Vísir - 12.02.1963, Síða 1
53. tbl. — Þriðjudagur 12. febrúar 1963. — 36. tbl.
(S
„Þau gerast ekki lengur hin
gömlu ævintýr" ,segir í vísunni.
En það skyldi nú vera að hún
gerðust ekki ennþá. A.m.k. er
það æði ævintýralegt, sem hér
fer á eftir, og þó satt svo langt
sem það nær.
Fyrir nokkru gisti brezkur
fjármálamaður Hótel Sögu í
Bændahöllinni í Reykjavík. Eins
og kunnugt er hefir þessi dýr-
asta bygging á íslandi verið og
er í fjárþröng mikilli og lét
þessi útlendi gestur f ljós að
hann hefði mikinn áhuga á að
lána Hótel Sögu hvorki meira
né minna en 78 milljónir króna
til 20 ára með 6,5% vöxtum.
Forráðamenn Bændahallarinnar
ræddu við gestinn af miklum
áhuga eins og vænta mátti um
þetta mál og töldu, a.m.k. um
skeið, að hér væri um raunhæft
tilboð að ræða. Gesturinn er nú
farinn til síns heima og hafa
forráðamenn Bændahallarinnar
skrifað honum og óskað eftir
að fá tilboð hans staðfest skrif
lega. Enn hefir ekkert svar bor
izt en þess má vænta að fljót
lega verði úr því skorið hvort
manninum hefir verið alvara
eða ekki er mark takandi á orð-
um hans. Fái Bændahöllin þetta
Ián vegná Hótel Sögu er öllum
fjárhagsörðugleikum þessarar
byggingar lokið, a.m.k. í bili.
Fáist iánið ekki er það víst að
Bændahöllin verður að leita á
önnur mið því að lán þarf hún
að fá.
1 gærkveldi var enn einu sinni
ráðizt á konu syðst í Norðurmýr-
inni, eða nálægt gatnamótum
Rauðarárstígs og Miklubrautar.
Þessi atburður skeði um tíu-
inn
Brotist
í jnrðýtu
Hafnarfjarðarlögreglan hefur beð-
ið Vísi að lýsa eftir áhöldum, sem
stolið hafði verið úr vegavinnu-
vélum á þrem stöðum í nágrenninu
en það er frá Leirvogstungu,
Straumi og Hvassahrauni.
Á einum staðnum hafði verið
brotizt inn um þak á jarðýtu til að
stela úr henni áhöldum og á öðr-
um stað voru hurðarhúnarnir skrúf
aðlr af tveim ýtum til að komast
inn í þær.
Stolið var alls konar verðmætum
hlutum: rafgeymum, topplyklasett-
um, rafmagnssjárnvír, ljóskerum,
smurolíu, rörtöngum, skiptilyklum,
stjörnulyklum, skrúfjárnum, slag-
hamri, nýrri rafmagnsþurrku o.m.
fl. Sumir lyklanna voru m.a. mál-
aðir gulir. Þjófnaðir þessir voru
framdir um síðustu helgi og þeir
sem einhverjar upplýsingar geta
gefið eru beðnir að láta Hafnar-
fjarðarlögregluna vita.
leytið í gærkveldi og var konan
ein á gangi er maður þreif til henn
ar, en tók síðan til fótanna án
þess að hafast nokkuð frekara að,
veita henni áverka eða meiða hana.
Konan kærði þetta til lögregl-
unnar og voru tveir lögreglubílar
sendir út af örkinni, sem leituðu
lengi kvölds um öll nærliggjandi
svæði og götur, en án árangurs.
Leituðu þeir m. a. um alla Norður-
mýrina, um Hlíðarnar og allt niður
á Njálsgötu og Laugaveg.
Konan, sem fyrir árásinni varð,
lýsti manninum þannig að hann
hafi verið klæddur grænni úlpu,
sem kemur mjög heim við þær
lýsingar sem gefnar hafa verið
áður í vetur á búningi þess manns,
sem ráðizt hefur á kvenfólk á göt-
um borgarinnar. Konan sagði enn-
fremur að maðurinn hafi verið
þunnhærður og að vantað hafi í
hann framtönn.
í gærkveldi tók lögreglan mann
í miðbænum, sem þótti undarlegur
í hátterni, en hann reyndist ekki
vera sá seki. Þá skýrði og einn
lögreglumaður, sem var á eftirlits-
ferð í bíl i gærkveldi eða nótt, að
hann hafi séð til ferða manns,
sem kom heim við lýsingu kon-
unnar, en hann hvarf lögreglu-
manninum sýnum áður en hann
náði til hans.
Rannsóknarlögreglan hefur tjáö
Framhald á bls. 5.
