Vísir - 09.01.1963, Qupperneq 8
8
V I S I R . Miðvikudagur 9. janúar 1963.
VÍSIB
Jtgeíandi: Blaðaútgátan VlSIR
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G Sehram
Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinsson
Frétiastjóri: Þorsteinn ö Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 55 'rrónur á mánuði.
í lausasölu 4 kr. eini. — Sími 11660 (5 llnur).
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f
Mikils átaks er þörf
Síldarafli sá, sem barst á land hér á Suðvestur-
landi á síðasta vetri - eða frá 1. október 1961 til maí-
loka 1962 - nam hvorki meira né minna en 154 þús-
undum smálesta eða hátt á aðra milljón tunna, ef
þannig er talið. Nú berst slíkur óhemjuafli að á hverj-
um degi, þegar á sjó gefur, að hann er að nálgast
milljón tunnur. Virðist því fyrirsjáanlegt, að síldar-
aflamagnið verði eigi minna á þessum vetri, ef gæftir
verða sæmilegar og verulegur bátafjöldi heldur veið-
unum áfram.
Mikið hefir verið gert til þess að koma aflanum
í gott verð, nýrri markaða leitað í ýmsum löndum
og tekizt að selja nokkurt síldarmagn, en von mun
um, að hægt verði að koma síldinni á markað víðar.
Nýjar verkunaraðferðir hafa einnig verið reyndar, og
munu þær hafa gefizt vel, þótt ekki sé fengin mikil
reynsla að þessu leyti.
Eftir sem áður fer mikið af síldinni í bræðslu
eða er selt óunnið að öllu leyti, og fer fyrir lægra
verð en hægt ætti að vera að fá fyrir hana, ef meiri
vinna er iögð i að búa hana á markað. Er fullkomin
ástæða til þess, að það sé athugað mjög gaumgæfilega,
hvaða vinnsluaðferðir muni helzt henta til þess að
þjóðin fái sem mest fyrir þennan mikla afla. Mikils
átaks er þörf í þessu efni, og verður ríkisstjórnin að
hafa forgöngu um, að þetta sé athugað sem bezt, því
að ella verður vart nægilega vel unnið eða litið á eins
margar hliðar málsins.
Sá mikii síldarafli, sem hér er um að ræða, og al-
mennt mun vera talhm árviss, hlýtur að geta orðið
undirstaða fjölbreytts og góðs iðnaðar, sem fært getur
þjóðinni mjög miklar tekjur á komandi tímum, ef rétt
er á spilunum haldið. En hagnaðurinn verður aldrei
eins mikill og hann getur orðið, ef við erum ekki stór-
huga og erum fúsir til að leggja mikið fé af mörkum
til að smíða traustar undirstöður. Löndunartafir þær
sem skipin verða fyrir, ef veður er hagstætt um skeið,
eru áminning um það, að þörf er aðgerða í þessum
árum, svo að aflinn verði nýttur svo sem frekast er
unnt.
Reykingar barna og unglinga
Þær upplýsingar, sem fram komu í viðtali Vísis
við borgaralækni fyrir nokkrum dögum ,hafa að sjálf-
sögðu vakið mikla athygli og eigi lítinn ugg meðal
almennings. Það ér alvörumál, þegar börn eru farin
að reykja tíu ára gömul, og einnig þótt þau fari ekki
að reykja fyrr en mikiu síðar.
En hér er tngum im að kenna nema hinum full-
orðnu, sem hafa reykingarnar fyrir börnunum. Börn
eru að vísu hugvitssöir á marga lund, en flestan ósóm-
ann hafa þau beint frá fullorðnum. Reykingavaninn
hverfur ekki, nema hinir fullorðnu sé fyrst menn til
að leggja hann niður.
■
fll
Nýi landvarnaráðherr
ann / V-Þýzkalandi er
fullkomlega andv'igur
afskipt um hers af
stjórnmálum
„Ekki einu sinni tíu
hestar gætu dregið mig
til Bonn“, sagði hinn
nýi landvarnarráðherra
Vestur Þýzkalands fyrir
~ j
,, -V
Von Hassel með dr. Adenauer.
VON HASSEL
aðeins einu ári síðan. Þá
var hann og hafði í sjö
ár verið farsæll forsætis
ráðherra Schleswig-Hol
stein. Nýlega var hann
svo skipaður eftirmaður
hins umdeilda Franz
Josef Strauss.
Aðeins ákveðnar ósk-
ir Adenauers gátu dreg-
ið hann til Bonn.
nefndri Austur-Afríku, og Aust-
ur Afríka hefur ætíð í huga
hans verið eins og annað ætt-
land hans. Hann var handtek-
inn af Bretum í síðari heims-
styrjöldinni en þeir skiluðu hon
frama sinn að miklu leyti að
þakka Friedrich Wilhelm Lubke
bróður núverandi forseta V-
Þýzkalands Heinrich Liibke, en
forsetabróðirinn veitti von
Hassel fyrstu tækifærin í stjórn
málalegu starfi í Þýzkalandi.
