Vísir - 06.02.1963, Side 9
VlSIR . MiSvikudagur 6. febrúar 1963.
9
Gunnar Thoroddsen fjármálaráöherra:
Alþingiskosningar í sumar
Tvennar
kosningar
1959.
Árið 1959 fóru fram tvennar
kosningar til Alþingis, vegna
þess að breyta þurfti kjördæma-
skipun landsins. Ágallar hennar
voru orðnir slíkir, að með engu
móti varð lengur við unað í
lýðræðislandi. Hin mörgu, fá-
mennu einmenningskjördæmi,
með ólíkri og breytilegri íbúa-
tölu, og fólksflutningar í land-
inu, skópu alvarlega hættu á
því, að skipun Alþingis sýndi
ranga mynd af vilja og skoðun-
um fólksins.
í næstu þingkosningum á und-
an, 1956, höfðu þessir annmark-
ar komið áþreifanlega í ijós.
Tveir stjórnmálaflokkar, Al-
þýðu- og Framsóknarflokkurinn,
höfðu þá með sér náið kosn-
ingabandalag. Þeir fengu sam-
anlagt 28 þús. atkvæði, sem
voru 33,9% af greiddum at-
kvæðum í landinu öllu, og 25
þingmenn kosna af 52, sem þá
áttu sæti á Alþingi. Hins veg-
ar hlaut Sjálfstæðisflokkurinn
35 þús atkvæði, 42,4% atkvæða
og 19 þingmenn. Hér munaði
þvi minnstu, að þriðjungur kjós-
enda hlyti hreinan meiri hluta
á Alþingi.
Kjördæmaskipun
breytt.
Á þessu þurfti að ráða bót.
Möguleikinn opnaðist, þegar
vinstri stjórnin fór frá I des-
ember ’58 og Framsóknarflokk-
urinn lenti utan stjórnar.
Kjördæmaskipuninni var nú
gjörbreyttv Lögfest voru 8
kjördæmi með hlutfallskosning-
um. Skyldu kosnir 5 — 6 þing-
menn í hverju þeirra, nema 12
í Reykjavík, sem er iangfjöl-
mennasta kjördæmið, alls 49.
Enn fremur skyldu eins og áður
vera 11 þingsæti til jöfnunar eða
uppbótar milli þingflokka. Það
eru „landskjörnir" þingmenn.
Alls eru þingmenn því 60 að
tölu.
Gunnar Thoroddsen.
Úrslit síðustu kosninga.
í október ’59 var kosið I
fyrsta sinn eftir hinu nýja
skipulagi.
Úrslitin urðu þessi:
Sjálfstæðisflokkurinn fékk
33.8 þús. atkv. og 24 þingmenn.
Framsóknarflokkurinn fékk
21.9 þús. atkv. og 17 þingmenn.
Alþýðubandalagið fékk
13,6 þús. atkv. og 10 þingmenn.
Alþýðuflokkurinn fékk
12.9 þús. atkv. og 9 þingmenn.
Þjóðvarnarflokkurinn fékk
2.9 þús. atkv. og engan þingm.
Sjálfstæðisflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn mynduðu síðan
stjórn saman. Þeir höfðu 33
þingmenn að baki sér, en
stjórnarandstaðan, Framsókn
og Alþýðubandalagið, 27 þlng-
menn.
Þrjú þingsætl vantaði,
til að fullur jöfnuður
næðist.
En þótt veruleg leiðrétting
hefði fengizt á kjördæmaskip-
uninni, kom þó f ljós, að hún
var ekki fullnægjandi til þess
að Alþihgi sýndi örugglega
rétta mynd af þjóðarviljanum.
Uppbótarsætin ellefu eru til
þess ætiuð, samkvæmt stjóm-
arskránni, að hver þingfiokkur
fái þingsæti i sem fyllstu sam-
ræmi við atkvæðatölu sína við
kosningar. 1 skýrslu um al-
þingiskosningarnar 1959, bls. 18,
segir Hagstofa Islands:
„Ef halda hefði átt áfram að
úthluta uppbótarþingsætum,
þangað til fenginn væri fullur
jöfnuður miiii þingflokka ...
hefði orðið að úthluta 3 viðbót-
arsætum, og hefði Sjálfstæðis-
flokkurinn fengið 2, en Alþýðu-
flokkurinn 1“.
