Vísir - 26.01.1963, Side 5
V1SIR . Laugardagur 26. janúar 1963.
5
Eiga prestar að
Spánveriinn —
Frh at bls. 7.
J sumar var haldin sýning d
málverkum hans í Barce-
lona þar sem kona hans dvelst
enn og sá hún um sýninguna
en þá var málarinn kominn til
Islands. í umsögnum um þessa
sjálfstæðu sýningu Calleja
sagði einn listdómari borgar
innar eftirfarandi í gr'ein í E1
Correo Catalan:
„Og Eladio Calleja, eldfjalla-
málarinn, skapari nýrrar efnis-
meðferðar og eyðimerkurtúlk-
unar, er farinn til íslands, til
eldfjalla þess og sjóðandi
hvera, til hinna björtu nátta,
þangað sem snjóa leysir aldrei,
til hins hrjóstruga landlags
norðursins, til hinnar þúsund
ára gömlu menningarþjóðar.
Það er eins og þetta fjarlæga
og goðsagnakennda land, í ná-
lægð Norðurpólsins, muni
tengjast spænskri málaralist.
Angel MARSÁ.“
Gaman verður að sjá hvern' ~
Callejo málar eftir kynni sín
íslenzkum öræfum og eldfjö:;-
um.
Ávísanafeils —
Framh. a* m lt>.
;nn _ jafnvel fyrir stórum fjár-
hæðum, þótt engin innstæða sé
fyrir hendi. Sem dæmi um það
má geta þess, að á árinu sem
leið gaf einn viðskiptavina lög-
reglunnar út ávísun fyrir 69
þúsund krónum, sem hann átti
ekki innstæðu fyrir. Var það
og hæsta ávísun, sem lögreglan
fékk til meðferðar í fyrra. En
það var ekki nóg með að hann
gæfi út þessa einu ávísun, held-
ur og margar aðrar fyrir meiri
eða minni fjárhæðum, sem ekki
fengust innleystar í bönkum.
: Og auk þessa atferlis mannsins
kvaðst hún vita um nokkur
fleiri tilfelli hjá honum, sem
ekki hafa verið kærð.
Kærur út af þessum brotum
berast lögreglunni oft í hrotum,
stundum berast kærurnar í tuga
tali sama daginn og sem dæmi
um það mætti nefna það, er
Att veitingahús í Reykjavík
sendi sama daginn 37 ávísanir
frá hinum og þessúm mönnum,
en engin þeirra hafði fengizt
greidd í banka, ýmist af því að
þær voru falsaðar eða ekki inn-
stæða fyrir þeim.
Þeir, sem staðnir eru að þess-
um hrotum, fá yfirleitt nokk-
urra daga frest til að gera upp
sakir sínar varðandi greiðslu á
þeim ávísunum, sem þeir hafa
gefið út. Að því búnu er málið
afhent sakadómaraembættinu
til afgreiðslu og þar eru hin
veigaminni mál afgreidd með
sektum, en öil hin sterri mál
eru send saksóknara ríkisins til
afgreiðslu.
Magnús Eggertsson rannsókn
arlögreglumaður, sem veitti Vísi
framangreindar upplýsingar,
sagði að ráð sem óefað kæmi
að miklu gagni í þessum efnum
væri það, að heimta persónu-
skilríki af seljanda ávxsana. Þá
' gæti kaupandinn sjálfur gengið
úr skugga um það, hvort sá
hinn sami segði rétt til sín eða
ekki.
Skipstjórinn —
•* amhalO aj lb siðu:
að vísu næsta Iítið af tæknilegum
útskýringum en þó orð eins og
radar, tveir dýptarmælar. sjálfs-
stýring o. fl eða nóg til bess að
'jera okkur grein fyrir bví, nð
'estanhafið Blíða er vel útbúinn
)g traustur bátur, með traustan ,
;kipstjóra.
Framhald al bls. 16
í anda þess biskups, sem þarna
átti hlut að máli. Þetta eru leif
ar hins forna strangtrúnaðar,
sem enn eimir eftir af á Norður
löndum, en ég hygg þó, að slík
ur hlutur mundi aldrei gerast
hér. Hlutverk okkar prestanna
. er að leysa af hendi þá þjóm ‘u
sem fólkið biður okkur unt -'ins
vel og innilega og okkur er
framast kostur.
Hvað munduð þér gera ef
biskup fyrirskipaði yður slíkar
yfirheyrslur?
Ég mundi segja nei og vitna
til míns samvizkufrelsis. Það
hefur verið eitt af grundvallar
atriðum lútherstrúar að virða
samvizkufrelsi prestanna. Ég
rnundi aldrei geta < yfirheyrt
bi-úðhjón um þeirra kynningu,
um það hversu náin kynning
þeirra hefur verið. Því nær-
göngulli og dómstrangari sem
við prestarnir erum, þeim mun
fjarlægari verður kirkjan fólk-
ir.u. Kristur sagði, að við ætt-
um að vera mannaveiðarar, en
þá verðum við að hafa net
samúðar og skilnings en ekki
steinrunna möskva.
