Vísir - 06.02.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 06.02.1963, Blaðsíða 5
V1SIR . Miðvikudagur 6. febrúar 1963. 5 Alþingi — Framhald af bls. 6. um landbúnaðinn og kjör bænda yfirleitt. Hann gat þess, að það væri almenn skoðun með al bænda nú, að „lífskjör“ þeirra væru ekki verri nú en áður, og jafnvel betri“. — Hitt viðurkenndu allir, að þessi kjör þyrftu að batna. Núverandi ríkisstjórn hefur gert sér þetta ljóst, og hefur gert sitt til að bæta hér úr. Mætti nefna út- flutningsuppbæturnar, sem tryggðu bændum sama verð fyr ir afurðir sínar, hvort sem þær væru seldar á innlendum eða erlendum markaði. Ráðherrann minntist einnig á, af gefnu tilefni, hinn svokall- aða fólksflótta úr sveitunum. Þar sem Framsóknarmenn hefðu hamrað á því sí og æ, og gefið í skyn að fleiri býli hefðu lagzt í eyði nú á þéssu kjörtímabili en nokkru sinni fyrr, hefur ráð- herrann látið taka saman, hvað rétt væri um þetta atriði. í ljós hefur komið (og tilnefndi ráð- herrann tölur í því sambandi) að eyðibýlum hefur síður en svo fjölgað síðustu árin. En það má ekki ailtaf ein- biína á, hversu mörg býli leggj- ast' í eyði, eða hversu niargt fólk flytur úr sveitunum, heldur verður að taka tillit til hins: vex eða minnkar framleiðslan? Varð andi það atriði hefur komið í Ijós, að framleiðslan fer stöð- ugt vaxandi. Þróunin verður að miðast við, hvernig framleiðslan er. Það má ekki binda of margt fólk við Iandbúnaðinn, við höfum raun- ar ekki efni á því. Það verður að vera jafnvægi í þjóðarbú- skapnum og hæfilega margir í hverri atvinnugrein". Gyifi Þ. Gíslason tók einnig þátt í þessum umræðum. Gerði hann að umtalsefni fram- leiðslulögin, og taldi að úr því verið væri að minnast á þau, væri vissulega kominn tími til að gera breytingu á þeim lög- um. Átti hann þar við útflutn- ingsuppbæturnar, „sem eru svo háar, að þær eru hreint hneyksli“. Með þessum ákvæðum verða íslenzkir skattgreiðendur að gefa ísl. landbúnaðarvörur úr íandi. Nefndi síðan ráðherrann dæmi: undanrennuduft. íslend- ingar framleiddu 700 tonn af undanrennudufti árið 1962. Nærri 200 tonn voru seld inn- anlands en 650 tn. var flutt út á erlendan markað. Bændur fengu greitt fyrir vöruna, en síðan var hún seld á þrisvar sinnum lægra verði erlendis. Og hver borgar brúsann, mismun- inn? Jú, íslenzkir skattgreið- endur. 1 þetta skipti 8.4 millj Með öðrum orðum: í hvert skipti sem íslenzkar landbúnað- arafurðir eru fluttar úr landi verða íslenzkir skattgreiðendur að greiða háar fúlgur til að tryggja bændum sama verð fyr 'ir vörur sínar og þeir fá á inn- lendum markaði! & þessum sama þingfundi hrós aði landbúnaðarráðherrr einmitt þessum sömu ákvæðum og Gylfi gagnrýndi, og sést bezf á þessu að sitt sýnist hverjum Það sýnir lika hversu erfitt er að samræma skoðanir manna, og þá einkum þegar hagsmun- ir heilla stétta rekast á. Afgreidd voru i neðri deild til þriðju umræðu frumvörp um landsdóm og ráðherra- ábyrgð, sala tveggja eyðijarða voru teknar fyrir sitt í hvorri deild, og Einar Olgeirsson hélt áfram ræðu sinni um áætlunar- ráðið, og beindi máli sínu sem fyrr til Framsóknarflokksins og tvískinnungsháttar hans. íþróttir — Framhald af bls. 2. Guðbjörg Ágústsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir. . Kvennalið II: Jónína Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Liselotte Odds- dóttir, Jóna Þorláksdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Dfana Óskarsdótt- ir, Gerða Jónsdóttir, Unnur Fær- seth, Ása Jörgensdóttir, Elín Guð- mundsdóttir, Halldóra Jóhanns- dóttir. Fargjöld - Framhald af bls. 1. eða