SÍÐASTI SMALINN I REYKJAVÍK
Þrettán síldarbátar fengu
12.350 tunnur í nótt
í
Ágætur síldarafli var
nótt á austurmiðunum og
fengu bátar frá 650 upp i
2200 tunnur, eða 13 skip
samtals 12.350 tunnur.
nótt. Hana fékk Gullfaxi, 1200
tunnur, og fór með hana til
Eskifjarðar. — Bátarnir sem
fengu síld í nótt munu allir
hafa farið til Eyja, — eða að
minnsta kosti er mér ekki kunn
ugt um neinn bát á vesturleið.
Afli bátanna í nótt var sem hér
segir: Höfrungur II 2200 tn., Reyn-
ir 650, Hringver 900, Marz 1000,
Víðir II 1400, Víðir 600, Halkion
600, Leó 800, Meta 900, Þráinn
800, Gullborg 1200, Ágústa 700,
Kári 600.
Við fórum ferð til fjár, Vísis-
menn I morgun. Við lögðum
land undir fót, leituðum uppi
sauðfé í Laugardalnum, skját-
urnar biessaðar, sem brátt verð
ur ekki Iengur rúm fyrir í borg
ariandinu.
Við þræddum hæina þar í
dalnum, bönkuðum á dyr og
guðuðum á fjárhúsglugga. En
á flestum stöðum var allt harð
læst, og hvergi mann að sjá.
Hundgá var eina lífsmarkið á
Laugabóli og svo mætti áfram
telja. Fjáreigendurnir hafa e.t.v.
verið að sinna skrifstofustörf-
um niður I miðbæ eða öðru á-
Iíka „ófélegu" starfi!
„Síðasti smalinn f Reykja-
vík“ María Garðarsdóttir að
Múla við Suðurlandsbraut. Bú-
ið er að banna sauðfé f bæjar-
landinu, svo þess verður ekki'
lengi að bfða að María Iitla
missi „atvinnuna“.
Inn hjá Múla við Suðurlands
braut munu vera flestar kind-
urnar og stærsti fjáreigandinn.
Ekki náðum við tali af eigand-
anum, hann var ekki viðlátinn,
en sauðféð heilsuðum við upp
á, og það sem meira var, smal
ana líka. Varla hafa borgaryfir-
völdin gert sér grein fyrir því,
Frh á bls 5
Veiddist síldin á sömu
slóðum og áður. Vísir átti
morgun tal við Jakob
Jakobsson fiskifræðing á
varðskipinu Ægi og sagð-
ist honum svo frá:
Gott veður var á miðunum I
nótt og voru þar 15 bátar. Veiði
var almenn. Lóðað var á síld á
stóru svæði, en hún stendur nokk-
uð djúpt. Veiðist síldin á svipuðum
slóðum og í fyrri viku eða í
Skeiðarárdjúpi um 18—20 mílur
út af Ingólfshöfða. Síldin er nokk-
uð misjöfn. Sumir bátar fengu
góða sild, aðrir verri, eins og
gengur.
Fyrsta síldin eftir ógæfta-
kaflann veiddist annars f fyrri-
Tollulækkunir hugstæður bændum
Upplýsingar landbúnaðar-
mólarúðherra í gær
Ég geri ráð fyrir því
að landbúnaðurinn fái
mikla lagfæringu með
hinu nýja tollskrárfrum-
varpi ríkisstjórnarinnar,
lagfæringu sem bændur
hafa beðið eftir í mörg
ár.
Þannig komst Ingólfur Jóns-
son landbúnaðarmálaráðherra
að orði á Búnaðarþingi í gær.
Kvað hann frumvarpið verða
lagt fram næstu daga. Bændur
hafa m. a. á undanförnum ár-
um sótt það fast að tollar á
landbúnaðarvélum væru lækk-
aðir.
Þá ræddi ráðherrann ftarlega
um Ián til landbúnaðarins og
sagði að Iánskjör danskra
bænda væru sízt betri en þeirra
íslenzku, þótt oft væri vitnað
til betra ástands þar. Fyrir-
greiðsla hins opinbera við land-
búnaðinn væri einnig mun lak-
ari á Norðurlöndum en hér á
Iandi.
Þá gaf ráðherrann þær upp-
lýsingar, að á sfðasta ári hefðu
verið Iánaðar 70 milijónir króna
úr Stofnlánadeild Iandbúnaðar-
ins til bygginga og ræktunar f
sveitum. Lán út á fbúðarhús
var á s.l. ári 150 þúsund krónur
til 42 ára með 6% vöxtum.
Unnið er nú að þvf að styrkur
til íbúðarhúsa í sveitum verði
hækkaður upp f 50 þús. krónur
og verði ekki bundinn eftirleið-
is við nýbýli heldur öll ný
íbúðarhús.