Séra Magnús Runólfs-
son:
Ég dáist að djörfung og sam
vizkusemi sænsku prestanna.
Hætt er við, að þeir yrðu þar
fljótlega píslavottar, þar sem
afkristnun væri langt komið.
Skriftir éru frjálsar ,en ekki
nauðsyn í lútherskrikirkju. Þess
vegna getur prestur ekki held-
ur krafizt skrifta af hjónaefn-
um. Hins vegar tel ég rétt og
nauðsynlegt að halda sig við
öll orð Krists, einnig þau orð
hans í Fjallræðunni, sem hér
um ræðir (Matt. 5, 32).
Blaðið sneri sér einnig til séra
Sigurjóns Árnasonar, en hann
kvaðst ekki vera til viðtals um
þetta mál.
Séra Jón Auðuns.
Að baki þessarra tiltekta
sænska pi-estsins liggur kirkju-
hugtak, sem ég er andvígur og
vona að finni Iítihn hljómgrunn
með íslendingum. Ég held ekki,
að það hafi orðið blessun,
hvorki kirkjunni pé ungu stúlk j
unni, þegar Jón lærði í Möðru- j
felli, auðmýkti dóttur sína
frammi fyrir söfnuðinum, er,
hún hafði alið barn ógefin í
föðurgarði. Og ég hygg fáa
þeiri-ar skoðunar, að Stóridóm- I
ur hafi á sínum tíma bætt sið '
ferði íslendinga. Kannske liggur
nær að beita sálgæzlu og sið-
ferðilegri leiðsögn en hörku og
dómsvaldi.
Hinsvegar hygg ég alla þá,
sem uppeldi hafa með höndum,
foreldra skólamenn og presta
hafa áhyggjur af ástamálum
æskufólks, og áhyggjur af sí-
vaxandi ábyrgðarleysi skáld-
sagna, kvikmynda og leikhúsa
gagnvart æskulýðnum, sem
bækurnar les og sýningar sæk-
ir. En það er ekki leið til úr-
bóta, leiðin, sem sænski prest-
urinn fór.
Bjargaðisf —
Framh af 1. sfðu
um upp úr fimm i gær á þriggja
tonna trillu, á leið til Reykja-
víkur og spurðist ekkert til
hans eftir það. Var hafin leit á
sjó og landi í gærkvöld. Var
aðstaða til leitar mjög erfið,
veðurhæð mikil og gekk yfir
með blindum hryðjum.
Við fylgdumít með Valberg
heim til hans í gær, þar sem
urðu fagnaðarfundir með hon-
um og konu hans, Jóhönnu
Gísladóttur, og 14 ára dóttur,
sem tjáðu okkur að hún hefði
verið orðin vonlaus um björg-
un. Skýrði hann okkur þannig
frá ferðalaginu:
— Ég lagði af stað frá Korp-
úlfsstöðum um fimm í gær og
hélt suður með landinu, aust-
anvert við Viðey. Þegar ég var
kominn vestur fyrir eyjuna að
sunnanverðu, hætti vélin. Ég
setti þá út legufæri og tókst að
koma vélinni í gang aftur,
nokkru seinna. Byrjaði ég þá að
reyna að ná legufærunum upp,
en gekk illa.
— Það tókst þó loks að losa
þau úr botninum. Bátinn byrj-
aði þá strax að reka, enda mjög
erfitt að hafa stjórn á honum
með Iegufærin úti. Á meðan ég
svo var að reyna að ná þeim
inn, rak hann upp á sker, sem
er skammt frá ströndinni í
Viðey. Kom þegar að honurn
leki og var ég að hugsa um ao
fara upp á skerið, en leist ekki
á það.
— Setti ég þvi mótorinn á
fullt og um leið reið alda undir
bátinn, svo að hann losnaði.
Um leið og hann losnaði tók
skrúfan niðri og mótorinn
stoppaði aftur. Þá var ekki um
annað að gera en að láta reka
í Iand. Ég hafði ár, sem ég
reyndi að stýra með, og tókst
að koma í veg fyrir að hann
færi alveg flatur upp í land. I
brimgarðinum slitnuðu svo
loks legufærin frá.
— Um leið og báturinn
kenndi grunns, stökk ég fyrir
borð, til að reyna að draga
hann lengra upp. Þá gekk aftur
alda undir hann, svo að mér
tókst að koma honum næai-
lega langt upp. Var ég þá orð-
inn votur upp undir hendur.
Þegar ég kom upp að húsunum
í Viðey var klukkan orðin sjö
að kvöldi. Ég sá til leitar-
manna, en hafði engin ráð með
að láta vita af mér, þar sem
bæði eldspýtur og vasaljós
höfðu blotnað. Auk þess hafði
komist olía í matinn, en é.g
hafði þó kaffi á hitabrúsa.
