Vísir - 06.02.1963, Side 7

Vísir - 06.02.1963, Side 7
I V1SIR . Miðvikudagur 6. febrúar 1963. f., Samfal við Ingmar ii Bergman, hinn nýja forstjóra Dramatens * Fyrir nokkru birtist hér í blaðinu frétt um það, að sænski kvik- myndaleikstjórinn Ing- mar Bergman hefði ver- ið skipaður leikhússtjóri Dramatens, aðalleikhúss Svíþjóðar. Skipun hans vakti feikna athygli í leikhúsheiminum, vegna þess að Bergman er álit- inn fremsti kvikmynda- tökumaður Norðurlanda en þó oft umdeildur fyr- ir hina djörfu og list- rænu túlkun, en jafn- framt er það óvenjulegt að skipa kvikmynda- mann yfir leikhús og þá fann til sín. Ingimar Bergman er allt öðru vísi gerður. Hann er hláturmildur fullur af fjöri og krafti og félagsanda. Fyrir nokkru fór danski blaða maðurinn Johannes Lindskov Hansen á fund Bergmans og átti stutt samtal við hann á skrifstofu hans. í einkaskrifstofu Bergmans. Hann lýsir komu sinni þann- ig, að hann hafi verið kominn fimm mínútum fyrir hinn á- kveðna tíma á ganginn fyrir framan skrifstofu leikhússtjór- ans. Leikarar gengu þar um í leikklæðnaði er þeir voru að koma af æfingu og þangað kom einnig ung leikkona, sem aug- sýnilega var einnig að bíða eftir leikhússtjóranum. Allt í einu kom Ingmar Berg- man frá tröppunum og inn í ganginn. { — Hæ, hæ, segir Bergman í glaðklakkalegum tón og tók í hendina á okkur sem biðum þarna. Þegar ég nefni nafn mitt, lítur hann á úrið og segir: Ingmar Bergman hinn nýi leikhússtjóri. inn“ var frumsýnt. Kjeld Abell hefur mjög lítið verið leikinn í Svíþjóð. Hið skemmtilega og hugmyndaríka verk hans „Blái Pekinghundurinn" hefur t. d. aldrei verið leikið hér, aðeins í Gautaborg, held ég. En ég held að norræna leikhússam- bandið muni hafa mikla þýð- ingu, þannig að við lesum héð- an í frá Ieikrit hvors annars, sjáum sýningar hvors annars og hittumst til skrafs og ráða- gerða. Ég hlakka til að taka þátt í því samstarfi, því að það er mjög þýðingarmikið að sýna hið norræna samstarf í verki. Vaxandi leikhúsáhugi — Stundum er talað um það að norræn skáld ráði ekki við leikritsformið. — Það er ekki rétt. Nú upp- lifum við í Svíþjóð geysilega aukningu á leikhúsáhuga með borgaleikhúsunum. Þessi áhugi vex eins og sprenging og mesta vandamál okkar er leikkennsl- an. Hún hefur ekki við eftir- spurninni. Ég er þeirrar skoð- unar, að á Norðurlöndum hafi menn mikla þörf fyrir leikhús og vaxi áhuginn, þá hlýtur leik- ritaskáldskapur að fylgja á eft- ir. En leikhúsin verða að laða höfundana til sín. Það er mjög þýðingarmikið að höfundarnir fái að vera með frá byrjun og fylgjast með æfingum allt frá lesæfingum. Hitt er ósanngjamt að ætlast til þess að höfundur- inn komi fyrst á generalpruf- una. — Margir höfundar hafa orð- LEIKHÚSSTJÓRINN Á AÐ MÆTA yfir það leikhús, sem skipar hæstan sess í leik list Svíþjóðar, og ef til vill í leiklist Norður- landa. 100 Ieikrit sviðsett. En Ingmar Bergman hefur ekki einungis verið kvikmynda- maður. Hann lítur á sig fyrst og fremst sem , leikhúsmann. Hann hefur að vísu stjórnað upptöku um 30 kvikmynda, en hann hefur einnig sett um 100 Ieikrit á svið. Hann telur sig fyrst leikhúsmann, síðan kvik- myndamann og loks sjónvarps- og útvarpsmann. Hann starfaðj mest á sínum yngri árum í Málmey og Hels- ingjaborg og þar ganga margar sögur uni þau þrekvirki, sem hann hafi unnið. Hann á t. d. heiðurinn af því að endurreisa leikhúsið í Helsingjaborg. Hann var aðeins 27 ára, þegar hann var gerður Ieikhússtjóri yfir Ieikhúsinu sem var að hnigna og slokkna út af því að það gat ekki staðizt samkeppnina við hið stóra borgarleikhús í Málmey. Síðan hefur hann stjórnað leikritum bæði í Gautaborg,, Málmey og Stokk- hólmi, já í öllum beztu leik- húsum í Svíþjóð. Þegar Ingmar Bergman tek- ur við stjórn Dramaten léysir hann að hólmi frægan leikhús- mann, Karl Ragnar Gierow, grannvaxinr mann sem hefur falið áhuga sinn og iðjusemi bak við makindalegar hreyfing- ar, en hafði þó alltaf tilfinningu fyrir formlegri framkomu og — Þér áttuð ekki að vera hér fyrr