skemmtiferðagjald, sem verður allmiklu Iægra en verið hefur en gildir aðeins í 30 daga. En sú lækkun gildir þó ekki á fjölförn- ustu leiðunum eins og til Kaup- mannahafnar og Lundúna. í þriðja lagi hefur blaðið frétt að Flugfélag Islands hafi sótt um leyfi til ríkisstjórnarinnar að mega lækka verulega fargjöld á flugleið- um milli íslands og Evrópu. Hefur félagið tryggt sér heimild IATA til að fljúga á lægri fargjöldum vor og haust. Blaðinu er ekki kunnugt um nákvæmlega hve miklu þessi lækkun nemur en hefur heyrt að hún muni nema um fjórðung og munar þá mest um hana af þeim breytingum sem líklegt er að komi til framkvæmda á næstunni. Sem fyrr segir mun lækkun af- sláttar verða þess valdandi að ferð fram og til baka verður nokkru dýrari en áður. Til og frá London hefur slíkt far verið 6848 kr. en verður 7228 kr. Til og frá Kaup- mannahöfn úr 7596 kr. í 8018 og er ekki um skemmtiferðagjöld að ræða á þessum aðalflutningaleið- um. Hins vegar koma skemmti- ferðagjöld til greina á flugleið til Hamborgar. Þangað hefur ferð fram og til baka kostað kr. 8660 en verður 9140 en skemmtiferða- gjald verður aðeins 6975. Engin breyting verður hins veg- ar á fargjöldum aðra leið _-g sú lækkun sem Flugfélagið fer nú fram á nemur meiru en hinar breytingarnar. Fuglavernd — Framhald af bls. 16. jafnvel veita verðlaun fyrir hvern þann arnarunga, sem upp kemst. Samtökin hafa í hyggju að reyna að fá breytt lögum um eyðingu refa og minnka, en í þeim er lög- boðið að bera út strychnin. Það er vitað, að þetta eitur er aðalóvinur arnarins, og mun gjöreyða honum, ef notkun þess verður ekki bönn- uð. Vitað er að á s.l. ári dóu 3 ern- ir af eitri, en það er um 12% af stofninum. Auk arnarins eru nokkrar aðrar fuglategundir, sem þarf að vaka yf- ir að ekki verði útrýmt. Samtökin munu leitazt við að hafa trúnaðar- menn og eftirlitsmenn á þessum stöðum. Úlfar Þórðarson sagði Vísi í morgun um tilefni félagsstofnun- arinnar Hann kvað \gnar Innólfs- son, fuglafræðing, hafa haldið er- indi um örninn í Háskóla íslands í fyrra. Fundurinn hefði verið fjöl- . . . já VÍD5JÁL SIGLING FYR- IR HORNAÐ NÆTURLA Gl Myndina hér fyrir ofan tók Garðar Pálsson hjá Landhelgis- gæzlunni í ískönnunarflugi við Straumnes. Flaug hann ásamt Jóni Eyþórssyni með Birni Pálssyni flugmanni norður með Vestfjörðum. Var það niður- staða þeirra að íshröngl væri þarna víða, en þeir telja að sigl- ing fyrir Vestfjörðum og fyrir Horn sé hættulaus í björtu veðri én vara við siglingu að næturlagi, þá sé leiðin víðsjál eða hættuleg. Eins og sést á myndinni er nokkuð íshröngl við Straumnes og náði inn að mynni ísafjarðar djúps. Sjálf fsbrúnin er um 42 sjómílur norður af Homi. sóttur. Ræddu þá menn sín á milli um að nauðsynlegt væri að virkja þennan mikla áhuga á örlögum arnarins. Það þarf líka eitthvað að gera til að minna fólk á að örn- inn má ekki deyja út eins og geir- fuglinn. Örninn er alls staðar að deyja út í Evrópu og næstu kyn- slóðir munu ásaka okkur fyrir að horfa á það aðgerðarlausir að örn- inn deyji einnig út hérlendis. — En eru bændur ekki lítið hrifnir af erninum? — Við skiljum bændur mætavqj, sagði Úlfar. En það eru til fleiri aðferðir til að losna við örninn en að drepa hann. Það má fæla hann frá. Við óskum eftir samvinnu við bændur án hennar nær þetta félag ekki tilgangi sínum. 