Vísir - 12.02.1963, Qupperneq 6
V I S IR . Þriðjudagur 12. febrúar 1963.
SNJÓHÚS I ENGLANDI
Margir Englendingar ímynda
sér, að á íslandi búi Eskimóar
í snjóhúsum og hafi ísbirni sem
eftirlætisdýr. En stundum
er það England, sem er á kafi
í snjó, og ísland, sem býr við
hina blíðustu vorveðráttu. Hér
sést. mynd af ungri, brezkri
„Eskimóastúlku“ að byggja sér
snjóhús, en bjarndýrið vantar
kannske var þvi of kalt?
Myndina tók Ronald Orme,
forstjóri Loftleiða í London,
fyrir utan hús sitt þar.
Kassem grét
— óður en hunn vur iíflótinn
ísland ekki me5
Sérfræðingar á Norðurlöndum
munu f næstu viku hefja viðræður
um aukið Iyfjaeftirlit. Fundurinn
er haldinn að tiistuðian Norður-
landaráðs. Islandi hefur ekki ver-
ið boðin þátttaka. Við höfum ekki
fengið tilkynningu um þennan
fund, sagði Sigurður Sigurðsson,
landlæknir við Vísi í morgun.
Fundurinn hefur verið í undir-
búningi í nokkurn tíma, segir í
fréttum í dönskum blöðum. Tilefni
hans er thalidomide-harmleikurinn
og sá grunur að eftirlit með lyfja-
framleiðslu í heiminum, sé ekki
nægilegt, þótt það sé framkvæmt
eftir ströngum reglum.
Landlæknir kvaðst, þótt ekki
hefði hann fengið tilkynningu um
þennan fund, fá reglulega tilkynn-
ingar frá heilbrigðisstjórnum
hinna Norðurlandanna varðandi
lyfjaeftirlitið f þeim löndum. Ann-
að taldi hann sig ekki geta sagt
um málið að svo stöddu, þar sem
honum væri ókunnugt um fundinn.
Bretland mun að öll-
um líkindum veita bylt-
ingarstjórninni í írak við
urkenningu sína mjög
fljótlega og steig til þess
fyrsta skrefið þegar i
gær, er sendiherra henn-
ar í Bagdad gekk á fund
hins nýja utanríkisráð-
herra, sem fullvissaði
hann um, að stjómin
mundi halda í heiðri al-
þjóðlegar skuldbinding-
ar sínar og sáttmála
Sameinuðu þjóðanna, og
fylgt yrði hlutleysis-
stefnu.
í frekari yfirlýsingu segir
ráðherra, að unnið verði að
einingu Arabaþjóða og „endur-
reisn Palestinu".
Flest Arabalönd hafa nú við-
urkennt byltingarstjórnina, en
Júgóslavfa er eina landið, að
þeim frátöldum, sem búin er
að viðurkenna hana.
KASSEM FÉKK TAUGA-
ÁFALL OG GRÉT.
Fullyrt er, að smám saman
sé allt að færast í venjulegt
horf í írak, þótt enn séu herlög
, gildi og herflokkar og skrið-
drekasveitir á verði á götunum.
Fólk var sagt á leið til vinnu
f morgun og skólar opnaðir. —
Enskur kaupsýslumaður segir,
að þetta hafi verið „rólegri
bylting" en 1958, er Kassem
brauzt til valda og allt hafi f
rauninni gengið furðu fljótt
fyrir sig, og einkum komi þar
til hve skjótt flugherinn leysti
sitt byltingarhlutverk af hendi,
en hann lagði byggingu land-
varnaráðuneytisins í rústir á
skammri stundu. Kassem
komst niður f kjallara, í loft-
varnabyrgi, sem þar er, fékk
þar taugaáfall og grét beisk-
lega, kvaðst vera frelsunar-
maður Iraks og þar fram eftir
KASSEM.
götunum. — Eftir skyndi-
áhlaup á byrgið var hann hand-
tekinn og leiddur fyrir herrétt,
ásamt 3 mönnum öðrum, og
var líflátsdómur kveðinn upp
yfir þeim þegar, og sakborn-
ingar leiddir burt með hendur
bundnar á bak aftur og skotnir.
B /'tingartilraun ' Erhards
misheppnaðist
Ludwig Erhard, varakanslari
Vestur-Þýzkalands, sagði í s.I. viku,
að hann væri reiðubúinn til þess
að taka við stjórnarforystunni. —
Þetta var að sjálfsögðu eins konar
hólmgönguáskorun til Adenauers
kanslara, sem svaraði með því að
segja í sjónvarpinu, að hann gæti
ekkert sagt um „hvaða dag“ hann
léti af embætti „meðan hann væri
í óvissu um eftirmann sinn“ — og
svo fáeri þetta eftir því hvernig á-
SAS fær sér dótturfélag
tL ei annast édýrt flug
Það hefur vakið mikla athygli
á Norðurlöndum, að SAS hef-
ur samið frið við einkaflugfé-
lagið Nordair, sem hefur veitt
SAS harða samkeppni á síðustu
árum með hópflugferðum. Virð
ist þetta vera einn liðurinn f
viðleitni SAS til að bæta rekst-
ur sinn með þvf að hefja ödýrar
flugferðir.
Þessi breyting verður m. a.
með þeim hætti, að tveir af
fulltrúum SAS koma inn f
stjórn Nordair og bendir þann-
ig allt til þess, að Nordair eigi
að verða einskonar dóttur eða
leppfélag SAS, sem taki að sér
ódýrar hópferðir. Er m. a. gert
ráð fyrir því að Nordair taki
við gömlum og úreltum flugvél-
um SAS og noti þær til ódýrra
flugferða.
í fréttum af þessu er m. a.
greint frá því að þegar SAS
fær sér flugvélar, sem fljúga
hraðar en hljóðið kringum 1970
þá taki Nordair við þeim þot-
um sem SAS notar núna. Þann-
ig hyggst SAS koma í veg fyrir
að aðrir hirði ágóðann af ó-
dýru flugi við þau umskipti.
is—. ;..
Ludwig Erhard
stand og horfur yrðu, er þar að
kæmi.
Þetta var af ýmsum skilið svo,
að Adenauer muni þráast við að
láta af embætti sfnu, þar til sam-
komulag næðist um annan eftir-
mann en Erhard. Eins og menn
muna hafa margir viljað losna við
Adenauer úr kanslaraembættinu,
vilja yngri mann í stað hins 87 ára
gamla kanslara, og hörmuðu mjög
deilur um þetta sem kunnugt er
á fyrra ári, og var loks það sam-
komulag gert, að kanslarinn léti
af embætti á þessu ári.
Ludwig Erhard viðhafði þau um-
mæli, er að ofan um getur, þegar
framundan var umræða um „hina
nýju stefnu Adenauers um félags-
skap við Frakka“, eins og það er
orðað í einni frétt, en
Erhard telur, að þessi stefna
tefli allri vestrænni samvinnu i
mikla hættu, og ekki sízt hin-
um mikilvægu tengslum Vestur-
Þýzkalands við Bandaríkin og
önnur bandalagslönd f Norður-
Atlantshafsbandalaginu.
Það var í viðtali við blaðið Siidd
eutsche Zeitung, sem Erhard lýsti
yfir, að hann væri fús að taka við,
þegar er þjóðin og þingið (Bunde-
stag) færi fram á það. Þess er að
geta, að hann fylgdi þessu ekki
Frh. á bls. 13