Þá hefði Sjálfstæðisflokkur-
inn fengið 26 þingsæti og Al-
þýðuflokkurinn 10. Stjómar-
flokkamir hefðu þá haft 36 þing
menn, móti 27 þingmönnum
stjórnarandstöðunnar.
Horfur.
Rétt rök og heilbrigð skyn-
semi benda til þess, að þjóðin
muni meta að maklegleikum
viðreisnina í efnahagsmálum
og veita núverandi stjómar-
flokkum meiri hluta á næsta
kjörtímabili. En eigi skal Ioka
augum fyrir þeirri hættu, að
Framsóknarflokknum takist
með aðstoð góðvina sinna 1 Al-
þýðubandalagi og Þjóðvörn að
krækja sér í fieiri þingsæti en
honum ber eftir atkvæðamagni,
og rugla þannig rétt hlutföll
milli þingsæta og þjóðarvilja.
• •
NEYDAR-SENDITÆKM
Að undanförnu hefir ýmislegt
verið rætt og ritað um nauðsyn
og möguleika á þvi að búa björg
unartæki eins og gúmbátana neyð-
arsenditækjum. 1 tilefni af því
sneri blaðið sér til Hjálmars R.
Bárðarsonar I morgun og fékk hjá
honum nýjustu fréttir að því sem
er að gerast I þessum málum.
Hann sagði að óvenju mikil hreyf-
ing væri á þessu sviði um þessar
mundir á alþjóðavettvangi, stöð-
ugt unnið að framleiðslu og próf-
unum nýrra neyðarsenditækja, sem
ætluð eru fyrir gúmbjörgunarbáta
og svo vill til að skipaskoðunar-
stjóri hefir sjálfur haft hönd I
bagga með þessari þróun og er því
manna kunnugastur þessum mál-
um.
Ráðstefnan 1960.
Árið 1960 sótti Hjálmar R. Bárð
arson alþjóðlega ráðstefnu um
öryggi mannslífa á hafinu, sem
haldin var I London, og átti þar
einmitt sæti I sérnefnd, sem fjall-
aði um björgunarteeki. Þessi nefnd
gerði m.a. tillögu um neyðarsendi
tæki I gúmbjörgunarbáta, sjálf-
virk tæki er sendi I allar áttir til
þess að auðvelda miðun slysstað-
ar, og var þessi tillaga samþykkt.
Ráðstefnan mælti sem sé með því
að unnið yrði að framleiðslu neyð
arsenditækis í gúmbjörgunarbáta,
er væru búin tilteknum eiginleik-
um. Þau áttu að vera létt, geta
flotið, þola vel vatn og högg, hafa
innbyggðan orkugjafa og geta ver
ið I gangi án afláts I 48 klukku-
stundir. Ákvað ráðstefnan að mæla
með slíkum tækjum við rikisitjórn
ir allra landa ef einhverjum tækist
að framleiða þau.
Fjöldi nýrra gerða.
í þessari ályktun fóist mikil
hvatning til framleiðenda enda lét
árangurinn ekki á sér standa. Kom
ið hafa síðan á markaðinn margar
gerðir neyðarsenditækja fyrir gúm
björgunarbáta og þau hafa verið
reynd og prófuð, en skipaskoðunar
stjóri sagði að þvi miður hefði
engum tekizt að framleiða tæki
i með öllum þeim kostum, sem ráð
stefnan áskildi sér til að geta full
komlega mælt með einhverju til-
teknu tæki, en þess bæri jafn-
, framt að geta að stöðuglega væri
nú unnið að endurbótum á þeim
tækjum, sem fram hafa komið og
vel gæti svo farið að innan skamms
heppnaðist að framleiða hið rétta
tæki, sem væri öllum kostum búið,
sem æskilegir væru taldir.
Ágallarnir.
Mörg af nýju tækjunum eru dýr,
sum eru of þung í vöfum,
i sum eru með alltof löng möstur
| fyrir loftnet og önnur eru hand-
I knúin í stað þess að vera með
innbyggðan orkugjafa en einna
i verst er að flest tækin senda ekki
á venjulegri neyðarbylgju báta og
fiugvéla. Eitt tækið, sem prófað
hefir verið, dró ekki nema 100
metra. Eitt af fullkomnari tækjun-
i um sendir á 500, 2182 og 8364
I kílóriðum og er með innbyggðum
rafhlöðum sem tengdar eru að stað
aldri rafkerfum skipanna, og er þvi
ekki hægt að pakka því inn með
gúmbátnum, en hægt að taka það
úr sambandi í skipinu og fara með
það um borð í gúmbjörgunarbáta
og senda þaðan. Það þykir galli að
það er ekki hægt að hafa það að
staðaldri I björgunarbátnum og til
tækt þar, og eins er það galli að
það er 18 kíló að þyngd og all-
stórt um sig. Þetta er þýzkt tæki.