en kl. 2. Er yður sama þó ég ræði fyrst við stúlkuna? — Auðvitað. En ég þarf ekki að bíða nema nokkrar mínútur. Innan skamms er ég kominn inn í hina spartönsku einkaskrifstofu hans. Til hliðar eru stórir inn- byggðir skápar, skrifborð hans er fram við háan glugga og fá- einir stólar. Síminn hringir, Bergman tekur hann: — Já, vinur minn, segir hann, þegar ég las þetta um þig í blöðun- um, fannst mér sjálfsagt að við kæmum saman og settum eitthvað af stað. Finnst þér það ekki? Gott. Við skulum þá hittast á morgun. Já, hef feng- ið gamla herbergið mitt. Ég verð þar. Símatólið á og Bergman tekur upp minnisbók og krotar eitthvað í hana. — Já, það er nóg að gera, verkefnin hellast yfir mann. Svo brosir hann til min og það er eins og hann sé búinn að strika yfir allt á minnisblað- inu. — Jæja, hvernig líkar yður að vera orðinn forstjóri á bezta leikhúsi Norðurlanda? spyr ég. — Er Dramaten það? Ég hef nú alltaf haldið upp á Konung- lega leikhúsið í Kaupmanna- höfn. Þar átti ég margar hríf- andi stundir á Málmeyjarárum mínum. Ein þeirra mestu var þegar Ingeborg Bramþs lék í Ferðinni til hinna grænu skugga eftir Finn Methling. Prestssonur frá Uppsölum. — í Danmörku dást menn að kvikmyndum yðar, en hver eruð þér, hvaðan komið þér? í Bláu bókinni sænsku er sagt að þér séuð fæddur í Uppsölum 1918. — Já og mikið meira en það þarf ekki að segja. Faðir minn er nú prestur á eftirlaunum. — En hvernig líkaði prestin- um að sonur hans yrði leik- húsmaður. — Honum fannst það í bezta lagi. — I Danmörku hafa kirkj- unnar menn sagt að leikhúsið sé verk djöfulsins. — Það þekkjum við ekki í Svíþjóð. Það er ekki langt hjá okkur milli prédikunarstóls og leiksviðs og það er ekki langt á milli helgiathafnar og leiks. Hugsið yður Bacchanidurnar ’eftir Euripides. Það stendur á mörkum helgiathafnar og leiks. Og Kaj Munk var prestur. Hann var trúaður snillingur. — En leikrit hans, eru ekki leikin rnikið upp á siðkastið. — En Pirandello var heldur ekki leikinn mikið um tíma. Síðan settu þeir leikrit hans „Sex persónur í leit að höfundi" á svið í París og leikritið fór sigurför um allan heim. Nú er hann að verða klassískur og sama held ég að verði með Kaj Munk, hann verður kannski ekki heims-klassískur, en klass- ískur á Norðurlöndum. Höfundar — Leikhús. — Gera leikhús Norður- landa nóg fyrir norræn leikrita- skáld? — Nei, svo sannarlega ekki. Hér er um mikið vandamál að ræða, því að það ríkir tor- tryggni milli höfundanna og leikhúsanna. Ég held þó að það væri hægt að vinna bug á þess- ari tortryggni. Nú uþp á síð- kastið er þó að vakna aftur á- hugi fyrir verkum norrænna manna, en ástandið er. samt nógu slæmt. Hugsið yður ykk- ar miklu leikritahöfunda, Kaj Munk, og Kjeld Abell, hvað norræn leikhús hafa illa unnið þvílíka gullæð. — En hvað með H. C. Brann- er? — Hann er undantekningin. Það • var einmitt á Dramaten sem fyrsta leikrit hans „Riddar ið fyrir því að þeir máttu koma á æfingar, en var stranglega bannað að ræða um persónur Ieiksins við Ieikarana. Slíkt er fáránlegt, hver getur sagt betur um eðli og anda per- sónanna en sá sem hefur skap- að þér. Leikhúsakademía. — í Danmörku eru á döfinni hugmyndir urn að stofna leik- húsakademíu. — Já, eitthvað líkt er á seyði hjá okkur í Svíþjóð. Vandamál- ið sem við verðum að leysa er leikkennslan og sænska ríkið skilur þessa nauðsyn. Við höf- um að vísu leikskóla við leik- húsin, en þeir nægja ekki. Það sem okkur vantar fyrst og fremst eru leikkennarar, raun- sæir menn, sem geta kennt leik- urum og leikstjórum. Þeir sem eru góðir leikarar og Iíka góðir kennarar eru svo eftirsóttir að þeir hafa ekki tíma til að kenna. Það er of lágt launað svo að þeir verða áð vinna við kvikmyndagerð, í sjónvarpi og útvafpi til að fá sæmilegar tekjur. Leikhúslaunin eru of lág. í Danmörku er talað um leik- húskreppu, það er fjárhags- vandræði leikhúsanna. — Er það ekki aðeins Allé- Framh. á bls. 10 SVIÐINU : ;•: ':s| • sfc V

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.