Vísir - 06.02.1963, Side 4
4
V í SIR . MiSvikudagur 6. febrúar 1963.
Flatur barmur, hátt
mitti og hulin hné
„Fljúgandi dreki“ frá Ricci.
Gullofinn kvöldkjóll frá Chanel.
Lanvin-kvöldkjóll með grískum blæ.
ingar á smáatriðum frá ári til
árs.
I ár er Chanel-pilsið með
svuntusvip að framan og á hlið-
unum, og faldurinn er heldur
neðar en hjá hinum.
★
Síðir kvöldkjólar —
ekkert mitti.
Dagur Diors var líka stærsti
dagur vikunnar, og heiðurinn á
Marc Bohan, arftaki Diors.
Diorlínan er löng og mjó,
breiðari að ofan en mjókkar er
neðar dregur. Og sýningarstúlk
urnar voru það grennsta sem
sézt hefur. Þegar þær svifu um
sali hölluðust þær 45 gráður aft
ur á bak og áhorfendur veltu
því mikið fyrir sér hvar þyngdar
punktur þeirra væri.
Síddin er niður fyrir hné,
barmurinn flatur, mjaðmirnar
grannar og bakið bert á kvöld-
kjólum.
Jakkar dragtanna eru ým-
ist stuttir eða ná niður á mjaðm
ir — alls ekki lengra. Belti sjást
ekki á jökkunum. Kragarnir eru
gjarnan rúllaðir upp og falla
ekki að hálsinum en upp undan
Frh. á bls. 13
1 París var ys og þys f síð-
ustu viku. Vortízkusýningarnar
stóð yfir, tizkufréttamenn og
klæðskerar hvaðanæva að voru
mættlr og máttu halda vel á
spöðunum, ef þeir ætluðu að
fylgjast vel með öllu. Margar
sýningar voru hafðar daglega,
eitt húsið sýndi skó, annað
hatta, þriðja föt o. s. frv.
Það þarf heila bók, til að gera
öllu því skil, sem til sýnis var.
Því skulum við í dag aðeins
gægjast inn um skráargatið og
athuga hvað við sjáum hjá
helztu tízkukóngunum.
Brúðurin 17 ára.
Fyrstan skal þá frægan te^.
Balmain, sem kalla má konung
tízkukónganna í París. — Sitt
trausta veldi á hann fyrst og
fremst að þakka hinum mikla
fjölda frægs og ríks fólks, sem
er meðal fastra viðskiptavina
hans. Hann hefur verið svo í-
haldssamur, að fötum hans er
oft líkt við sígild listaverk.
Og karlmönnunum, sem marg
ir álíta sig hafa meira vit á
bílum en kvenfatnaði getum við
sagt, að Balmain er talinn Rolls
Royce tízkunnar.
Hjá Balmain er mittið hátt,
barmurinn flatur, mjaðmirnar
ávalar, efnin létt og hattarnir
stórir.
Jakkar dragtanna eru stuttir,
ermamar þröngár en þó lausar
um úlnliðinn. Pilsin eru með dá-
lítihi vídd, síddin niður fyrir
hné og innan við hliðasaumana
eru litlir vasar. Við dragtirnar
eru svo hafðar blússur, og blúss
umar hjá Balmain eru víst ein-
hverjar þær fallegustu, sem sézt
hafa. Þær eru mjög einfaldar,
ermalausar, en sniðin margs kon
ar og margar eru með litlum
rúllukrögum.
Engar verulegar breytingar
urðu á dagkjólunum. Kvöld-
kjólarnir eru stuttir og mikið út-
saumaðir eins og venja er hjá
Balmain. Aðalballkjóll sýningar-
innar var útsaumáður í grænu
og bláu.
Brúður Balmains er sögð sú
yndislegasta og líklega sú
yngsta, sem sézt hefur í París
— aðeins 17 ára. Og Danirnir
taka þetta sem eins konar ham
ingjuósk til Önnu-Maríu prins-
essu.
Litirnir hjá Balmain eru mikið
svart, hvítt, marine-blátt, beige
og gult.
Næstur Rolls Royce kemur lík
lega Ford og Ford tízkunnar er
Chanel. Það þarf ekki að líkja
Chanel við Ford til að karl-
mennirni'r streymi þangað. —
Aldrei hafa sést eins margir karl
menn saman komnir á tízku-
sýningu og hjá Chanel nú. Þeir
óttast ekki Chanel, þeir vita
nokkurn veginn við hverju er að
búast, og það sem þeir búast
við líkar þeim vel. Chanel segir
að hún láti sig ekki dreyma um
að breyta um stíl nú, þegar stíll
hennar er orðinn klassískur. í
stað þess gerir hún aðeins breyt
★
Sýning
karlmannanna.
Svartur kjóll og hvítur jakki
Balmain.
frá
PARIS 1963
I