationgerð.
■u—■ ■>!*■■ ■■ 11 .n iiii i
Eftir þenna ferlega árekstur sentist
Buick-bifreiðin aftur norður yfir
götuna og hafnaði þar á steinvegg
móts við hús nr. 84 við Hringbraut.
Þar lyktaði þessari sögulegu öku-
ferð, enda varð bifreiðinni ekki
komið lengra. Hún var flutt burt af
árekstursstað 'í morgun, Hinar
þrjár bifreiðarnar voru allar meir
eða minna skemmdar, en ekki bú-
ið að kanna skemmdirnar til hlít-
ar í morgun.
Eigendur bifreiðanna vöknuðu
með andfælum við hávaðann og
skellina í morgun og komu allir á
árekstursstaðinn.
Lögreglan kom og bráðlega á
staðinn og hirti ökumanninn, sem
var unglingspiltur, en bar á sér
sýnileg merki ölvunar. Kvaðst
hann hafa verið á dansleik í gær-
kveldi en að því búnu ók hann um
götur bæjarins sér til dundurs og
skemmtunar. Hann var færður til
blóðtöku í slysavarðstofuna, en
sleppt að því búnu.
Björgvin Jónsson
hættir á Seyðisfirði
Fyrir nokkru gerðist það
austur á Seyðisfirði, að Björg-
vin Jónsson kaupfélagsstjóri
sagði upp starfi snu. Skömmu
áður höfðu fjórir aðrir starfs-
menn kaupfélagsins, þeirra á
meðal gjaldkerinn, sagt upp
starfi. Það er ekki vitað hver
ástæðan fyrir þessum uppsögn-
um er og eigi mun kaupfélags-
stjórinn hafa fengið starf ann-
ars staðar ennþá. Hann mun
ætla að fiytjast í burtu frá Seyð
isfirði.
Björgvin Jónsson hefur ver-
ið kaupfélagsstjóri á Seyðisfirði
í nærri áratug. ííann var ungur
þegar hann tók við starfinu og
tók um Ieið við forystu Fram-
sóknarmanna á staðnum. Var
m. a. kjörinn þingmaður Seyð-
isfjarðar um tíma.
VERKSMIDJURNAR VERDA
ELYTJA SllDINA
SEGJA SÍLDARSKIPSTJÓRAR
Kari Karlsson.
Mikið hefur verið rætt
um það að undanfömu,
að nauðsyn bæri til að
flytja síld í verksmiðj-
urnar fyrir norðan, þar
sem víða þarf að bíða
lengi eftir Iöndun hér
syðra. Blaðið hafði tal
af tveimur skipstjómm,
sem voru staddir hér í
höfninni í morgun, til að
kynnast þeirra áliti á
þessu.
Við hittum fyrst að máli Hörð
Björnsson, sem er skipstjóri á
Ólafi Magnússyni. Hann sagði
m. a.: ,,Það hefur rætzt furðan-
lega úr þessu hér í Reykjavik
eins og er. Þegar ég kom inn
varð ég að bíða i 6 — 8 tima
eftir löndun, en nú er engin bið.
Þetta er þó ekki svona gott ann
ars staðar. Það hefði þurft að
vera búið að athuga með sild-
arflutninga norður fyrir löngu.
Maður vonar að það verði gert
eitthvað í þessu sem fyrst.
— Annars er það ekkert vit
að sigla ekki með meira en gert
hefur verið, og þarf að taka í
það miklu fleiri skip, á meðan
að hægt er að fá svona gott
verð úti. Hvað flutningunum
viðvíkur, reikna ég varla með
að þeir sem veiða, vilji flytja
hana sjálfir. Verksmiðjurnar
verða að gera það. Manni virð-
ist að það ætti að vera hægt,
fyrst að Norðmaðurinn, sem var
hér í fyrra, var til í að flytja
síldina til Noregs, og borga
meira fyrir hana en verksmiðj-
urnar gera hér.“
Við höfðum næst tal af Karli
Karlssyni, skipstjóra á Þorláki #
frá Þorlákshöfn: „Mér finnst aS^' , ,
með einhverjum ráðum verði-
að hagnýta þennan mikla og - %
góða afla,“ sagði hann. „Það er
ekki aðeins nauðsyn fyrir sjó-
mennina, heldur fyrir þjóðar- V
búið í heild. Það er engin leið
á þessum tíma árs að sigla sjálf ^
ur með aflann norður, nema^""
veður sé alveg sérstakt. Það.
þarf að nota í það miklu stærri;
skip, sem eru sérstaklega út-
búin til þess.
— Ég fæ ekki betur séð en
að það sé óeðlilegt að hafa öll
Framhald á bls. 5
Horður Bjornsson.