Vísir - 19.01.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 19.01.1963, Blaðsíða 16
VISIR Laugardagur 19. janúar 1963 | Fyrsta skíðastökkið ■ og hann stóð I Varbar-kaUi i Valhöll i dag kl. 3-5 KAPPAKSTUR í fyrrinótt upphófst mikill elting arleikur eftir götum Reykjavíkur, er lögreglan elti ökuníðing eftir ýmsum götum bæjarins, sum staSar á um eða yfir 100 kílómetra hraöa. Lögreglunni til aðstoðar voru ýmsir leigubílstjórar, sem hjálpuðu til viö eftirförina og við að króa ökumanninn og farartæki hans af. Fyrst barzt lögreglunni tilkynn ing um ökuþór þennan með því að leigubílstjóri frá Hreyfli gerði henni aðvart í gengnum talstöð bifreiðarinnar, að hann hafi orðið var manns sem ekið hefði með ofsalegum hraða eftir Skúlagöt- unni og taldi að hann myndi hafa komizt um eða yfir 100 km. hraða. Fór lögreglan strax á stúfana, varð ökumannsins vör og hóf elt- ingarleik. Barst leikurinn víða um götur bæjarins, enda herti öku- Framh. á 5. síðu. Fl SÆKIR UM LEYFi TIL FÆREYJAFLUGS Á fundi með frétta- mönnum í gær skýrði UNGUR PIL TUR DEYR AF EITRI Sá sviplegi atburður gerðist hér í Reykjavík í fyrrakvöld að ungur sjómaður lézt af völdum eiturvökva, sem hann drakk. Pilturinn, sem var aðeins 17 ára að aldri, var skipverji á m.s. Kötlu, og þegar skipið var hér í Reykjavíkurhöfn um síðustu helgi, mun hann hafa ætlað að drekka áfengi úr flösku, en fór flöskuvillt og drakk í þess stað hreinsivökva, svokallað triklór, sem selt er f flestum nýlendu- vöruverzlunum og notað er m. a. til að ná fitublettum o. fl. Sennilega hefur pilturinn ekki gert sér ljósa grein fyrir hætt- anni, sem af þessu stafaði, og nann hafði ekki orð á því fyrr en hann tók að lasnast og las- leikinn ágerðist stöðugt. Var þá farið með hann í slysavarðstof- una og að því búnu lagður inn í Landakotsspítala, en þá voru allar aðgerðir um seinan og pilt urinn lézt þar í fyrrakvöld. Pilturinn hét Þorsteinn Ingi- mundarson og var ættaður frá Siglufirði. Hafði hann aðeins starfað skamma hríð á m.s. Kötlu, því hann var ráðinn á skipið í nóvembermánuði s.l. Sjóréttur kemur til með að fjalla um mál þetta og er búizt við ítarlegri rannsókn í því, þeg- ar Katla kemur til Reykjavíkur aftur nú á næstunni. Örn Johnson frkvstj. Flugfélags íslands frá því, að stjórn félagsins hefði ákveðið að hefja á- ætlunarflug til Færeyja í vor, fáist til þess nauð synleg leyfi. Var endan- Ieg ákvörðun um þetta tekin á fundi nú í vik- unni og hefur umsókn hér að lútandi verið send viðkomandi yfir- völdum. Framh. á 5. síðu. Um hverja helgi fer fjöldi unglinga upp í skíðalöndin nágrenni Reykjavíkur til að stunda hina heilsusamlegu skiða íþrótt Skíðafélögin hafa nú bætt mjög aðstöðuna til skíða- iðkana og m. a. flest komið upp hjá sér dráttarbraut. Þá hafa þau skíðakennara á staðnum til að kenna unglingum þá vanda- sömu þraut að standa en vera ekki alltaf á hausnum. Þessi mynd var nýlega tekin í skíðalandi KR f Skálafeifi og sýnir hún skfðakennaratnt Ölaf Níelsson kenna ungum jnahni fyrsta skíðastökkið. Ekkl ef'Stfll' inn fagur ennþá, en- hver velt nema þessi komist elnhvcm tíma á Olympíuleika meÍÞgðÍfif þjálfun og þolinmæði. GA T EKKISTAÐID SKIL Á 40 ÞÚSUND KRÓNUM Frumrannsókn er fyrir nokkru lokið í máli sölumanns nokkurs hér í Reykjavík, sem í haust tók út vörur hjá tveim fyrir- tækjum fyrir á þriðja hundrað þúsund krónur, en gerði síðan tiiraun til að flýja land án þess að gera skil fyrir úttekt sinni og án viðleitni í þá átt að greiða hana. Það mun hafa verið í októ- bermánuði s. I. sem maður þessi, sem þá hafði verið um nokkurt skeið sölumaður hjá ákveðnu heildsölufyrirtæki i Reykjavík, leitaði til tveggja fyrirtækja, iðnfyrirtækis og verzlunar, og fór fram á að fá að selja fyrir þau varning, sem einkum var vinnufatnaður. — Framh. á 5. síðu. Hauðgunarmálið til saksóknara Vísir fékk þær upplýsingar hjá fulltrúa bæjarfógeta í Kefla- . vík í gær, að nauðgunarmál það, sem fyrir nokkru var kært þar | fyrir cmbættinu, væri nú komið til saksóknara ríkisins til endan- legrar ákvörðunar. Eins og Vísir skýrði frá fyrir skcmmstu kærði stúlka í Kefla- vík að karlmaður hafi brotizt inn í herbergi sitt að næturlagi og síðan tekið sig með valdi. Þessum sakargiftum hefur maðurinn harðlega'iwitað og er máliÓ, eihs og að framan segir, nú til frekari ákvörðunar hjá .saksóknará ríkisins. Stefna De Caulle ákveðin, f í EB£ í gær lau& að sinni í Brussel viðræðum um aðild Breta að Efnahags bandalaginu. Náðist ekk erí samkomulag á fundi utanríkisráðherra Sex- ríkjanna.' Stendur allt fast þar, vegna þess að fulltrúi Frakka, Couve 1e Murville, • neitar enn a1?erlega að Bretar fái inngöngu í bandalagið með nokkrum sérstök- um kjörum. De Gaulle hefur gefið Mur- ville ákveðin fyrirmæli um það að hvika í engu frá ákvæðum Rómarsamningsins, þ. e. a. s. að Bretar fái þvi aðeins inngöngu að þeir fallist í einu og öllu á núverandi reglur Efnahags- bandalagsins Það eina sem hefur verið á- kveðið er að viðræður um inn- göngu Breta skuli hefjast að nýju þann 28. janúar. Fulltrúar fjögurra ríkja í Efna- hagsbandalaginu, Þýzkalands, Ítalíu, Hollands og Belgíu, hafa allir lagt að Frökkum að breyta nú til og opna Bretum leið inn í bandalagið. Eru þeir svo harð- ir á þessu að segja má, að þeir hafi stofnað bandalag gegn Frökkum. Eru þeir mjög óánægð ir með afstöðu deGaulles og finnst hagur sinn. í Efnahags- Frh á b!s. a.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.