—- Um nóttina hafðist ég við
í hesthúsinu í Viðey vegna þess
að þar voru nokkrar kindur og
því svolftil hlýja. Ég gerði mér
ekki grein fyrir því fyrr en eftir
á hvað litlu munaði. Ef bátur-
inn hefði rekið upp fjórum
metrum austar á eynni, hefði
hann lenti í klettum . og é«
sennilega ekki komizt í land,
Sextán manna leitarflokkur
úr björgunarsveit slysavarnar-
Gríma sýnir „Vinnukonurnar"
Vinnukonumar, Hugrún Gunnarsdóttir (t. v.) og Briet Héðinsdóttir.
N. k. þriðjudag kl. 8,30 frum-
sýnir leikfélagið Gríma leikritið
„Vinnukonurnar" eftir franska
rithöfundinn Jean Genet. ,Vinnu
konurnar', sem er í einum þætti
er fyrsta viðfangsefni félagsins
á þessu leikári.
Leikstjórinn, Þorvarður Helga
son og þýðandi Ieiksins Vigdís
Finnbogadóttir ræddu við blaða
menn i gær um leikritið og höf-
undinn.
Jean Grenet, sem nú er um
fimmtugt skrifaði „Vinnukon-
urnar'i árið 1946 og var það
annað leikrit hans af fimm, sem
hann hefur skrifað. Persónur
leiksins eru þrjár, tvær vinnu-
kour og húsmóðir þeirra. Vinnu
konurnar leika Briet Héðins-
dóttir og Hugrún Gunnarsdóttir
en frúna leikur Sigríður Haga-
Iín. Höfundurinn ætlast til að
piltar yrðu látnir leika hlutverk
in en leikstjórinn, sem leikritið
var skrifað fyrir tók það ekki í
mál og þótt leikritið hafi verið
sýnt mjög víða hafa piltar aldrei
farið með hlutverkin.
Á undan sýningunni mun Ieik
stjórinn og Erlingur Gíslason
Ieikari flytja stuttan formála,
því að leikritið er „sterkt" eins
og leikstjóri komst að orði og
þarf því að byrja á því að leiða
leikhúsgesti inn í umhverfið.
Leiktjöld eru gerð af Þorgrími
Einarssyni og eru þetta fyrstu
leiktjöld hans hér á landi, en
hann hefur verið við nám í Ieik-
tjaldagerð erlendis.
„Vinnukonurnar eru þriðja
leikritið, sem félagið sýnir, en
auk þess hefur það lesið upp
eitt íslenzkt leikrit og í ráði
mun vera að lesa upp annað,
„því að íslenzku leikritin eru og
verða okkar áhugamál", sögðu
Vigdís og Þorvarður.
deildarinnar Ingólfs leitaði i
alla nótt og í morgun og höfðu
farið upp um allar fjörur frá
Víðinesi að Gufunesi; Höfðu
þeir gefið upp nær alla von,
þar sem þeir höfðu fundið brak
úr bát í fjörunni og þóttust
vissir um að það væri úr bát
Valbergs.
Ný skip —
Pramh; at bls x
Einar Þorgilsson og Co í Hafn
arfirði fær skip frá Brattvaag
Miðnes h.f., Sar.dgerði, fær
skip hjá Gravdal Skibsbyggeri
í Sunde.
Hrímnir h.f. í Hafnarfirði,,
Gísli Jón Hermannsson, fær
skip frá Bolsönes Verft í Molde
í maí.
Ögri h.f., Þórður Hermanns-
son. fapr einnig skip frá Bolsön
es í nraí—júní.
Arnarvik h.f., Grindavík, þ. e.
Hermann Kristjánsson, Gunnar
Magnússon o. fl„ fá einnig skip
frá Bolsönes í maí.
Brynjólfur h.f., Keflavík, þ. e.
Jón Karlsson og Halldór Brynj-
ólfsson o. fl„ fá skip í maí einn-
ig frá Bolsönes.
Hlíf og Fram-
sókn semja
Á fgndi verkamannafélagsins
Hlífar í Hafnarfirði, sem haldinn
var í fyrrakvöld, var samþykkt að
taka tilboði Vinnuveitendafélags
Hafnarfjarðar um að félagsmenn
fái greidd 5% ofan á alla kaup-
iaxta.
I gær náðist samskonar sam-
komulag milli Verkakvennafélags-
ins Framsóknar i Reykjavík oe
^innuveitendasambands tslands.
liámskeið Stefnis
Stefnir, félag ungra Sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði gengst fyrir
stjórnmálanámskeiði í vetur. Flutt
verða þar fræðsluerindi um ými'-
mál auk málfundaæfinga. Nám-
skqiðið hefst á mánudaginn kl
20,30 í Sjálfstæðishúsinu, þar serr
formaður SUS, Þór Vilhiálmssor.
flytur erindi um fundarsköp. Hér
er tækifæri fyrir unga Sjálfstæðis-
nenn að búa sig undir öfluga þátt-
töku í stjómmálum og félagsmál-
um almennt.
...;-,;i i
.— ..Jáa