Vísir - 09.01.1963, Page 10
ín
V I S I R . Miðvikudagur 9. janúar 1963.
ÞeldökKur við
nám í Höfðaborg
Myndin hér að ofan er tekin
í háskólasjúkrahúsinu í Höfða-
borg í S.-Afríku og sýnlr ung-
an, þeldökkan stúdent, sem
leggur stund á læknisfreeði, á-
samt tveim hvítum stúdentum,
sem eru við sama nám. Þótt
mikið sé um það rætt í erlend-
um blöðum, hve illa sé farið
með þeldökka menn í S.Afríku,
hefir samt tala læknanema úr
þeirra hópi við háskólann I
Höfðaborg tvöfaldazt á skömm
um tíma. Árið 1960 voru ný-
stúdentar, sem innritaðir voru
i læknadeild háskólans, 18 að
tölu, en á sl. ári voru þeir orðn
ir 35. Um 50 svertingjar eru
starfandi sem Iæknar í Höfða-
nýlendunni.
Þakkir frá Hrafnistu
í nafni Hrafnistu og þeirra, sem
þar búa, flytur undirritaður hér
með innilegar þakkir öllum þeim,
sem hafa á liðnu ári stutt að heill
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna
og glatt vistmenn þess með gjöfum,
heimsóknum og margvíslegri
skemmtun og yndisauka.
Nú fyrir jólin bárust jólagjafir
úr ýmsum áttum, sem ekki er ætl-
azt til að allar séu nefndar, en
meðal þeirra var jólaglaðningur frá
sjómannakonum, sem með starf-
semi sinni og kaffisölu á sjómanna-
daginn söfnuðu fé í þessu augna-
miði, og er það að vísu engin ný-
lunda, því að það hafa þær gert
mörg undanfarin ár.
Þá bárust og gjafir frá öðrum
samtökum kvenna, sem hafa það
að venju að gleðja þá á jólunum,
sem blindir eru og í myrkri sitja.
Gísli J. Johnsen, stórkaupmaður,
afhenti nýiega til Hrafnistu pen-
ingagjöf, kr. 5.000.00, frá forstjóra
June-Munktell verksmiðjanna eða
„A/B Jönköbings Motorfabrik",
eins og verksmiðjurnar heita, sem
framleitt hafa hinn velþekkta
June-Munktell mótor. Það vekur
sérstaka eftirtekt, að hinn útlendi
maður, Gustaf Östergren, hefur á
undanförnum árum sent slíkar pen
ingagjafir, eða síðan hann var á
ferð hér fyrir nokkrum árum og
heimsótti þá Hrafnistu.
Nokkru fyrir hátíðar bauð Leik
félag Kópavogs vistmönnum á leik
sýningu, eins og frá var sagt í blöð-
um, og nú á milli jóla og nýárs
bauð Sjómannadagsráð vistmönn-
um á sjónleikinn „Hart í bak“, og
bannig hafa bæði félög og einstakl-
ingar hjálpazt að við að gleðja og
auka fjölbreytni hins daglega lífs,
sem lifað er á Dvalarheimili aldr-
aðra sjómanna.
Á Hrafnistu er allt þetta þakkað,
og nefndum og ónefndum velunn-
urum beðið Guðs blessunar með
ósk um gleðilegt ár.
Sigurjón Einarsson.
► Jafnvel í Noregi þykja það mik-
il tíðindi, að útgerðarfyrirtækið
Fred Olsen & Co. tók við þrem
skipum samtímis í skipasmíðastöð
í EI Gerrol á Spáni.
Norðmenn dragaúr
hvalveiðum syðra
Þátttaka Norðmanna í hvalveið-
um i Suður-I'shafi er nú minni en
hún hefir verið í meira en tíu ár.
