Vísir - 06.02.1963, Blaðsíða 3
VÍSIR . Miðvikudagur 6. febrúar 1963.
3
Myndsjáin, er að þessu sinni
tekin, hjá sjóvinnudeild Æsku-
lýðsráðs. Þar eru þr£r kennarar,
Einar Guðmundsson, Hörður
Þorsteinsson og Pétur Ólafsson.
Um það bil hundrað piltar á
aldrinum 13—15 ára, stunda
þetta námskeið sem er talið
mjög mikilsverður áfangi áður
en menn fara á sjóinn.
Strákamir fá tilsögn í hnút-
um, að setja upp línu, hnýta
og bæta net, vélfræði, hjálp í
viðlögum, o.fl. Hver einstakur
piltur fær tilsögn einn og hálf-
an tíma tvisvar f viku. Þegar
svo námskeiðinu er lokið fara
þeir upp f Hrafnistu, og þar
fá þeir afhcntar sjóferðarbæk-
ur.
Á SJÓ VINNUNÁMSKCIBI
m W
MYNDIR:
Efst sjást þrír piltar vera að
rfða net.
Neðst til vinstri er Einar að
kenna verðandi sjómanni að
splæsa vír.
Neðst til hægri er kompásinn
útskýrður, hann er 32 strik,
sem skiptast svo í fjórða parta
svo að það eru alls 128 nöfn
sem strákarnir þurfa að muna.
Og það gera þeir Ieikandi segir
Einar.