í Bretlandi hefir verið framleitt
lítið tæki, sem hægt er að hafa
til'nækt I björgunarbátunum, en það
fullnægir ekki þeirri kröfu að vera
með innbyggðum orkugjafa heldur
er það handsnúið. Þýzka tækið
kostar 45 þúsund krónur Og er
dýrara en gúmbátarnir sjálfir, en
enska tækið er miklu ódýrara. Ef
keypt væru 3 tæki, eins og þyrfti
að vera, I 160 iesta bát með 3
gúmbátum, kostuðu þau 135 þús-
und krónur. Skipaskoðunarstjóri
kvað þegar verið orðið aukið
öryggi að þeim tækjum, sem nú
væru komin, en það gætu allt I
einu komið fram ný tæki sem væru
bæði ódýrari og fullkomnari og þá
yrði að sjálfsögðu skipt um ef
keypt hefðu verið eldri tæki. Hér
væri því um fjárhagslegt atriði að
ræða jafnhliða spurningunni um
öryggl. Hann gæti ekki mælt gegn
þvl að menn keyptu þau tæki, sem
þegar liggja fyrir, þar eð þau væru
óneitanlega til bóta, en hins vegar
teldi hann sér skylt, I samræmi
við alþjóðasamþykktina, sem fyrr
var nefnd, að benda á að enn hefðu
ekki verið framleidd tæki með öll-
um þeim kostum, sem þar eru tald
ir æskilegir, og að stöðugt væri
enn að gerast eitthvað nýtt I þess-
um málum.
Togaralandanir
á Akureyri
Tveir togarar hafa iandað á Ak-
ureyri núna i vikunni og sá þriðji
mun landa þar um helgina. Er þetta
í fyrsta sklpti um margra mánaða
skeið að togaramir hafi landað afla
sínum i heimahöfn, heldur siglt
með hann og selt erlendis.
Ástæðan fyrir þvi að Akureyr-
artogaramir landa hérlendis, mun
sá, að búið er að selja upp I það
magn, sem samið hefur verið um
á eriendum vettvangi.
Félk tilkynnir við-
tæki / hundraðatali
Fólk hefir komið I hundraðatali
tii okkar og tiikynnt um viðtæki
I eigu sinni eða borið fram fyrir-
spurnir, til að ganga úr skugga um,
að allt sé „i Iagi“ með viðtækja-
t’ign sína og notkun.
Þetta sagði Sigurður Sigurðsson,
innheimtustjóri útvarpsins, meðal
annars í stuttu viðtali, sem Vísir
átti við hann í morgun og spurði
hann um tilmæli útvarpsins um,
að menn láti skrásetja tæki, sem
ef til vill eru ekki á skrá stofnun-
arinnar.
Þetta er eitt af því, sem fólk
einmitt gjaman greiða, sagði Sig-
urður ennfremur, því að það
kemur iðulega fyrlr, þegar komið
er eitthvað fram yfir gjalddaga, að
fólk kemur til okkar og spyr,
hvernig standi á því, að það hafi
ekki fengið kröfu frá útvarpinu.
Við höfum ekki talið þá, sem kom-
ið hafa og tilkynnt tæki, sem okk-
ur var ekki kunnugt um, en ég
gæti trúað, að þeir væru þrjú
hundruð eða jafnvel fleiri.
Annars má gjarnan benda á það,
sagðí Sigurður að endingu, að það
er engin nýlunda, sem komið hefir
til orða, eins og menn vita, að
sendimenn útvarpsins Ilti inn hjá
fólki til að ganga úr skugga um
viðtækjaeign þess. Við gerum
þetta alltaf við og við, þótt ekki
hafi það verið gert síðustu fimm
árin. En það má minna á það, að
árið 1945 var gengið I hvert hús
hér I bænum og athugað, hvað ti)
væri af viðtækjum. Þá bættist é
skrá okkar þrjú eða fjögur þúsund
notendur, og gerði enginn veðui
út af sllku þá.
W