Vísir - 19.01.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 19.01.1963, Blaðsíða 10
I 70 V1 SIR . Laugardagur 18. janúar 1963. ^>4 fTfUi rr W////A Z/////////A I_1 W//////A I I 3b ÍR hefur sótt um lóð fyrír félugss væði Mikill stórhugur er í ÍR- ingum nú á nýbyrjuðu ári og í gær sögðu þeir blaða- mönnum frá starfsemi þeirri, sem er nú á prjón- unum hjá hinum 7 líflegu deildum félagsins, en Reyn ir Sigurðsson, formaður ÍR, hafði orð fyrir stjóm sinni og kvað hann það gleðilegt tilefni að kalla blaðamenn saman nú, er félaginu hefði svo skyndi- lega bætzt svo góður kraft ur þar sem Simoni Gabor væri, en við hann hefði verið gerður samningur um þjálfun til VÆ árs nú nýlega.i Hjá frjálsíþróttamönnum er á döfinni kynning á frjálsum íþrótt- um og eins og Haukur Clausen benti réttilega á á fundinum, eru frjálsíþróttaefnin falin á ólíkleg- ustu stöðum, í knattspyrnu, skíð- um, handknattleik og ýmsum öðr- um greinum, en þessum piltum dettur aldrei £ hug að reyna við frjálsar íþróttir, enda þótt þeir séu e. t. v. algjörlega á rangri hillu í þeirri grein, sem þeir iðka. Nám- skeiðin verða í ÍR-húsinu og hefj- ast 3 .febr. kl. 3, en verða síðan til vors á hverjum sunnudegi. Um vorið verður námskeið utanhúss og í sambandi við það mót, þar sem eingöngu byrjendur geta keppt. — Var þetta gert í fyrra með ótrúlega góðum árangri. Verða þátttakendur allt niður í 8 ára aldur. Frjáls- Handknattleiksmót íslands heldur áfram um helgina og fara fram eftirfárandi leikir: ♦ Laugardagur kl. 8.15: 3. fl. k. A ÍBA—Breiðablik 2. deild k. ÍA—-Ármann — Brblik — Haukar Sunnudagur kl. 2: 3. fl. k. A Br.blik — Haukar — ÍA—FH — ÍR-VALUR — ÍBK—KR 2. fl. k. A ÍA-ÍBK — B KR—FH — - Þróttur — Haukar 2. d. k. ÍA—Valur Sunnudagur kl. 8.15 1. deild k. Kr-FH — Fram—ÍR Er óhætt að iní$la með leik- unum í 1 deild á sunnudags- kvöldið, sem án efa verða spenn andi og tvísýnir, enda liðin yf- irleitt mjög jöfn og leikir sjald- an skcmmtilegri en nú. Öflug félugssturfsemi BR BM ÍR-ingur skorar í körfuknattleik, en í þeirri íþrótt í algjörum sérflokki. eru ÍR-ii íþróttadeildin hefur þegar tryggt sér íþróttaskóla Höskuldar Goða og Vilhjálms Einarssonar í 10 daga í sum'ar og heldur þar námskeið. Það námskeið verður fyrir 12 ára og eldri og verður Gabor þar aðal- kennari ásamt nokkrum beztu frjálsíþróttamönnum ÍR. Fimleikadeild er mjög vaxandi deild í ÍR og starfrækt er frúaleik- fimi, en auk þess er drengjaflokk- ur félagsins mjög snjall og er spáð bjartri framtíð. Kennarar eru Lov- ísa Einarsdóttir hjá konum og Birg- ir Guðjónsson hjá drengjunum. Körfuknattleiksdeild og Hand- knattleiksdeildir félagsins starfa mikið og vel og fjöldi manna tek- ur daglega þátt í æfingum deild- anna. Handknattleiksmenn eru byrjaðir keppni í 1. deild, en körfu knattleiksmenn þefja keppni í febr. en þeir eru íslandsmeistarar og hafa á að skipa langbezta liðinu svo sem kunnugt er. 1 Sunddeild ÍR starfar af miklu kappi og í deildinni er margt bezta sundfólk íslands og flest sundmet eru í höndum ÍR-inga. Nýtt verk- efni hjá sunddeildinni er sund- knattleikur og verður keppt í þeirri grein innan skamíns. Lyftingadeildin er rekin af mikl-||| um áhuga og kappi og fyrsta mót piltanna lofar góðu um framtíðina. J Skíðadeildin er líklega sú deild- in, sem býr við hvað mesta ann- ríkið þessa dagana og hefur skíða- skálinn í Hamragili verið vinsæll dvalarstaður fyrir þá, sem hafa vilj Kærum ekki — spyrjumst uðeins fyrir um mé\W Iþróttafélag Reykjavíkur sendi nýlega fyrirspurn til ÍSÍ um hvernig líta beri á félagaskipti eins og þau, sem urðu á dögunum, er Valbjöm Þorláksson gekk yfir í KR. Skv. lögum ÍSÍ þarf að tilkynna til sérráðs með minnst mánaðar fyrirvara, ætli maður að keppa með öðru félagi. Sum sambönd hafa