í sínum flokki er von Hassel
talinn fulltrúi yngri kynslóðar-
innar og mótmælenda meðal
Kristilegra demokrata. Von
Hassel hefur enn þá ekki lýst
yfir stefnu sinni eða rætt um
skoðanir sínar á landvarnarmál
um, þvf hann tekur eklci við
starfi sínu fyrr en nú um miðj-
an mánuðinn. En stjórnmála-
fréttaritarar eru sammála um
að hann muni fyrir alla muni
forðast að blanda hernum í
stjórn landsins, eins ög' sagt var'
að Franz Josef Straúss hefðU
leitazt við að gera. Von Hassel
er talinn fastlega á þeirri skoð-
un að herinn eigi ekki undir
nokkrum kringumstæðum að
blanda sér í stjórnmál og aB
borgaraleg yfirstjórn hans eigi
að vera algjör, þegar úrslitaá-
kvarðanir eru teknar. Hinn riýi
landvarnarráðherra er eini ráð-
herrann í núverandi stjórn Ad-
enauers, sem er sú fimmta í röð
inni ,sem ekki á sæti í neðri
deild Sambandsþingsins í Bonn.
Hprngilkij&flfur
í S.-Afríku
Stærsti kjarnakljúfur Afríku
er nú í smíðum i borginni Pel-
indba, sem er skammt frá Pre-
toriu, höfuðborg Iandsins.
Það er félagsskapur Suður-Af
ríku-stjórnar og ýmissa fyrir-
tækja í landinu, sem stendur
straum af kostnaði við mann-
virki þetta, sem verður fullgert
á næsta ári. Til að byrja með
mun kjarnakljúfurinn aðeins
verða ætlaður til rannsóknar-
starfa, en S.-Afríka mun síðar
taka ákvörðun um, hvort heppi-
legt er að nota kjarnorku til
framleiðslu á raforku.
Þjóðarframleiðsla V.-Þjóðverja
náði nýju hámarki á s. 1. ári, og
er áætlað verðmæti hennar 333
milljónir marka.
Aukningin nam um 23 millj-
örðum marka, eða um sjö af
hundraði, og er það heldur
meiri aukning en orðið hafði ár
ið 1961, þegar um 5% aukningu
var að ræða, en hins vegar var
hún mun minni en næstu tvö
árin þar á undan, 1959 og
1960, þegar hún nam níu af
hundraði.
Nafn þessa nýja ráðherra,
sem svo skyndilega hefur skot-
ið upp á stjörnujimimi vesti|r
þýzkra stjommála er Kal-Uwe
von Hassel. Leið hans frá Kílar-
flóa til Rinarbakka hefur legið
yfir margar stjórnmálalegar tor-
færur.
Þegar Kai-Uwe von Hassel
myndaði fyrstu KÍIarstjórn
sína árið 1954 voru framundan
að þvf er virtist óyfirstíganlegir
örðugleikar, deilur um Ianda-
mæri að sunnan og austan,
ágreiningur við danska minni
hlutann og flóttamannavanda-
málið, sem var mikið og erfitt í
fylkinu. í mörgum þorpum fylk-
isins voru fleiri flóttamenn en
„innfæddir“. Schlesvig-Hol-
stein átti f miklum fjárhagsörð-
ugleikum og hafði orðið aftur
úr f viðreisn Vestur-Þýzkalands
eftirstríðsáranna. En nú er úr
því bætt, þótt með seinna móti
sé. Von Hassel getur þakkað
sér það.
Von Hassel er f dag 49 ára
gamall. Hann fæddist f þá svo-
Skuttogarar
vinsælir
í Noregi hefir það komið
mjög greinilega í Ijós, hvað
vistin í skuttogurum þykir
miklu betri en á venjulegum
togurum ,sem taka vörpuna inn
á síðunni. Nýlega var auglýst
eftlr mönnum á skuttogarann
Tromsöy I, og vantaði alls 21
mann. Þegar komið var að lok-
um umsóknartimans, höfðu alls
sótt um starfið 292 menn. Þá
vantaði einnig í haust sex
menn áskuttogarann Hemne-
strál, og buðust yfir 200 menn
til að gerast skipverjar á hon-
um. Það er hins vegar tekið
fram, að í haust hafi reynzt
mjög erfitt að fá menn á herpi-
nótaskip og önnur slík skip.
um til Glucksburg þar sem
hann hóf þáttöku sína í stjórn-
málum. Hann fékk til úrlausn-
ar húsnæðisvandamál Schlesvig
Holstein, en þau voru að því er
virtist óviðráðanleg. En svo vel
tókst honum að gegna hlut-
verki sfnu að hann varð meðal
virtustu stjórnmálamanna fylk-
isins á skömmum fíma og var
kjörinn til ríkisþingsins í Scles-
vig-Holstein árið 1950.
Brátt gerðist hann leiðtogi
Kristilegra demokrata f fylkinu
og skömmu síðar forsætisráð-
herra fylkisins. Jafnframt hæfi
leikum sínum og dugnaði, sem
skapaði svo góðan ára^gur í
störfum hans, á von Hassel
Verkfall
í Mosk vu
Þau undarlegu tíðindi hafa
gerzt, að í Moskvu hefir staðið
verkfall f meira en mánuð, og
er tilgangurinn með því að fá
fram kröfur um hærri laun.
Verkfallsmenn eru um 60
Ghana-búar, sem sendir hafa
verið til Moskvu til að læra þar
eftirlit og viðhald á sex rúss-
neskum farþegaþotum, sem
Rússar gáfu Ghana, en hafa
staðið þar ónotaðar í bráðum
tvö ár. Verkfall Ghana-mann-
manna hefir staðið í fjórar vik-
ur, og þeir vilja fá meira en 60
rúblur í vasapeninga á mánuði.
sn allur dvalarkostnaður þeirra
er annars greiddur. Yfirvöld-
um í Moskvu finnst, að svert-
ingjar þessir gefi borgarbúum
slæmt fordæmi og er meinilla
við verkfallið.