Ástæðan er sú, að margir þeirra
em verið hafa helztu útgerðar-
menn Noregs á þessu sviði, telja
bátttöku annarra þjóða orðna svo
mikla, að áhættan sé orðin alltof
mikil, þegar um einkarekstur sé
að ræða. Vilja þeir þess vegna
hætta þessum veiðum og telja, að
f rauninni sé „hvalveiðiævintýrið á
enda“. í fyrra sendu Norðmenn t.
d. sjö leiðangra suður á bóginn,
og voru í þeim alls 71 skip,
bræðslu-, birgða og veiðiskip. —
Hins vegar eru aðeins fjórir norsk
ir leiðangrar í Suð.ur-Ishafi nú í
vetur — eða sumar, eins og það
heitir þar syðra — og í þessum
leiðöngrum eru aðeins 32 skip.
Það eru Japanir, sem sækja fast-
ast á miðin þar syðra og hafa þeir
aukið útgerð sína á hvalveiðar
jafnt og þétt á undanförnum ár-
um. Aðstaða þeirra er betri en
Norðmanna, af því að vinnulaun
eru miklu lægri hjá þeim, og þeir
geta þar að auki notað allt hval
lýsið og aðrar afurðir sjálfir á
heimamarkaði.
Keyptu sjónvurpsviðtæki —
óttu svo ekkert fé eftír
íbúar í Arendai keyptu svo mik
ið af sjónvarpsviðtækjum nokkru
fyrir jólin, að venjuleg jólavið-
skipti urðu minni fyrir bragðið.
Þetta segir meðal annars í frétta
bréfi til Vísis frá Osló, og er þess
getið, að kaupmenn í Arendal
minnist þess ekki, að jólaviðskipti
hafi verið eins dræm og að þessu
sinni, og kenna þeir það engu
öðru en því, að menn oftóku sig
Englandsbnnki
lækkar forvexti
Englandsbanki lækkaði forvexti
í fyrradag úr 4,5' í 4 af hundraði.
Þetta er í þriðja skiþti á 3 miss-
erum, sem bankinn lækkar for-
vexti, en þeir komust hæst í 7 af
hundraði.
Forvextalækkunin er tengd ráð
stöfunum stjórnarinnar til örvun-
ar i atvinnulífinu og til þess að
draga úr núverandi atvinnuleysi,
sem menn hafa miklar og vax-
andi áhyggjur af. Maudling fjár-
málaráðherra er sagður gera sér
vonir um, að unnt verði að lækka
forvexti enn frekar, jafnvel allt
niður í 3 af hundraði.
Myndsjó —
Framhaid a* bls. 3.
dansinn kemur einmitt upp á
sama veitingahúsinu, Pipar-
mintuklúbbnum. Þar eru menn
búnir að dansa twist stanzlaust
í nærri tvö ár og finnst nú kom
inn timi til að skipta um.
IS3
Nýi dansinn kallast „Hully
Gully“. Og er fólk nú aftur far-
ið að flykkjast til Piparmintu
klúbbsins til að kynna sér hann
og læra. Hann virðist eins og
twistið hafa komið upp fyrir
tilviljun í danshrifningu.
Talið er að sá, sem mestan
þáttlnn átti i að skapa hann,
hafi verið negradansarinn og
söngvarinn Van Prince. Segir
sagan að hann hafi verið að
dansa twist á gólfinu í Pipar-
mintu klúbbnum undir fox-
trot laginu „In the Mood“, þeg-
ar hann fór skyndilega i mikilii
stemningu að dansa hinn nýja
dans. Svo virðist seni þetta
hafi komið ósjálfrátt fram og
stúlkan, sem var að dansa við
hann, hifi ósiálfrátt fvlvt eftir.
En menn hykjast sjá í nýja
dansinum áhrif frá gömlum
svertingjadönsum, einkum svo
kölluðum Juba-dansi, innan úr
frumskóguin Afriku og einnig
frá hinum kunna madison-dansi,
sem var svo vinsæll í Banda-
ríkjunum fyrir nokkrum ára-
tugum.