hert á þessum reglum, en FRÍ mun ekki hafa gert það. Þar af leiðandi munu lög ÍSÍ tekin sem gildandi i þessu tilfelli. Nú mun Valbjörn ekki hafa tilkynnt skiptin formlega og hefur ÍR óskað álits ÍSl á lögmæti skiptanna. „Við viljum ekki kæra Valbjöm og slíkt hefur okkur aldrei' dottið í hug“, sagði Reynir Sigurðsson, formaður ÍR, í gær. „Hins vegar þykir okkur rétt að athuga hvað ÍSÍ hefur um málið að segja. Okkur er enginn hagur í að halda þeim mönnum eftir, sem ekki vilja hjá okkur vera. Þeir mega fara, en bara á réttan hátt“. ^ Frímerkjaþáttur ^ V. J Ef benda ætti ungum safnara á eitthvað land, sem skemmti- legt væri að safna kemur Finn- land upp í hugann. Það sýnist miklu eðlilegra fyrir pilt norð- ur á íslandi, að safna frímerkj- uf frá einhverri frændþjóð- anna á Norðurlöndum, heldur en að fara að grípa niður í einhver alls óþekkt og ný ríki suður í Afríku, eins og Camer- oun eða Dahomey eða Chad eða hver veit hvað. Finnland er ekki mjög dýrt land, vart meira en 10 fyrstu merkin sem eru dýr. Það býður frímerkjasafnaranum upp á sam fellda röð af skemmtilegum, vel teiknuðum frímerkjum. Þar er fjölbreytni, bæði skemmti- legar og langar seríur af hvers- dagsfrímerkjum (Ijónsseríur), mátulega erfið viðfangsefni í vatnsmerkjum (hakakrossar eða pósthorn) og talsvert erfiðar prentgreiningar þó í ódýrum frímerkjum sé (rússnesku merk in 1901—1908). ^Upp úr 1930 fer það að koma í sið í Finnlandi, að gefin séu út Rauðakross-merki, oftast þrjú merki á hverju ári, þar sem 10% og síðar 20% viðbót- argjald var tekið til líknarstarfs ins. Þótt svona líknarmerki hafi ekki náð vinsældum hér á landi, sbr. líknarmerkin 1933 og 1949 og Skálholtsmerkin 1956 hafa þau hins vegar orð- ið ákaflega vinsæl í Finnlandi, sem og í nokkrum fleiri lönd- um. Síðar eða um 1946 fóru berklavarnarfélögin að fá frí- merki fyrst samhliða Rauða Krossinum og síðan skiptast þau stundum á sitt hvort árið. Það eru sérstaklega þessi þrjú árlegu berklavarnarfrímerki, sem hafa orðið vinsæl meðal frímerkjasafnara, enda eru þau falleg, litirnir hreinir og tærir viðfangsefnin vel valin og teikn uð. Á hverju ári koma þrjár nýjar myndir: — Eitt árið eru það þrír fuglar, annað árið þrjú blóm, síðar þrjú skógar- dýr, eða þrír vatnafiskar, eða þrjú fiðrildi og fuglar. Nú fyrir nokkru eru enn kom in út þrjú ný finnsk berklavarn arfrímerki. Þau sýna nú þrjú villt dýr, sem lifa í Finnlandi, héra (grátt), mörð (Iillabrúnt) og hermelín eða hreysikött (blátt). Á merkjunum sést hinn tvöfaldi kross berklavarnarsam takanna. Þá eru tvö stök mefki ný- lega komin út í Finnlandi og eru bæði 30 mörk að verðgildi. Annað er gefið út í tilefni af 150 ára afmæli finnsku land- mælingastofnunarinnar og sýn- ir táknmyndir rrœlistiku og flugvél að taka ljósmyndir úr lofti. Hitt er með táknmynd inn- lends iðnaðar. Með ljónshaus, sem er merki iðnaðarins og teikningu er sýnir efnisræmu er fer í gegnum valsa og getur m.a. verið táknmynd pappírs- iðnaðarins. Fleiri falleg finnsk merki hafa komið út á árinu. Þau eru steinprentuð og er un- un að skoða þau í sterku stækk unargleri, svo vandlega eru þau unnin. Ekkert finnskt merki er gefið út til að minnast mikils við- burðar í Helsingfors, sem var æskulýðsmót kommúnista en það var haldið í sumar í óþökk allra finnskra æskulýðssamtaka En kommúnistaríkin hafa flest séð ástæðu til að gefa út sér- stök Helsingforsmerki. Meðal þeirra síðustu sem gefið hafa út slík merki er Búlgaría og sjást þau hér tvö talsins. Þau eru prentuð í mörgum litum og sýna myndir af blómum en á Helsingforsmótinu gengu kommúnistar ekki undir merkj- um hamars og sigðar, heldur blóma. Þrjú nýjustu berklavarnafrímerkin finnsku. -c.'aafc - Mæg.-jrg

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.