Vísir - 19.01.1963, Page 13
V í S IR . Laugardagur 19. janúar 1963,
•~n ............ ^ iiiiiwiBiiiw fmiliniliiwii
\J
Leopold konungur og Liliane de Rethy, fædd Baels.
Leopold og Uliaae ósátt
I7kkl er ein báran stök fyrir
belgísku konungsfjölskyld-
unni. Flestir þekkja nú orðið
margra ára sorgarsögu hennar,
hvemlg Albert konungur fórst
f hrapalegu slysi f fjallgöngu
og Ástríður drottning fórst í
bflslysi. Flestir minnast Iíka
þeirra löngu og óheppilegu
deilna sem urðu unihvcrfis Leo
pold konung. Hann var sakaður
um fylgispekt við nazista og
ástir hans og flæmsku kaup-
mannsdótturinnar Lilian Baels
vom Iögð honum mjög til lasts,
enda úrðu þær ástir og síðar
hjónaband þeirra benzín íi bál
tungumála og trúmáladeilna i
Belgíu.
öll sagan er ekki þar með
sögð. Nú berast þær fréttir
frá Belgíu að ástin miili Leo-
polds og Liliane de Rethy eins
og hún er nú kölluð sé kulnuð.
Nú vekur það þvert á móti
hneyksli að þau séu hætt að
búa saman. Os almennt er
w
Astin er kólnuð og uppgjufnkon-
ungurinn dvelst fjurvistum í
Bndlundi og Brusilíu
Lilane kennt um. Það er litið
á hana eins og stjúpuna í öll-
urp stjúpuævintýrum. Hún var
töfrandi fögur og viðheldur enn
ungleguni yndisþokka sínum,
en hið innra er hún talin hálf-
gerð norn, greind en ráðrík og
miskunnariaus. Hún hefur vilj-
að ráða öllu innan konungs-
fjölskyldunnar. Hún vildi vera
belgíska konan nr. 1. Hún náði
taki á Baldvin stjúpsyni sinum.
en síðan gerðist það að tvær
ungar konur komu til hirðar-
innar, sem risu upp fyrir hana
í fmynd belgísku þjóðarinnar.
Ii®er eru Fabiola drottning Bald
vins konungs og Paola sem gift
ist Albert yngri bróður Bald-
vins.
^ugnatillit Lilliönu hinnar ung'
iegu stjúpu verður hvasst
og nornarlegt. Nú fær hún ekki
lengur ráðið öllu. Henni lendir
saman við þessar yngri konur,
móðgast og síðan reynir hún
að beita Leopold eiginmanni
sínum fyrir sig til þess að fá
að halda forráðum sínum, en
hann reynist henni ekki eins
hjálplegur og hún myndi kjósa.
gíðan kólnar ástin og almennt
er um það rætt að Liliane
hafi gerzt Leopold ótrú. Þannig
er hinn belgíski almannarómur.
Kannski er hann ekki að öllu
leyti réttlátur. Upphaf hans get
ur verið andúð þjóðarinnar á
þessari fögru en kaldrifjuðu
konu.
En sagan segir, að Liliane
hafi leitað ásta fransks ævin-
týramanns.
Kannski minnast menn hans,
frá því að hann kom talsvert
við sögu í fréttum fyrir um
einum áratug. Ástmögurinn er
enginn annar en Alain Bombard
franskur ævintýramaður og sér-
vitringurinn skeggjaði sem
gerði margar tilraunir til að
komast vistalaust yfir úthafið á
smáfleka.
það sem Bombard ætlar að
sanna með flekaferðum
sínum var að enginn skipreika
maður þyrfti að deyja úr hungri
og þorsta á úthöfunum, Þar
væri að finna nóg af fæðu og
drykk. Hann sannaði þetta að
nokkru með því að dveljast
einn á flekanum svo vikum
skipti og nærast á fiski en svala
þorstanum á vatni úr fiskum.
Síðast fór hann þó mjög illa
á þessum tilraunum og missti
heilsuna.
En meðan tilraunirnar stóðu
sem hæst leitaði hann eftir
styrkjum úr ýmsum áttum, m.a.
leitaði hann eftir /styrk úr belg-
iskum vísindasjóði og þá fór
hann sömu leið og margir aðrir
gerðu á þeim árum leitaði eftir
persónulegum stuðningi Lilane,
en það var alkunna að hún
hafði þá svo mikil persónuleg
áhrif í Belgíu að fjöldi manns
leitaði aðstoðar hjá henni. Það
var almælt i Belgíu að Liliane
hafi tekið Alain Bombard mjög I
vinsamlega, jafnvel svo vin- 8
gjarnlega að talið var hið mesta |
hneyksli.
gíðan það gerðist fór að kólna |
nokkuð sambúðin milli Leo |
polds og Liliane. Kom jafnvel |
að því að þau hjónin fóru í |
hár saman að Alain Bombard I
viðstöddum og varð hann þá I
að reyna að sætta þau. Var 8
það undarlegt hlutverk sem |
hann lék þannig við belgísku H
hirðina. B
gambúðin milli Leopolds og |
eiginkonu hans hefur hald- 5
ið áfram að kólna og nú er svo
komið að þau búa ekki lengur
saman. Leopold er farinn að
vera á stöðugum ferðalögum til
fjarlægra heimsálfa og kemur
sjaldan heim. Belgfumenn hafa
ekki komizt hjá því að veita
því athygli að hann forðast
konu sína. En Baldvin konung-
ur reynir þó stöðugt að miðla
málum og fá föður sinn og
stjúpu til að sættast heilum
sáttum í ást og einlægni. Það
er ekki gaman að eiga vand-
ræðabörn. Verra er þó að eiga
vandræðaföður.
Varahlutir i olíukynditæki
Hamarsbúðin
Hamarshúsi, Tryggvagötu.
AUGLÝSIÐ í VÍSI
HVÖT- FÉLA6SFUNDUR
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt heldur fund í Sjálfstæðishúsinu mánudagskvöld
21. janúar ld. 8,30.
DAGSKRA:
Félagsmál. Rætt um Iilutaveltu
Frk. Elín Pálmadottir flytur frásögn frá
Ungar Kvennaskólastúlkur syna leikbátt.
Kaffidrykkja. Mætið stundvíslega.
\
S T J 0 R N I N