ISl-
Hully GuIIy er líkur twist að
þvi Ieyti, að danspörin snertast
lítið, aðeins einstaka sinnum
sem þau leggja hönd í hönd, en
þess á milli dansa þau mest hlið
við hlið og gefur þetta dans-
inum miklu frjálsari og hraðari
hreyfingu og dansararnir geta
mikið impróviserað, þó þeir
haldi auðvitað hinum fasta
takti dansins. Það gefur honum
líka sterkan takt, að dansar-
arnir klappa stundum saman Ióf
unum.
Fjöldi af frægu fólki f New
York, leikarar og milljónamær-
ingar, sækja nú Piparmintu
klúbbinn til að læra sporin og
dansinn breiðist ört út, einkum
þó á fínni veitinga- og dans-
stöðum. Og ekki hefur heldur
liðið á löngu áður en hann
„hoppaði“ yfir Atlantshafið.
Hully Gully er nú þegar dans-
aður í Bretlandi, Frakklandi og
S ítaliu og er svertin"inn Van
°rince nú á ferðalag! í Evrópu,
en áhugafólk í HuIIy GuIIy hef-
I ur boðið honum þangað.
á sjónvarpsviðteekjakaupum eftir
a ðtekinn var í notkun nýr sendir
á Hovde-fjalli, sem bætir mjög mót
tökuskilyrðin í Arendal og grennd.
SALK-bóluefnið
hindraði drepsótt.
Þá segir og í bréfi þessu, að sex
manns hafi fengið lömunarveiki á
Vestfold á sl. hausti og hafi einn
sjúklingurinn andazt. „Gera má
ráð fyrir, að Salk-bóluefnið hafi
komið í veg fyrir, að ægileg drep-
sótt breiddist út um fylkið“ sagði
fylkislæknirinn, C.H. Schreiner, í
viðtali við blaðið Vestfold, sem
gefið er út f Túnsbergi.
Þær átta brennivínsverksmiðjur,
sem starfandi eru í Noregi, fram-
leiddu 3,8 millj. lítra af 100% vín-
anda úr kartöflum á sl. ári.
Á grávöruuppboði, sem haldið
var í Osló nýverið, voru seld 35
þús. blárefaskinn og 250 þús.
minkaskinn fyrir samtals 35 millj.
n.kr. eða sem svarar 210 ísl. kr.
Laugavegi 146 — Sími 11025
VÖRUBIFREIDlR
Austin 1961 með diesel-vél, ek-
inn aðeins 30 þús. km.
Chevrolet 1959 og 1961.
Ford 1948 með Benz diesel-
vél og gírkassa.
Ford 1959, F-600.
Mercedes-Benz ’54, ’55, ‘57, ’61
og ‘62.
Volvo ‘53, 7 tonna, góður bill.
Volvo ‘55 og ’61, ekinn 30 þús.
Margir þessara bíla fást með
miklum og hagstæðum lánum.
Auk þess eigum við fjölda af
eldri vörubílum, oft með mjög
hagkvæmum greiðsluskilmál-
um. — Þetta er rétti tíminn
og tækifærið til að festa kaup
á góðum og nýlegum vörubil.
Enn, sein ávallt áður eigum
við 4ra, 5 og 6 manna bifreiðar
í mjög fjölbreyttu úrvali.
Bezta og öruggasta þjónust-
an verður ætíð hjá RÖST.
Miðstöð vörubílaviðskiptanna
er hjá R ö S T.
RÖST S.F.
Laugavegi 146 — Sími 1-1025
ÍRÚLOFUNARHRINGAR
Garðar Olaffsson
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ ÓÐINN
Framhalds aðalfundur
Framhalds aðalfundur félagsins verður haldinn í Val-
höll við Suðurgötu mlðvikudaginn 9. janúar kl. 8,30
síðdegis.
DAGSKRÁ:
Lokið störfum aðalfundar.
Lagabreytingar.
Hættan af starfsemi kommúnista í verkalýðsfélög-
unurn. Framsögumaður Pétur Sigurðsson alþingis-
maður.
í»ess er fastlega vænzt, að félagsmenn fjölmenni á
lUhdinn.
STJÓRNíN.
/