1 stjórn 4„ Fuglaverndarfélagsins eru ásamt Úlfari Þórðarsyni, Svavar Pálsson, Hákon Guðmunds- son, Birgir Kjaran, Agnar Koefod Hansen, Björn Þorsteinsson, Björn Guðbrandsson og Dagur Jónasson. Vígð - Framhald af bls. 1. frá Noregi, þar sem hann var gerður upp af sérfróðum mönnum á sviði kirkjulistar. Pré- dikunarstóll Brynjólfs verður aðalprédikunar- stóll hinnar nýju kirkju. Danskir menn hafa ákveðið að gefa andvirði altaristöflu úr mosaik f kirkjuna, en ekki hef- ur enn verið ákveðið hvaða mynd verður fyrir valinu, né hverjir gera hana. Lokið er við lagningu gólfflísa í kirkjuna, en þær eru gjöf frá Norðmönnum. Eftir er að mála veggi kirkj- unnar að innan, en loftið er klætt viði. Eftir eru einnig að ganga frá lýsingu í kirkiunni og verður þar að miklu leyti um óbeina lýsingu að ræða. MESSA HEILAGS ÞORLÁKS: Þorláksmessa á sumar var í kaþólskum sið ein helzta kirkju hátíðin í Skálholtsbiskupsdæmi haldin á þeim degi, er bein heilags Þorláks biskups höfðu verið upp tekin. Þá dreif að meira fjölmenni f Skálholti en í annan tfma. Þegar Skálholts- félagið var stofnað fvrir atbeina núverandi biskups tslands var tekinn upp sá siður að halda árlegar hátíðir í Skálholti þann sunnudag, er næstur var Þor- verður flogið til Bilbao á norð- urströnd Spánar og leikinn þar landsleikur við Spánverja 19. febrúar, enn verður leikið í San Sebastian skammt frá Bilbao. Vísir átti stutt samtal við Axel Einarsson formann hand- knattleikssambandsins, og spurði hvort þeir væru ekki smeykir við að eiga að mæta fulltrúum þessara milljóna- þjóða. Hann benti á það að ís- lendingar hefðu unnið Frakka í heimsmeistarakeppninni 1 Þýzkalandi 1961. Hins vegar mætti búast við harðari leik nú, þvf að vitað væri að franska lið- inu hefði mjög farið fram. Hins vegar höfum við aldrei mætt Spánverjum í leik. Valhöll - Framhald af bls. 16. sem nánast samstarf við Þingvalla nefnd um teikningu og byggingu nýs gistihúss, svo að sem minnst hætta sé á, að slík bygging valdi deilum, því að margir menn munu vera kröfuharðir fyrir hönd hins helga staðar. Hafa þeir lagt til oð teikning af slíkri byggingu yiði gerð af fleiri aðilum en einurn, og telja jafnvel æskilegt, að Þing- vallanefnd sæi um að láta teikna bygginguna. Kveikt í olíu Um fjögurleytið í. gær höfðu krakkar borið eld að olíu, sem lekið hafði úr olíugeymi loftpressu við Skálagerði 15. Logaði olían þegar slökkviliðið kom á vettvang og urðu einhverjar skemmdir á loft pressunni. láksmessu á sumar, og í sam- ræmi við þá venju hefur vígslu- dagurinn f sumar verið valinn, en Þorláksmessa á sumar er dag inn áður, hinn 20. júlf. MIKILL VIÐBURÐUR. Blaðið hefur heimildir fyrir því að mikill viðbúnaður verði í Skálholti fyrir vfgsluhátíðina í sumar, enda er gert ráð fyrir miklum fólksfjölda þar. Verður því vandað til hátíðar þessarar eftir föngum. Vitað er að mörg um erlendum gestum verður boðið, og hafi það átt við í annan tíma, þá er það sérstak- lega viðeigandi að þessu sinni, jafn höfðinglegar gjafir og bor: izt hafa til kirkjubyggingar frá bræðraþjóðum vorum á Norður löndum, félögum og einstakl- ingum, og raunar frá fleiri þjóð um og löndum. Segja má að hinar Norðurlandaþjóðirnar hafi sjaldan eða aldrei sýnt íslend- ingum einlægari vinarhug í verki en í sambgndi við end- urreisn Skálholts og Skálholts- kirkju. LanAsliðiS — Framhald af bls. 16. Mun það keppa í kvöld við Pressuliðið að Hálogalandi. í gærkvöldi voru þeir að æfa í stóra íþróttasalnum á Keflavík- urflugvelli og stilltu sér þá upp fyrir framan ljósmyndarann. Sést landsliðið hér allt. Landsliðið fer utan 15. fe- brúar og verður flogið beint til London og þaðan samstundis til Parísar. í París fer landsleikur við Frakka fram 16. febrúar. Síðan verður flogið til Bord- eaux og leikinn æfingarleikur við úrvalslið borgarinnar. Þá

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.