Vísir - 19.01.1963, Side 6
VlSIR . Laugtúuugur 18. janúar 1968,
Gaitskeíl hættulega veikur
Það hefur komið
brezku þjóðinni mjög á
óvart, að Hugh Gaitskell
foringi annars hinna
tveggja stærstu stjóm-
málaflokka landsins hef
ur skyndilega veikzt svo
alvarlega, að honum er
vart hugað líf. Sex af
færustu læknum Breta
hafa staðið yfir sjúkra-
beði hans og leitað allra
ráða til að veita honum
lækningu. Hann þjáist
af óþekktum vírussjúk-
dómi, sem hefur lagzt á
nýru og hjarta. Lækn-
arnir hafa gefið út til-
kynningar um líðan
hans með stuttu milli-
bili og draga þeir þar
enga dul á það, að hann
sé í mikilli hættu.
Stórmál bíður.
Pólitískt koma þessi veikindi
Gaitskells Verkamannaflokkn-
um mjög illa. Hann stóð í for-
ustu í þeirri miklu baráttu sem
Verkamannaflokkurinn er að
hefja gegn íhaldsflokknum í
stórmálinu hvort Bretland eigi
að gerast aðili að Efnahags-
bandalaginu eða ekki. Enda
þótt læknunum takist að bjarga
lífi hans, er hætt við að Gaits-
skell verði ekki búinn að ná
sér áður en bardaginn hefst.
Þá mun varaformaður flokksins,
George Brown, taka við for-
ustunni, en hann er ekki tal-
inn eins litríkur og sterkur for
ingi eins og Gaitskell.
Vírusveiki.
Gaitskell veiktist í byrjun des
ember s. 1. og Iá þá um tlma
í sjúkrahúsi. Þá batnaði honum
og fékk hann að fara heim til
sín af sjúk'rahúsinu á Þorláks-
messu. En síðan veiktist hann
aftur og fékk þá þessa óþekktu
vírusveiki.
Frh. á bls. 5.
Myndir frá þingi austur-þýzkra kommúnista. Efri myndin sýnir Krúsjeff þar sem hann er að halda ræðu
sína. Neðri myndin sýnir áheyrendahópinn þar sem hann rís úr sætum eftir ræðu Krúsjeffs og hyllir
hann með lófataki.
Gaitskeil, er hann gekk út úr sjúkrahúsinu á Þorláksmessu.
Skæruliðar sprengja
herflutningalest í Kína
Krúsjefí MustaBi ekki ú
svarræiu Kínverjans
Flokksþing austur-
þýzkra kommúnista hélt
áfram í gær og gerðist
það helzt á því, að full-
trúi Kínverja tók til
máls og svaraði þá árás-
um þeirra Ulbrichts og
Krúsjeffs. Var Kínverj-
inn all harðorður ' og
gagnrýndi endurskoðun
arstefnuna, sem nú riði
húsum í hinum sósíal-
ísku herbúðum. Hélt
hann ákveðið fram kenn
ingum húsbænda sinna í
Peking um að kommún-
isminn kæmist einvörð-
ungu á með byltingu og
vopnavaldi.
Það vakti nokkra athygli, að
Krúsjeff lét ekki einu sinni svo
lítið sem að hlusta á Kínverjann.
Meðan Kínverjinn var að tala fór
Krúsjeff í heimsókn í verksmiðjur
í borginni og snerist athyglin mest
að þeirri hringferð hans um borg
ina.
Krúsjeff flutti ræðu um 6 þús
und verkamönnum í einni stærstu
verksmiðju Austur Berlínar og
kom hann víða við. Hann hélt
því m. a. fram að Bandaríkin væru
fimm ár á eftir Rúsum á sviði geim
rannsókna. Þá hélt hann þvl fram
að kreppa væri að hefja innreið
sína I Vestur Þýzkland og sagði
að kapitalistarnir hefðu nú síðustu
45 ár verið að reyna að ná kverka
1 taki á kommúnistaríkjunum. En
I þegar þeir reyndu það væru þeir
! aðeins að grafa slna eigin gröf.
1 Annað var á sömu lund I ræðu
hans.
Þrátt fyrir það kom enn sami
vilji til samkomulags hjá Krúsjeff
eins og I aðalræðu hans á flokks-
þinginu.
Hinum opinberu ræðum á flokks {
þinginu lauk I kvöld með ræðu
sem Ulbricht flutti. Hann svaraði
i ekki ræðu Kínverjans á aðra leið
en þá en að hann kvaðst vona að
Kínverjar bættu fyrir brot sín og
fylgdu Krúsjeff.
Um Vestur Berlín sagði hinn
austur-þýzki kommúnistaforingi,
að sá sem vildi vernda friðinn
yrði að semja og reyna að finna
friðsamlega lausn á vandamálun-
um. Kvaðst hann vera viss um að
hægt væri að finna friðsamlega
lausn á Berlfnardeilunni.
Þær fréttir hafa borizt til
Hong Kong frá kommún-
íska Kína, að stór herflutn
ingalest hafi verið sprengd
í loft upp á járnbrautar-
línu milli Canton og Hong
Kong. Með lestinni voru
mörg hundruð kínverskir
hermenn og allmiklar
birgðir vöpna. Eftir því
sem fréttimar herma, fór
lestin af sporunum og létu
yfir 40 hermenn lífið.
Það er talið vafalaust, að and-
kommúniskir skæruliðar I fjall-
lendi I Suður Kína hafi sprengt
lestina upp, en upp á síðkastið hef
ur skæruliðamótspyrna á þessu
svæði ffeerzt mjög I aukana. Eftir
að atburður þessi hafði gerzt sendi
kínverska herstjórnin mikið herlið
á vettvang til að reyna að leita
skæruliðana uppi. Ósagt er hvort
leitin bar árangur.